Læknaneminn - 01.03.1974, Blaðsíða 35
loftiS og halclið vestur. Þar tóku læknar staðarins
þeir Úlfur Gunnarsson og Ólafur Ólafsson á móti
flokknum með þeim orðum að matur stæði enn á
borðum og færi hvað kólnandi. Eftiraðmatnumhafði
verið gerð skil var litið yfir sjúkrahúsið með slíkum
hraða að talið er að heimsmet hafi verið sett og vinn-
ur félagið nú að staðfestingu á því. Síðan var haldið
i boð bæjarstjórans að Hótel Mánakaffi. Eftir að
fflenn höfðu skóflað í sig veitingum stóð bæjarstjór-
inn, Bolli Gunnarsson upp og fræddi vísindamenn
um áætlanir þeirra heimamanna um uppbyggingu
heilbrigðismála og leist mönnum vel á. Færði hann
félaginu að gjöf áætlanagerð þeirra og verður gerð
nánari grein fyrir henni í sérstakri grein síðar.
Eftir þetta góða boð skiptist hópurinn í tvennt.
Vísindamennirnir, sem höfðu lokið grunnrannsókn-
um héldu upp á loft hótelsins og snéru sér fullir á-
huga að aðalverkefninu. Fréttir bárust síðar um það
að einn hefði jafnvel hjólað í vísindagögnin. Hinn
hópurinn og sá stærri hélt nú upp í skíðaskála og
undu sér þar glaðir við sitt og þá sérlega einn sem
gerðist brátt ofurkátur og reitti af sér slappstikkana
og lifgaði þannig upp á hina.
Um kvöldið hittust hóparnir aftur og farið var á
dansleik í Alþýðuhúsinu og talið er að menn hafi
skemmt sér vel, enda tóku heimamenn vel á móti og
þá sérstaklega karlpening okkar, sumum hverjum a.
m. k.. Ekki er hægt að greina öðru vísi frá nóttinni,
en það að menn hafi dvalist víða. Morguninn eftir
mátti sjá að heimamenn höfðu markað suma og veitt
þeim Blow-up-fracturu, en þeir voru þó fáir sem bet-
ur fer. Aðrir voru enn á hjólum.
Eins og vænta mátti urðu veðurguðirnir mönnum
hliðhollir og lofuðu okkur að vera einn daginn enn.
Fannst nú skíðaskálamönnum ómögulegt að dvelja
upp á reginfjöllum og fluttu sig niður í bæinn. Það
sem eftir var dagsins sátu menn að spilum, eða
skoðuðu sig um í bænum og sumir fóru aftur á spít-
alann lil að fullkomna skoðunina. Um kvöldið kom-
ust sumir á dansiball sem eitt af frystihúsum staðar-
ins hélt starfsfólki sínu. Aðrir lentu í ryskingum við
pólitíið vegna komu fyrsta breska togarans eftir
upphaf þorskastríðsins svo eitthvað sé nefnt.
Morgunin eftir hafði sljákkað það í veðri að flug-
fært var og drifu menn sig því út á flugvöll og héldu
heimleiðis hressir og kátir en kannski dálítið slappir.
læknaneminn
25