Læknaneminn - 01.10.1971, Qupperneq 78
6Jf
LÆKN ANEMINN
PÁLMI FRÍMANNSSON, læknanemi:
Langlegusjúklingar
á íslenzkum sjúkradeildum
Niðurstöður athugana á vegum F.L.
Sú hugTnynd kom fram á stjórnar-
fundi hjá Félagi læknanema vorið 1970,
að félagið gengist fyrir rannsókn á ein-
hverjum þætti heilbrigðismálanna. Fyr-
ir va.linu varð að lokum efnið: „Lang-
legusjúklingar í dýrum sjúkrarúmum.“
Ætlunin var að fá hugmynd um, hve
margir þessara langlegusjúklinga gætu
hugsanlega verið á hæli, sem rekið væri
á ódýrari hátt en stóru sjúkrahúsin, og
hvernig slíkt hæli þyrfti að vera útbúið
að starfsfólki og tækjum. Samt var
ljóst, að þörfin fyrir slíkt hæli yrði ekki
rétt metin á þennan hátt, þar eð utan
sjúkrahúsanna er mikill fjöldi einstakl-
inga, sem þarfnast slíkrar hælisvistar.
Ákveðið var að miða könnunina við
þá sjúklinga, sem legið hefðu samfleytt
30 daga eða lengur á sömu deildinni.
Undirbúningur könnunarinnar fór
þannig fram, að bráðabirgðaspurninga-
form var samið og sent til yfirlækna
þeirra deilda, þar sem ætlunin var að
gera könnunina, ásamt bréfi, þar sem
beðið var leyfis til að gera könnunina á
deildinni. Tilgangur könnunarinnar var
útskýrður og beðið um liðveizlu lækna
deildarinnar við að útfylla spurninga-
formið. Jafnframt voru yfirlæknarnir
beðnir að gagmýna spurningaformið.
Síðan var haft munnlegt samband við
yfirlæknana. Tveir þcirra gáfu ekki
leyfi, en annars staðar var málinu tekið
af áhuga og komu fram ýmsar tillögur
um breytingar á spurningaforminu, og
voru þær yfirleitt teknar til greina. End-
anlega spurningaformið varð þannig:
Nafn sjúklings fd. og ár
klippið
Sjúkrahús ............................................ deild ........
Aldur sjúklings ........ ár kyn ............ kom á deildina þ........
Heimili (sýsla eða kaupstaður)
Aðaisjúkdómsgreining
Hvaða rannsóknir má búast við að þurfi að gera á sjúkiingi næstu 20 daga?
a) blóðstatus, sökk, hvblk. □
b) blóðkemía (sykur, urea, el.lytar) □
c) aðrar blóðrannsóknir □
d) þvagrannsóknir (alm. + míkr.) □
e) sýklaræktanir
f) röntgen □