Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1974, Qupperneq 51

Læknaneminn - 01.03.1974, Qupperneq 51
stokka (splenic sinuses), sem tæmast í bláæöakerfi ffliltans. Milli blóðstokkanna eru vef j astrengir (splenic cords), sem eru myndaðir úr einkjarna gleypifrumum og netfrumum. Netfrumurnar senda frá sér þræði, sem kvíslast milli blóðstokkanna og fflynda þétt riðið net, sem blóðið sitrar gegnum. I netstrengjum þessum er mikið um einkjarna gleypi- frumur, bæði fastar og lausar, og sjá þær um blóð- ht'einsun þá, sem fram fer í miltanu. Grákvikurnar (sjá 5. mynd) eru slíður, sem urn- lykja slagæðlinga rauðkvikuhólfanna. Þessi slíður eru ur eitilvef og leggjast utan um slagæðlingana jafnskjótt og þeir yfirgefa bandvefsskiptin og stefna lnn að miðju hólfanna. Eitilvefskápa þessi er þynnst næst bandvefsskiptunum og þykknar þegar nær dreg- ur miðju rauðkvikuhólfanna. Tímgilsvæði grákvik- unnar liggur næst æðinni (periarterial lymphatic sheath), og eru þar flestar eitilfrumur af T-gerð. í utjöðrum tímgilsvæðanna eru eitilfrumubú svipuð þeim, sem finnast í eitlum. Eitilfrumur búanna og ytri hluta grákvikuslíðranna eru flestar af B-gerð. Slagæðlingar rauðkvikunnar senda frá sér grein- ar, sem liggja þvert gegnum grákvikuslíðrin út í að- hggjandi rauðkvikustrengi. Er talið, að eitilfrumurn- ar smjúgi út úr æðunum í þann mund, sem þær yfir- gefa grákvikuna (marginal zone). B-frumurnar leita lnn í eitilfrumubúin, en T-frumurnar skríða inn á timgilsvæðin í grákvikumiðjunni. Þaðan berast þær aftur inn í blóðrásina gegnum blóðstokka rauðkvik- unnar. Eitilvefur miltans virðist í ýmsu tilliti vera ólíkur eðrum eitilvef líkamans. Þannig myndast þar meira af M-mótefnum (IgM) en í öðrum vefjum líkamans. Ennfremur benda líkur til, að T-eitilfrumur, sem fara um miltiseitlinga, séu frábrugðnar T-eitilfrum- um eitla. Eitilvefur meltingarfœra Meltingargangurinn er gróðrarstía fyrir margvís- fegar bakteríur, og þangað berast sífellt alls kyns sýklar með fæðu. Yfirborðslag (slíma) garnanna er a hinn bóginn fremur þunnt enda þurfa næringar- efni að komast þar í gegnum. Einnig myndast gjarna sma rof í þessa þekju við núning frá hörðum fæðu- °gnum. Meltingarvegurinn er því sá staður, þar sem yfirborðsvarnir líkamans eru veikastar. Rannsóknir á heilbrigðum dýrum hafa sýnt, að fjöldi baktería berst inn í blóð- og vessaæðar garnanna. Líkaminn þarf sérstakar varnarráðstafanir til þess að mæta þeirri hættu sem þetta býður heim. Hafa þannig þróast miklar eitilvefsbreiður undir yfir- borðsþekju meltingargangsins. Ennfremur eru mik- ið um eitla í hengiskinu (mesenterinum) garnanna. Loks er lifrin stórvirk sýklasía eins og síðar verður lýst. Helztu þættir eitilvefskerfis meltingargangsins eru kverkeitlur (tonsillae palatina), tungueitlur (tons- illae lingualis), kokeitlur (tonsillae pharyngea), stak- eitlingar og eitilvefsflákar mjógirnis (Peyer’s path- ces) og botnlanga. Eitilfrumur þessa kerfis eru flestar af B-gerð, og virðist vera lítið um tímgilsvæði í eitil- vef meltingarvegarins. Ber þar mest á eitilfrumubú- um, og hefur verið talið, að sérhæfing B-eitilfrumna í spendýrum fari að verulegu leyti fram í þessum bú- um (bursa equivalent). Nýlegar dýratilraunir hafa þó veikt þessa tilgátu. Mótefni þau, sem þessar eitil- frumur mynda, eru mestmegnis af A-gerð (Ig A). Berst talsvert af þessum mótefnum gegnum yfirborðs- jrekjuna inn í meltingarganginn. Er talið, að þau verndi slímhúð meltingarvegarins gegn ágangi sýkla og geri óvirk eiturefni, sem þeir framleiða. Lifmr Mestur hluti þess blóðs, sem kemur frá görnum, rennur gegnum lifur. Yeggir æðastokka (sinusoids) lifrableðlanna eru þétt setnir af einkjarna gleypi- frumum í Kuffer’s cells), sem eyða sýklum, er berast blóðleiðina frá görnum. Hins vegar er fremur lítið um eitilfrumur í heilbrigðri lifur. Mótefnaglóbúlín aukast verulega í blóði sjúklinga með svæsna lifrarbilun. Er talið, að það orsakist af áreitni frá óeðlilega miklu sýklamagni í líkama slíkra sj úklinga, þar sem lifur þeirra er ekki lengur fær um að útrýma sýklum frá meltingarveginum. Ferð Uvítra blóffhorna um líhamann Kleyfkj arna átfrumur hafa stutta viðdvöl í blóð- inu. Þær eru skammlífar og eyðast fljótlega eftir að þær fara út úr æðakerfinu inn í vefi líkamans. Stöðv- un á framleiðslu þeirra í beinmerg leiðir því skjótt til minnkaðs sýkingarviðnáms. Einkjarna gleypifrumur dveljast líka stutt í blóð- LÆKNANEMINN 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.