Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1981, Qupperneq 34

Læknaneminn - 01.03.1981, Qupperneq 34
legt væri að hafa til hliðsjónar við rannsóknir á þessum mannasjúkdómi. Að rannsóknum jressum hefur verið unnið í hópsamvinnu vísindamanna við tilraunastöðina og bandarískra rannsóknamanna undir forystu Neal Nathanson, prófessors við Penn- sylvaníuháskóla. Af hálfu tilraunastöðvarinnar hafa einkum annast þessar rannsóknir Guðmundur Ge- orgsson, Páll A. Pálsson og undirritaður. Til þeirra hafa National Institutes of Health í Bandaríkjunum veitt aliríilegan fjárstyrk undanfarin 7 ár. Veiran, sem veldur hinni svokölluðu þurramæði, er náskyld visnuveiru og fóru fram á árunum 1976- 1979 alíumfangsmiklar samnorrænar rannsóknir á mæðiveiki, með þátttöku íslenskra vísindamanna. Til þeirra rannsókna fékkst fé frá rannsóknaráðum í Noregi og Danmörku, enda var talið eðlilegt að Is- lendingar fengju til þeirra nokkurn styrk þar sem Jjáttaka Jreirra í rannsóknuimm var einkum hugsuð til hagsbóta fyrir hinar Norðurlandaþjóðirnar, sem eiga við Jiennan sjúkdóm að stríða enn Jiann dag í dag, en sem kunnugt er hefur mæðiveiki ekki fund- ist í sauðfé á Islandi síðan 1965. Rannsóknirnar á Íslandi hafa einkum miðað að Jiví að reyna að finna bóluefni við mæðiveiki í náinni samvinnu við dansk- an vísindamann, dr. Rikke Hoff-Jprgensen við Statens Veterinære Serumlaboratorium í Kaup- mannahöfn. Enn hefur þó ekki orðið verulegur ár- angur af Jiessum bóluefnisrannsóknum. A seinni árum hefur hinn dularfulli sauðfjársjúk- dómur riða breiðst víða út um landið án þess að vit- að sé með hverjum hætti Jiað hefur skeð. Riðunni er talin valda einhvers konar veira, sem þó er með þeim fádæmum að hún Jiolir suðu og jafnvel 10% forma- lín og er um margt hin mesta líffræðilega ráðgáta. Að rannsóknum á riðu vinna ýmsir ágætir vísinda- menn víða um heim og miðar hægt. Framlag Islend- inga til þessara rannsókna hefur að vonum verið fremur lítið, en Jió eru hér fyrir hendi faraldsfræði- legar aðstæður, sem talið er að megi nýta til aukins skilnings á eðli og útbreiðsluháttum þessa sjúk- dóms. Erum við að reyna að notfæra okkur Jiessar sérstöku aðstæður hérlendis við athuganir á riðu. Þess má geta að til eru fágætir sjúkdómar í mönn- um, sem líkjast mjög riðu í sauðfé án Jiess að vitað sé um bein tengsl þar á miili. Einn þeirra er kuru, heilasjúkdómur í mönnum á Nýju-Gíneu. Carleton Gajducek fékk Nóbelsverðlaunin árið 1976 fyrir að sýna fram á að kuru væri smitsjúkdómur með því að ilytja hann yfir í apa. Þess má geta að Gajducek hafði heimsótt Keldur og þekkti til rannsókna hér á Islandi á hæggengum smitsjúkdómum. Voru margir þeirrar skoðunar, þegar hann fékk Nóbelsverðlaun- in fyrir rannsóknir sínar á sviði hæggengra veiru- sýkinga, að ekki hefði þá verið gengið fram hjá Birni Sigurðssyni ef honum hefði enst aldur að lifa þann dag. Fleiri sýklar en veirur hafa verið viðfangsefni starfsmanna tilraunastöðvarinnar. I gangi eru stöð- ugt rannsóknir á garnaveiki og hafa undanfarin ár farið fram athuganir á vaka úr sýktri slímhúð, sem löngum hefur verið notaður við komplementbind- ingspróf til greiningar á þessum sjúkdómi á Keldum. Þá má einnig nefna rannsóknir á listeriosis eða svo- kallaðri Hvanneyrarveiki í sauðfé, en Páll A. Pálsson var einn hinna fyrstu sem benti á tengsl Jiessa sjúk- dóms við illa verkað súrhey. Mycoplasma ovi- pneumoniae hefur á síðustu árum verið ræktuð á Keldum úr sauðfé og tengd sérstökum sjúkdómi í lömbum, sem nefndur hefur verið kregðulungna- bólga. Ymis konar efnaskiptasjúkdómar og snefilefna- skortur hefur löngum verið viðfangsefni vísinda- manna á Keldum. Nutum við þar lengi vel ágætra starfa Halldórs Grímssonar efnafræðings, en hann sýndi ásamt Páli A. Pálssyni fram á að koparskortur lægi til grundvallar fjöruskjögri í lömbum. Síðar komu til sögunnar Þorsteinn Þorsteinsson og Baldur Símonarson auk annarra. Tilraunastöðin hefur nú komið sér upp sæmilega afkastamiklum tækjum til ýmis konar efnamælinga og blóðrannsókna, m. a. atomic absorption spectrophotometer og sjálfvirkum efnamælum til mælinga á ýmsum þáttum í blóði. Rannsóknir á heilsufari nautgripa, sem miklar kröfur eru gerðir til hér á landi um afurðasemi svo sem víða annars staðar, hafa á margan Iiátt reynst gagnlegar íslenskum bændum og hafa leitt í ljós marga þá vankanta á fóðrun og atlæti sem bæta verður, ef takast á að reka nýtískulegan landbúnað á þessu sviði. Meðal þeirra sjúkdóma í nautgripum sem fundisl hafa eru magnesíumskortur, koparskort- ur, ofnotkun D-vítamíns í lækningaskyni, eitranir af völdum thallíums og fleira mætti þar rekja. Baldur 32 LÆKNANEMINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.