Læknaneminn - 01.10.1971, Blaðsíða 99
LÆKNANEMINN
81
fríu, en vegna þess að gestina — alla
hreint — langaði til að nota næsta
morgun í ferð á Gullfoss og Geysi, var
ákveðið að flytja morgunfund næsta
dags yfir á þetta kvöld.
Er kvöldfundur hófst, kom í ljós, að
3 fulltrúar voru fjarverandi, þ.e. áður-
nefndir þremenningar, sem þegið höfðu
matarheimboð íslenzku stúlknanna frá
deginum áður. Var gert hálftima hlé
til þess að síma í þá og gefa þeim kost
á að mæta. En þar sem k'oma þeirra
dróst, var gengið til atkvæða um vítur
á þá þrjá, og voru þær samþykktar
og færðar í fundargjörð.
Fundur þessa kvölds var með ein-
dæmum harður og fjörugur og mikill
hiti í umræðum, enda búið að kynda
vel undir um daginn. Hér ber, til að
forðast misskilning, að taka fram, að
3 títtnefndir fulltrúar, eru með aktífari
og ötulli meðlimum IFMSA, þótt þeim
yrði það á í þetta sinn að falla fyrir
íslenzku vífi.
Að kvöldíundi loknum var fjölmennt
í Glaumbæ. Höfgi mikil seig hins vegar
á Högna formann, sennilega þreyta eftir
strangt rútuferðalag dagsins, svo hann
lagðist undir feld sinn og svaf þetta
kvöid.
Klukkan 7.30 næsta morgun — hreina
satt — var lagt af stað í ferð að G. &
G. Dæmdist það á undirritaðan og Har-
ald Briem að meðríða hinum erlendu
gestum. 1 niðamyrkri, 6 stiga frosti og
roki var lagt af stað. Á leiðinni þing-
uðu SCOME og SCHOH, unz birti af
degi. Gædar Voru með frá Loftleiðum,
en gestum fannst mun trúlegri og á-
hrifameiri lýsingar okkar Haraldar,
Halli reyndar búinn að vera aðalgæd
þeirra i öllum fyrri ferðum. Að Gull-
fossi komst hópurinn og horfði á foss-
inn í grámórauðum klakaböndum,
standandi á gilbrúninni í hávaða roki
og 15 stiga gaddi. Slikt veður mun bezt
við timburmönnum. Við Geysi var
staldrað, nesti snætt og horft á nokk-
ur hveragos. Haldið síðan í bæinn. Virt-
ust allir hamingjusamir.
Er í bæinn kom, var gengið til funda,
en kl. 17 var lagt aftur af stað og nú
að Höfða, þar sem Borgarstjórn Reykja-
víkur hélt gestum boð. Var fyrst þegið
kaffi Og bakkelsi en siðan skenkt í glös.
Hafði Sigmundur ritstjóri orð á þvi, að
heldur væru þær sporlatar með ölið
gengilbeinur þær, er þar skenktu. Var
það einungis margrómaðri hörku hinna
íslenzku læknanema að þakka, að þeir
náðu að kippa. Frá Höfða var svo farið
aftur yfir á H.L., settur þar fundur og
tekin fyrir síðustu mál á dagskrá.
Að lokum tók svo James A. Dunbar,
forseti, til máls. Þakkaði hann fundar-
mönnum fyrir góðan og árangursríkan
fund, og íslenzku undirbúningsnefndinni
fyrir frábæra skipulagningu og aðbún-
að allan. Sagði hann síðan þessu Vetr-
arþingi I.F.M.S.A. á Islandi ’71, slitið.
Var síðan gengið til kvöldmáltíðar mik-
illar. Var þar glatt á hjalla, margar
ræður fluttar og gjafir færðar F.L.
Um kvöldið voru lokafundir i nokkr-
um nefndum, en síðan rólegt samkvæmi
á herbergjum og skrifstofu, og þá hver
boð af öðrum.
Að undanskilinni síðustu kvöldmáltíð-
inni, svo og nýársmáltíðum, snæddu
gestir á kaffiteríu H.L. Líkaði þeim yf-
irieitt vel maturinn, og höfðu Júgóslav-
arnir 2, ungfrú Ivanka og hr. Predrag,
orð á því, að aldrei hefðu þau fyrr
þekkt kokk, sem gefið gat sömu súp-
unni svo mörg nöfn.
1 stórum dráttum hef ég rakið dag-
skrá ráðstefnunnar og tínt til stærstu
og fegurstu rósirnar.
Af málum, sem á góma bar á þing-
inu, má nefna: Yfirlit og skýrsla stjórn-
ar um hag og rekstur félagsins. Kom
fram hjá gjaldkera, að mikið fé ligg-
ur í óseldum söngbókum félagsins, og
er það furða, svo góð sem hún er.
Undirbúningur að næsta G.A. félags-
ins, er Ný-Sjálendingar (Ástralíu) ætl-
uðu að halda, en ekki gat af orðið sök-
um of mikils kostnaðar við að senda
dela þangað. 1 staðinn verður sumar-
þingið haldið í París, nú í ágúst ’71. Þá
var og gerð grein fyrir nokkrum ráð-
stefnum, um afmörkuð mál, sem halda
á á þessu ári, þ. á m. í Skotlandi um
mengun. Stækkun samtakanna. Staðið
er í bréfasambandi við mörg lönd, um
inngöngu þeirra í samtökin, m.a. USSR,
Ungverjalandi, Rúmeníu, Búlgariu og
Kúbu.
Hjálp við þróunarlöndin, og þá hugs-
anleg samvinna við danska læknanema,
sem eru að hefja hjálparstarf í Bots-
wanalandi, svo og við Sameinuðu þjóð-
irnar á þessu sviði.
Vandamál hinna ýmsu aðildarríkja,
bæði innanlands og utan, voru rædd og
reynt að aðstoða lönlin við lausn þeirra.