Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1971, Page 96

Læknaneminn - 01.10.1971, Page 96
78 LÆKNANEMINN Prófessorinn skrapp hingað í vor og lagði fram kennsluáætlun, sem var sam- þykkt 24. júni s.l. Er vart ofmælt, að áætlunin beri nokkurn blæ fljótaskrift- ar. Að öllu þessu athuguðu má því bú- ast við fjörugum frímínútna- og kaffi- stofuumræðum 1. árs manna í vetur. 1 vetur verður í fyrsta sinn reynt að við- hafa lárétta samhæfingu í kennslunni, og eru það kennarar í lífefna-, lífeðlis- og liffærafræði, sem ríða á vaðið. Lengi hefur skortur á samhæfingu verið slæm- ur galli á kennslukerfinu, 'og verður vonandi framhald á samhæfingarstefn- unni. Á vegum kennslunefndar deildarinn- ar hefur í sumar starfað undirnefnd, sem hefur það meginverkefni að endur- skoða núgildandi kennsluhætti og gera tillögur til úrbóta. Fyrstu tillögurnar, sem þessi nefnd sendi frá sér, fjölluðu um haustpróf. Afgreiðsla þeirra varð nokkuð söguleg, en það er rakið annars staðar í blaðinu. I sumar var í fyrsta sinn haldið sér- stakt námskeið fyrir máladeildarmenn til undirbúnings fyrir 1. árs námið. Var þetta gert m.a. til að hægara væri að dreifa 1. árs pensúminu á allan vetur- inn, en í fyrra var yfir því kvartað, að ekkert hefði verið að gera fyrir jól, en óhófleg pressa eftir jól. Óvíst er, hvort téðar ráðstafanir breyti miklu hér um, er hætt við, að hin nýju nóv- emberpróf leggist það þungt á menn, að þeir megi ekki öðru sinna en efna- fræði og eðlisfræði fram yfir áramót. Er einkennilegt, að með tilkomu fleiri kennslugreina á 1. ári en áður var, skuli efnafræðin enn sem fyrr vera að- alhindrunin í læknisfræðináminu. Vakn- ar óneitanlega sú spurning, hvort í þessu felist rétt mat á mikilvægi efna- fræðináms fyrir læknisefnið. I sambandi við störf téðar undir- nefndar kennslumálanefndar, er rétt að geta þess, að reynt var í vor að fara í smiðju stúdenta Og kennara varðandi úrbótatillögur um kennsluhætti. Hafa undirtektir beggja verið daufar. Hefur mjög borið á því sjónarmiði hjá kenn- urum, að þar sem nýja reglugerðin sé rétt að komast í gagnið, sé rétt að sjá til í nokkur ár, áður en farið er að hugsa fyrir breytingum á ný. Það stendur starfi kennslumálanefnd- ar nokkuð fyrir þrifum, hve illa vald- svið hennar er skýrgreint, svo og hve illa er kveðið á um verkaskiptingu milli deildarráðs og kennslunefndar. Er reyndar ljóst, að endurskoða þarf alla stjórn deildarinnar, og verður væntan- legt framkvæmdastjóraembætti stimulus til þess. Ekki háir það kennslunefnd síður, hve stór hún er, 5 manna nefnd, skipuð 2 stúdentum og 2 kennurum, væri mun starfhæfari eining. Eitt af næstu verkefnum kennslu- nefndar F.L. verður að gera úttekt og gagnrýni ásamt tillögum til endurbóta á öllum námsstigum. Verða til þess fengnir 2—3 stúdentar úr hverjum próf- hópi, gögnum síðan safnað saman og úrvinnsla send til allra kennara deildar- innar og/eða birt. Er ætlunin, að þetta verði eftirleiðis fastur liður í starfi nefndarinnar. Þá hyggst nefndin stofna til nokkuð víðtækra umræðna um próf almennt og úrvai úr stúdentahópum. Verður væntanlega úr þessu einhver útgáfa. Þátttaka læknanema í alþjóðastarfi um kennslumál hefur verið lítil, en 2 læknanemar fóru þó á þing í Osló nú í byrjun bktóbers, þar sem fjallað var um efnið „selectionsproblem inom lakarutbildningen." I nóvember munu aðrir 2 fara til Gautaborgar og sitja ráðstefnu um kennslu í preklínískum greinum. Okt. ’71 Hallgi'ímiir Beneiliktsson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.