Læknaneminn - 01.10.1971, Qupperneq 100
LÆKN ANEMINN
Útgáfustarfsemi var tekin fyrir, þ.e.
möguleikar á útgáfu fréttablaðs, sem
vaari fjárhagslega sjálfstætt og því sent
ókeypis til allra læknanema innan
IFMSA. Á þetta blað að vera með öðru
og léttara sniði heldur en tímarit það,
sem félagið gefur nú út.
Mörg fleiri mál voru rædd, s.s. meng-
un, heilbrigðismál o.fl., auk þess sem
nefndir félagsins þinguðu alla dagana,
en niðurstöður þeirra umræðna koma
ekki í ljós fyrr en á G.A. i París.
Stúdentaskiptistjórar endurskoSuðu
lög sín og reglur, upplýsingar 'og skipti-
skilyrði.
Þetta er aðeins brot af þeim aragrúa
málefna, sem tekin voru fyrir. Þeim,
sem nánari upplýsinga æskja, skal vísað
á möppu niðri í fundarherbergi með
ýmsum þinggögnum og plöggum.
Mikið annríki var á skrifstoíunni úti
á H.L., þó hlé væri gert á kokkteiltím-
um. Voru fjölrituð 60—70 þingskjöl u.
þ.b. 15000 bls., auk fjölda annarra starfa.
Er sumt þessa í fyrrnefndri möppu.
Luku ráðstefnugestir upp einum rórni,
að þessi hefði verið bezt undirbúna og
skipulagða ráðstefna, sem IFMSA hefði
staðið fyrir á undanförnum árum og
færðu þeim, sem að henni unnu, undir
ágætri forystu Högna Óskarssonar, for-
manns, miklar þakkir.
Það liggur í augum uppi, að ráðstefnu
sem slíkri fylgir mikill kostnaður. Hann
er greiddur að hluta með framlagi frá
IFMSA og Félagsstofnun stúdenta, en
að hluta með fé, sem F.L. aflaði með
betli. Voru hinar ýmsu lyfjabúðir og
lyfjainnflutningsfyrirtæki sótt heim 'og
beðtin um fjárstyrk, 2000 kr. hvert.
Tóku þau því yfirleitt vel, og er þeirra
sem gáfu, getið annars staðar hér í blað-
inu.
I.F.M.S.A. eru stór samtök. Innan
þess er félag okkar, F.L., einn minnsti
aðilinn. Hér eru læknanemar allir I ein-
um skóla, um 250 að tölu. Önnur lönd
með fjölda háskóla — t.d. Frakkland
með læknadeildir við 22 skóla — og
þúsundir læknanema, hafa því langtum
færri fulltrúa hlutfallslega heldur en
við. Þá er eining þeim erfiðari. Við
stöndum því talsvert vel að vígi í slík-
um samtökum, að ekki sé talað um ef
við fylgjum vel eftir því góða áliti, sem
þetta þing færði okkur, en hingað til
höfum við verið hálf skeytingarlausir
um samtökin yfirleitt og lítt hirt að
færa okkur í nyt þá fjölmörgu mögu-
leika, sem aðild okkar þar býður upp
á, okkur til framfara.
Að lokum skal — til gamans — gerð
úttekt á samkomugestum. 45 mættu til
leiks, 31 male, 14 female, 42 hvítir, 3
svartir. Þessi lönd áttu fulltrúa, fjöldi
þeirra í sviga:
Austurríki (1), Ástralía (1), Bret-
land, þ.e. England (2) og Skotland (4),
Júgóslavía (2), Danmörk (2), Finnland
(3), Frakkland (4), Þýzkaland (2), Hol-
land (2), Israel (1), Italía (4), Líbanon
(1) , Noregur (3), Pólland (1), Spánn
(2) , Svíþjóð (3), Sviss (2), Tanzanía
(1), USA (4).
Óviðráðanlegar afturkallanir bárust
frá 4 öðrum löndum. Líbanski fulltrú-
inn (female), átti lengsta leið hingað,
næst á eftir þeim ástralska, Hún fór
vélavillt í London og flaug vítt og breitt
um Evrópu i 3 daga, áður en hún loks
rataði á rétta vél hingað, næst síðasta
ráðstefnudaginn.
5. janúar flugu síðan ráðstefnugestir
á braut, en eftir stóðu hinir Islenzku,
þunnir á vanga eftir erfiða ráðstefnu og
óvenjuhressilega kokkteildrykkju.
Breiðholti, 5.8. ’71,
Arnar Hauksson.
Á röntgendeild í tvo mánuði:
Læknanemar hafa gjarnan verið
ráðnir á Röntgendeild Landspitalans
yfir sumartímann, og undirritaður er
einn þeirra. Oftast eru þeir tveir á deild-
inni í senn, tvo mánuði i einu, einkum
til röntgenskoðunar (röntgenskyggn-
ingar) á meltingarfærum, ég á við
koki, vélindi, maga, skeifugörn og öðru
smágirni (smágirnispassage), ristli og
endaþarmi (colonpassage, loftcolon) og
myndatöku þessara líffæra eftir þörfum.
En margt annað fellur þeim til, t.d.
skyggning eftir steinum í gallblöðrum
við cholecystografiu, aðstoð við mynda-
tökur í bronchografium eða myelografi-
um, af því að þessar rannsóknir eru
oftast gerðar í sama tæki og áðurnefnd-
ar meltingarfærarannsóknir. Stúdentar
skipta og með sér morgninum, því á
meðan annar skoðar og tekur myndir,
hjálpar hinn til við að dæma myndir
eins og hann er fær um, „frammi í fix-