Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1971, Page 97

Læknaneminn - 01.10.1971, Page 97
LÆKNANEMINN 79 Arnar Haulisson, læknanemi: Vetrarþing I.F.M.S.A. haldið í Reykjavík áramótin 1970 ■— ’71 Á síðasta, allsherjarþingi (G.A.) Inter- national Federation of Medical Student Associations (I.F.M.S.A.) í Berlín vorið ’70, var ákveðið að halda næsta vetrar- þing samtakanna á Islandi. Þar sem þetta yrði fyrsta þing samtakanna á Is- landi, va.r stjórn F.L, mjög í mun, að framkvæmd þess færi hið bezta fram og yrði félagi okkar til sóma. Strax um haustið hóf undirbúnings- nefnd stjórnarinnar störf undir hand- leiðslu Högna formanns. Náðust hag- stæðir samningar við Loftleiðir um hýs- ingu og flutning þátttakenda, svo og um brúk fundarsala. Voru þar gerð sann- kölluð reyfarakaup. Var ákveðið, með samþykki stjórnar IFMSA, að þingað skyldi 31. des. ’70 til 5. jan. ’71, þ.e. yfir áramótin. Hinn 13. nóv. voru boðs- bréf síðan send út. 1 upphafi var ekki búizt við nema um 20 þátttakendum. Kom þar til bæði reynsla af fyrri vetrarþingum, tiltölu- lega stuttur timi að „deadline of appli- cation“, svo og hnattstaða oklcar. Þó góð kjör byðust hjá Loftleiðum, þá er samt allmiklu dýrara að senda dela (delegates) hingað í flugi heldur en til ýmissa borga á meginlandi Evrópu. Reyndin varð þó önnur. 30. des., komu- dag, mættu hingað 42 þátttakendur og 3 bættust við seinna, svo að í allt urðu þetta 45 gestir frá 20 þjóðlönd- um. Er það með endemum. Til þess að svona ráðstefna megi ganga snurðulaust fyrir sig, skal ýmis- legt til. Undirbúningsnefnd F.L. reyndi að huga að sem flestu. Svíta var fengin — endurgjaldslaust — á Hótel Loftleið- um (H.L.) og rekin skrifstofa þar. Var hún opin allan sólarhringinn, meðan á ráðstefnunni stóð, og annaðist upplýs- ingadreifingu, vélritunar- og fjölritun- arstarfsemi, ásamt mícró-sósiallífi. Til þess að gera mönnum dvölina hér ánægjulegri, var ákveðið að reyna að blanda saman — í hófi þó — funda- og skemmtanahaldi. Það verk var unnið af svo einstaklega mikilli útsjónarsemi, að fyrir þessa 5 ráðstefnudaga tókst að kría út 4 kokkteilboð. Komudag not- aði stjórn IFMSA og undirbúningsnefnd- in til þess a.ð gera allt klárt fyrir setn- ingu ráðstefnunnar næsta dag. Að öðru leyti var dagurinn laus gestum til ráð- stöfunar. Gaf skrifstofa út fréttablað með upplýsingum um Rvík, skemmtana- og kúltúrlíf í borginni o.fl. Var slíkt blað gefið út alla daga ráðstefnunnar og vakti lukku. Gamlársdag, 31. des., kl. 8.30 að morgni, hófst svo ráðstefnan. Forseti IFMSA, James A. Dunbar, Skotlandi, setti hana. Byrjaði hann á því að lýsa ánægju sinni með aðbúnað allan svo og undirbúning. Kvaðst hann aðeins geta sett út á tvennt við dagskrána, svona við fyrstu kynni, hversu árla væri ætl- að að risa úr rekkju og heavy sósial- prógramm. Næst tók Högni formaður til máls. Bauð hann gesti velkomna og gerði stutta grein fyrir sósialprógrammi næstu daga. Þvínæst rakti James A. Dunbar verkefni fundarins og helztu málefnaliði, en gerði síðan tillögu um efnismeðferð. Var hann hinn röggsam- asti og fundarstjórn hans örugg og á- kveðin. Leyfði hann engar vífilengjur, en tók umsvifalaust orðið af hverjum þeim, sem ekki hélt sér við efnið. Urðu umræður því gagnorðari en almennt gerist og gengu fljótt fyrir sig. Að inngangi loknum var gengið til dagskrár. Stutt hlé var gert um há- degið, en fundi síðan fram haldið til 19.00. Við undirbúning höfðu margar tillög- ur fram komið, um hvað hægt væri að gera af útlendingunum okkar þetta kvöld. Varð það ofaná, að fengin voru húsakynni og keypt út „kalt borð“ og þeim boðið í Gamlárskvöldveizlu. Léttvín voru höfð á boðstólum fyrir þá er vildu kaupa. Var nú ekið í rútu með prúðbú- inn hópinn frá H.L. að SlS á Kirkju- sandi. Varð þarna fögnuður mikill. En þar sem gleymzt hafði að fá dinner- músík, brá Högni formaður skjótt við og sótti fón og plötur. Runnu veigar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.