Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1974, Síða 15

Læknaneminn - 01.03.1974, Síða 15
Ift’fcmrinn Nú skulum við líta á lækninn. Hann hefur að baki Wgt nám og reynslu, sem er mismikil. Þetta má flokka saman sem tœknilega kunnáttu. Út frá fyrri reynslu sinni af sjúklingnum mun hann geta gert sér Ookkra hugmynd um ástand sjúklingsins. I námi °g starfi hefur hann tamið sér ákveðið hegðunar- Htynstur gagnvart sjúklingnum. Hegðun þessa við- hefur hann ýmist vegna samvisku sinnar eða aðhalds frá kollegum. Þetta hegðunarmynstur má nefna kzknasiðfrœði. Vegna stöðu sinnar í jDjóðfélaginu hefur læknir- lnn ávallt ýmissa fj árhagslegra og faglegra hags- muna að gæta. Hugsanlegt er að þetta móti að nokkru hugmyndir hans um það, hvað sé sjúklingn- u>n „fyrir bestu“. Eins og áður greindi koma læknirinn og sjúkling- urinn oft úr gjörólíku umhverfi. I danskri rannsókn kom í ljós, að þriðjungur þarlendra lækna var af Eáskólamenntuðum foreldrum og allt að helmingur lækna var ættaður úr efstu 3% þjóðfélagsstigans. Fróðlegt væri að gera hliðstæða rannsókn hérlendis. Svona gífurlegur munur á uppruna sjúklings og læknis hlýtur að vera afdrifaríkur í samskiptum þeirra. Læknirinn á erfitt með að setja sig inn í félagslegar aðstæður sjúklingsins, svo og þýðingu þeirra fyrir hann og sjúkdóminn. Hann veit oftast Etið um vinnustað sjúklings, aðhúnað á heimili o. s. frv. Er þess þá að vænta að læknirinn fái fullan skilning á lífsskilyrðum sjúklingsins og gjörðum? Einnig má spyrja: Hvert telur læknirinn takmark meðferðarinnar? Stendur læknirinn með sjúklingn- urn eða kerfinu? Hvaða læknir vill aðlaga atvinnu- kfið þörfum sjúklinga en ekki öfugt. &réun sjúhlingshlutverlisins Eins og áöur var lýst skiptir margt fleira máli í astandi sjúklings en sársauki og óþægindi, þ. e. a. s. 5jlöggildingarþörfin“, áhyggjur, tilfinnanlegt ójafn- vægi, óvissa um framtíðina, efnahagsörðugleikar o. fk Hvað gerist nú þegar hann hittir lækninn, sem einnig kemur með sínar forsendur, aðallega læknis- fræðilegar? Samband (communication) milli sjúklings og læknis fer aðallega fram með tvennum hætti: 1) Sjúklingurinn lýsir ástandi sínu frá eigin sjón- arhóli. Hann hefur ákveðnar hugmyndir um hlut- verk læknisins og leggur áherzlu á eða sleppir ýms- um atriðum í samræmi við þær. A hinn bóginn vel- ur læknirinn samkvæmt sínum forsendum úr Jrær staðreyndir, er hann telur sig þurfa til að meðhöndla sjúklinginn. Sennilega ber enn meira á þessu vali læknisins Jregar notuð er hin aðferðin, 2) að læknirinn spyr sjúklinginn heinna spurn- inga um það er hann telur sig þurfa að vita. Einkennandi fyrir Jressi samskipli er gagnkvæmi af sérstakri tegund: Svar læknisins við greinargerð sjúklings er meðhöndlun, fólgin í ordínasjónum, fyr- irmælum til sjúklings etc. Yfirleitt er ekki rætt um hvers vegna læknirinn hafi valið þessa meðferð. Þeir sem hlut eiga að máli reikna með að læknirinn haíi yfir að ráða faglegri þekkingu á háu stigi, sem haíin sé yfir allar umræður. Færir því læknirinn sjaldnast rök fyrir meðferðinni. En eins og áður var rætt getur ýmislegt spilað inn í, svo sem hugmyndir læknis um sjúkling og hvað sé honum „fyrir bestu“. Og þó svo að til ósamkomulags um meðferðina kæmi myndi það ekki breyta henni. Til þess að sjúklingur nái aftur heilsu verður hann að hlýðnast fyrirmælum læknisins. Samvinnu er því þörf, en hún stjórnast þó algjörlega af vilja læknisins og Jsankagangi. Þessi ójöfnuður getur að- eins viðhaldist vegna Jress að læknarnir eru hómógen hópur án marktækrar samkeppni og þess að sjúkling- urinn er ekki í neinni aðstöðu til að dæma um hæfni læknisins eða veita honum aðhald. Læknirinn er mun hetur settur, þar eð hann getur einfaldlega neit- að meðhöndla sjúkling sem óhlýðnast fyrirmælun- um. Það er því einkum þrennt sem máli skiptir varð- andi það hve sjúklingur er háður lækni sínum: 1) Upphafleg vanmáttarkennd sjúklings 2) Sjúklingur viðurkennir að hann þarfnist hjálpar og leitar læknis læicnaneminn 9

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.