Læknaneminn - 01.10.1971, Qupperneq 98
80
LÆKNANEMINN
ljúft niður við undirleik ýmissa beztu
poppara nútímans. Að borðhaldi loknu
sté fólk dans, en inn á milli skemmti
Peter Cox, Englandi, gjaldkeri IFMSA,
með söngvum úr söngbók IFMSA og
fékk sér til fulltingis Sigurð Árnason,
Islandi. Israelsmaðurinn Azriel Perel,
form. SCOPE, hélt sýnikennslu í hand-
sprengjukasti, og notaði til þess kúlur
af jólatré staðarins. Gat Magni gjald-
keri því á engan hátt nýtt sér afgang
veizlunnar næsta dag. Úndir miðnætti
var svo haldið aftur af stað í rútunni
upp í Auðkúlu í áramótafagnað stú-
denta, með viðkomu þó á nokkrum
brennum fyrst. Halli Tómasar, stúdenta-
skiptastjóri, kynnti þær fyrir gestum,
og borgarbrennuna skírði hann Lord
Maýor Fire. Einum Svía varð bumbult
á leiðinni, enda hafði hann dyggilega séð
til þess, að ekki þyrfti að skila víni aft-
ur til ÁTVR. Var ekið með hann upp á
Ösltjuhlíð, hvar hann hresstist.
Nýársdagur rann upp í almennri
þynnku, enda frí til hádegis, en eftir
það hófust fundir og stóðu fram að
miðnætti.
Hér mun rétt að taka fram, að nefnd
fundarhöld hvers dags, eru um almenn
málefni samtakanna. Sitja þá allir ráð-
stefnugestir og hafa allir fulltrúar mál-
frelsi og tillögurétt. En utan skipu-
lagðs fundartíma fóru fram umræður
í hinum mörgu nefndum samtakanna,
s.s. SCOME, SCOH, SCOP, SCOPE o.fl.,
hverja einungis ákveðnir kjörnir fulltrú-
ar sitja. Eiga þá aðrir ráðstefnugestir
frí, og á þann frítíma var raðað títt-
nefndu sóciallífi. Vetrarþing IFMSÁ eru
auk þessa aðalþing stúdentaskiptistjóra
landanna, sem þinga sér. Mikill áhugi
var þó hjá flestum fulltrúum um þátt-
töku í skemmtidagskrá ráðstefnunnar,
og voru framan-nefndir nefndarfundir
haldnir á ótrúlegustu stöðum og tímum.
Var það mál manna, að sjaldan hefði
betri árangur né meiri afköst náðst af
nokkru þingi en þessu. Þakka þeir það
að sumu leyti pressunni frá þéttskip-
aðri dagskrá, svo og kokkteilunum, sem
virkuðu hvetjandi á umræður þær, sem
eftir þeim fylgdu.
Laugardaginn 2. jan. stóðu fundir til
hádegis, en klukkan 3 var farið i „sight-
seeing‘!‘ um borgina. Að henni lokinni
var svo rennt niður í Ráðherrabústað,
þar sem heilbrigðismálaráðherra, Eggert
Þorsteinsson, hafði móttöku fyrir þátt-
takendur, embættismenn F.L. og fleiri
gesti. Sýndu hinir íslenzku læknanemar
þar hagsýni og kunnáttu langt umfram
kollega sína erlenda, þar eð þeir hentu
sjaldan færri en 2—3 glös á lofti í senn.
Þarna féllu og þrír ágætismenn, Peter
Cox, Daniel Zindel, Sviss, f. forseti
IFMSA, og Azriel Perel, fyrir íslenzkri
kvenlegri fegurð, og átti það eftir að
verða þeim örlagaríkt næsta dag.
Eftir að ráðherra og forseti IFMSA
höfðu skipzt á snjöllum ræðum (á ensku
auðvitað) var haldið aftur út á H.L.
Um kvöldið var þingað í ýmsum nefnd-
um, en aðrir þátttakendur áttu frí. Hélt
Magni sumum þeirra veizlu að heimili
sínu. Þar skemmtu Högni form. og Ótt-
arr Guðmundsson með íslenzkum forn-
mannaleik.
Sunnudaginn 3. jan. stóð almennur
fundur fram til hádegis, en e.h. var farið
með erlendu gestina — svo og þá ís-
lenzku — út úr bænum. Var haldið sem
leið liggur að dælustöð I-Iitaveitu Rvk.,
í Mosfellssveit og hún skoðuð. Gaf hita-
veitustjóri þar stutta lýsingu á hita-
veitumálum Islendinga, en bauð því næst
upp á hitaveitu-púns. Að þegnum veig-
um loknum, var ferð áfram haldið, allt
að Laxnesi, hvar rekinn var til skamms
tíma næturklúbbur ásamt hestaleigu.
Stóð til að hleypa gestunum á bak, en
af því gat ekki orðið. Sátu menn þess
í stað í rólegheitum í klúbb-sölum við
glas, en Executive board meeting
IFMSA var haldinn þar á staðnum. —
Seinna í jan., fengu nokkrir embættis-
menn F.L. kvaðningu frá Sakadómi
Hafnarfjarðar. Var þeim gefið að sök
að hafa átt hagsmuna að gæta í um-
ræddum klúbb, og dvalið þar allar næt-
ur, með ráðstefnugesti sina (hafnfirzka
lögreglan veit lengra nefi sínu). Voru
felagar okkar þó sýknaðir um síðir. —
Úr Laxnesi var síðan ekið beint í bæ-
inn, fataskipti höfð, og haldið í móttöku
hjá hinum íslenzku læknasamtökum.
Hafði Arinbjörn Kolbeinsson læknir,
form. félagsins, hana inni á heimili sínu.
Voru hinir erlendu gestir afar hrifnir
af þeirri tilhögun svo og einstakri gest-
risnl þeirra hjóna. Á Læknafélagið mikl-
ar þakkir skilið fyrir gott boð og rausn-
arlegar veitingar.
Dagskrá gerði ráð fyrir þessu kvöldi