Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1971, Page 94

Læknaneminn - 01.10.1971, Page 94
76 LÆKNANEMINN Leifur Bárðarson Magnús R. Jónasson Magnús Ólason Óttarr Guðmundsson Pétur Ragnarsson Pétur Z. Skarphéðinsson Sigurður Guðmundsson Sigurður Bjarklind Jónsson Sigurður I. Sigurðsson Stefán Þórarinsson Þórir Þórhallsson Upphafspróf: a) undir eldri reglugerð: alls náðu féllu „Tissues" 22 20 2 Efnafræði 20 12 8 b) undir nýrri reglugerð: alls náðu féliu Efnafræði II 58 42 16 Líffærafræði I 55 46 9 Eðlisfræði II 54 53 1 Fáeinir stúdentar þreyta upphafspróf eftir nýrri reglugerð nú í september. FRA stjórn FÉLAGS LÆKNANEMA Af hrókræðum stjórnar: Innan stjórn- ar Félags læknanema hafa í sumar far- ið fram umræður um félagsleg við- fangsefni byrjandi vetrar. Er þar enn flest í deiglu. Samkvæmt lögum félags- ins ber að halda kynningarfund í byrj- un hvers haustmisseris, þar sem fram fer kynning á lögum þess og starfsemi svo og námi og kennsluháttum í deild- inni. 1 júlí s.l. beitti kennslunefnd lækna- deildar sér fyrir kynningarfundi fyrir nýinnritaða stúdenta, þar sem ofan- greind atriði voru m.a. á dagskrá. Er því full ástæða til að breyta út af hefð- bundnu formi kynningarfunda, og hafa mál svo skipazt, að Jakob Jónasson, læknir, mun koma til fundarins og ræða um þagnarskyldu lækna, afstöðu þeirra og umgengni við sjúklinga og ýmis etisk atriði, sem hollt er að kynnast í upphafi náms. Symposium að hefð- bundnum hætti mun sigla í kjölfar kynn- ingarfundar í október mánuði. I nóvem- ber er fyrirhugað að halda „klínísk- patólógískan“ fund á vegum stúdenta, fyrirbæri, sem undirritaður þekkir ekkert íslenzkt orð yfir. Hugmyndin er óunnin ennþá, en í grófum dráttum fel- ur hún í sér, að læknanemar bregði sér í gervi sérfræðinga af fjölskrúðugu tagi og rökræði eitt eða fleiri sjúkratil- felli á grundvelli klínískra, meinaefna- fræðilegra, blóðmeinafræðilegra og vefjafræðilegra rannsókna. Revisorar úr a.m.k. tveimur sérfræðigreinum verða viðstaddir athöfnina. Allir, sem reynt hafa, þekkja þá ein- angrunarkennd, sem menn eru haldnir á fyrsta ári i læknadeild ásamt efa- semdum um, að þekking sú, sem þeir á því stigi eru að afla sér, komi þeim nokkurn tíma a.ð notum í daglegu starfi sem læknar. Mönnum brenna á vörum spurningar: hvers vegna læri ég efna- fræði, eðlisfræði, líffærafræði o.s.frv. ? Raunar er þetta alþjóðlegt vandamál, og viða hafa læknanemasamtök lagt sitt af mörkum til að veita svör við þessum spurningum. Á einhverri góðri stund í sumar fæddist sú hugmynd að skipta fyrsta árs stúdentum í hópa og fara með þá í kynnisferð á sjúkrahús, þar sem þeim yrði sýnt svart á hvítu, hvernig þekking í efnafræði er hagnýtt við rannsóknir á sjúku fólki, hvernig eðlisfræðileg lögmál grundvalla rann- sóknartæki nútima læknisfræði, hvernig skurðlæknirinn styðst við sinn Gray í starfi. Hugmynd þessari hefur verið komið á framfæri við kennslustjóra læknadeildar, sem hét óðar að beita sér fyrir framkvæmd hennar. Kennsla sú í hjálp í viðlögum, sem ráðgerð va.r í hinni nýju reglugerð, hef- ur um sinn verið fórnað á altari tíma- skorts. Slíkt rúm má ekki opið og ófullt standa, og hyggst því F.L. beita sér fyrir námskeiði í þessum lífsnauðsyn- lega þætti í menntun hvers manns, sem bendlaður er við læknisleg fræði. Nám- skeiðið verður væntanlega í desember og verður þannig uppbyggt, að komi fyrsta árs stúdentum að fullum notum, þótt væntanlega muni enginn, sem eldri og reyndari er, biða tjón á sálu sinni með þátttöku. Þjóðfélagsleg aögerö: Eitt hlutverk F.L. 'og e.t.v. það, sem mest hefur verið vanrækt, er virkni i heilbrigðismálum Islendinga, umræðum og athöfnum. Læknanemar um víða veröld hafa vakn- að til vitundar um, að þjóðfélagsfræði sjúkdóma, víxlverkanir þjóðfélagsað- stæðna og heilsufars þegnanna, séu van- rækt svið læknisfræði og þeim beri skylda til að hefjast handa á því sviði. Tvö dæmi um vandamál, sem standa á þeim landamærum þjóðfélags vanda og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.