Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1974, Qupperneq 44

Læknaneminn - 01.03.1974, Qupperneq 44
Nánar inn eitilfruniur Eitilfrumur eru á stöðugu flakki um vefi líkamans. Þær hafa hæfileika til að greina framandi lífefna- sambönd frá efnakerfum þess líkama, sem þær til- heyra. Hefur þeim verið líkt við lögreglusveit á stöð- ugri eftirlitsferð. Jafnskjótt og þær verða varar við eitthvað annarlegt gera þær aðvart. Aðrar frumur af jimsum gerðum koma þá á vettvang, og hinum af- brigðilegu efnasamböndum er útrýmt með samstilltu átaki allra frumnanna. (Sjá síðar). Greiningarhæfni eitilfrumna byggist á viðtökum (receptors), sem sitja í yfirborðshimnu þeirra. Greiningin er í því fólgin, að viðtak með ákveðnu þrívíddarmunstri getur einungis bundið efnasam- eind, sem hefur nákvæmlega samsvarandi öreinda- munstur (complementary structure). Þegar ákveðinn lágmarksfjöldi framandi sameinda smýgur inn í við- tök eitilfrumu, vaknar hún til starfs, og breytir þá jafnframt útliti eins og síðar verður lýst. B-eitilfrum- ur taka að mynda mótefni, en T-eitilfrumur byrja að framleiða efni, er m. a. kalla á vettvang einkjarna gleypifrumur. Hver eitilfruma virðist einungis hafa viðtök fyrir eina gerð sameinda. I heilbrigðum ein- staklingum eru engar virkar eitilfrumur með við- tökum, sem binda öreindamunstur, er tilheyra þeirra eigin líkama. Á hinn bóginn virðist líkaminn hafa yfir að ráða eitilfrumum, sem hafa eða geta myndað viðtök fyrir flestar aðrar lífefnasameindir, er geta orðið á vegi hans. í fyrsta skipti, sem líkaminn kemst í tæri við á- kveðið lífefnasamband (t. d. yfirborðsmunstur sýk- ils) eru mjög fáar eitilfrumur til staðar, sem hafa viðtök, er samsvara hinu framandi efnamunstri. Þetta fyrsta áreiti leiðir hins vegar til þess, að slík- um frumum fjölgar, og verða þær því fleiri þeim mun oftar sem þetta sama efnasamband berst inn í líkamann. Af þessu leiðir, að fyrsta svar ónæmiskerf- isins gegn ákveðinni sýklategund er tiltölulega sein- virkt og veikt (primary response). Við endurtekið áreili sama sýkils verða varnarviðbrögðin hins veg- ar skjótari og árangursríkari (secondary response). Fyrirbærið kallast ónæmisminni (immunological memory) og er hagnýtt til bólusetninga. Nánar um átfrumur Átfrumur eru ríkar af efnakljúfum, senr geta brot- ið niður lífrænar efnaeiningar. Efnakljúfarnir mynd- ast í ríbósómum átfrumunnar. Þaðan berast þeir gegnum frymið lil Golgi-kerfisins, þar sem þeim er raðað og þjappað saman í hnykla. Efnakljúfahnykl- ar þessir, sem eru aðskildir frá fryminu af þunnri himnu, kallast meltikorn (lysosomes). Þegar átfruma gleypir sýkil, er hann fyrst í stað umluktur hluta af yfirborðshimnu átfrumunnar. Má á þessu stigi greina bráðina sem afmarkaða örðu (phagosome) í frynu átfrumunnar. Fljótlega koma meltikorn aðvífandi og leggjast upp að ætisörðunni. Flimnurnar milli þeirra sameinast og rofna, þannig að ætisarða og meltikorn renna saman í eina heild, gleypi-meltikorn (phago- lysosome). Efnakljúfar meltikornsins geta nú óhindr- að komizt að sýklinum og leyst hann upp í frum- parta sína, sem fruman getur hagnýtt sér til viður- væris eða losað sig við. Átfrumur eru mjög fljótar að ganga frá bráðinni, tekur það venjulega ekki nema nokkra klukkutíma. Beinmergur og sérhæfing hvítra hlóðkorna Beinmergurinn, sem hýsir flestar stofnfrumur blóðkorna, sendir sífellt frá sér nýjar eitil- og átfrum- ur í stað þeirra, sem ganga sér til liúðar. Ekki hefur ennþá verið úr því skorið, hvort hinar ýmsu tegund- ir hvítra blóðkorna æxlast úr frá fleiri en einni gerð stofnfrunma, eftir að fósturskeiði lýkur. Einnig er lítið vitað um þau stjórnkerfi, sem ráða myndunar- hraða og sérhæfingu blóðkornanna. Þegar út úr mergnum kemur, er talið, að sérhæfing hverrar frumu sé það langt gengin, að endanlega sé ákveðið, hvort hún verður eitilfruma, einkjarna gleypifruma eða kleyfkjarna átfruma. Sérhæfingin er fólgin í bæl- ingu á flestum erfðastofnum frumunnar samtímis því, að aðrar erfðaeiningar eru leystar úr læðingi- Því sérhæfðari sem fruma er þeim mun fleiri af erfðastofnum hennar eru óstaríhæfir. Flinir útvöldu erfðastofnar fá þannig einokunaraðstöðu í frumunni og móta gerð hennar eftir starfsþörfum sínum. Ekki er vitað á hvern hátt bessi sérhæfing gerist, en lík- legast er talið, að henni sé að nokkru leyti stjórnað af sérhæfingarvökum (differentiating hormones). Kleyfkjarna átfrumur hafa stutta viðdvöl í blóð- rásinni (meðal æviskeið 12-24 klst.) og eru orðnar 32 LÆKNANEMINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.