Læknaneminn - 01.03.1981, Síða 48
Rdðstefna um rannsóknir í lœknadeild
Hdskóla Islands
Ráðstejiui um rannsóknir í lœknadeild var haldin í fyrirlestrasal Hjúkrimarskóla Islands laugardaginn 7.
mars 1981. Voru þar kynntar í formi erinda þœr helstu rannsóknir, sem nýlega hafa jarið fram innan
deildarinnar og enn er verið að vinna að. Alls voru erindin 18, hvert öðru áhugaverðara. Þótti ráðstejnan
takast í alla staði vel og var mál manna að slíkt ráðstejnuhald œtti að vera árviss viðburður hjá deildinni.
Hér á ejtir verða birtir úrdrœttir úr nokkrum erindanna, að fengnu góðfúslegu leyfi hófunda.
Afmýliny í visnu
Guðmundur Georgsson, Tilraunastöð Háskólans í meinafrœði, Keldum
Allmargir veirusjúkdómar valda afmýlingu í tauga-
kerfi. Ein þeirra er visna, hæggengur veirusjúkdóm-
ur í miðtaugakerfi sauðfjár. Visna er einn þeirra
sjúkdóma, sem voru undirstaða kenningar Björns
heitins Sigurðssonar um nýjan flokk smitsjúkdóma,
þ. e. hæggenga smitsjúkdóma (slow infections).
Áhugi á hæggengum afmýlandi veirusjúkdómum
stafar einkum af því, að sífellt er leitað að góðu
dýralíkani fyrir einn algengasta vefræna sjúkdóm í
miðtaugakerfi hjá mönnum, heila- og mænusigg.
Vefjameinafræðilegar athuganir geta komið að
haldi í þessari leit, vegna þess að afmýling getur orð-
ið með ýmsu móti eftir því hver orsökin er. Björn
Sigurðsson og Páll A. Pálsson bentu 'fyrstir á, að í
sumum tilvikum líktist sjúkdómsgangurinn í visnu
mjög gangi sjúkdómsins í heila- og mænusiggi. Hins
vegar bentu athuganir þeirra á vefjaskemmdum til
þess, að afmýling í visnu kæmi í kjölfar bólgu og
mýli og taugasímar skemmdust samhliða og væru
því frábrugðnar vefjaskemdum í heila- og mænu-
siggi, þar sem mýli skemmist en taugasímar ekki.
f tilraunum, sem staðið hafa undanfarin ár og
einkum beinst að meingerð (pathogenesis) visnu,
var auk ljóssmásjárathugana örgerð vefjaskemmda
könnuð. Niðurstöður rannsókna á vefjaskemmdum
á fyrsta ári eftir sýkingu voru í samræmi við fyrri
lýsingar. Hins vegar komu síðar fram vefjabreyt-
ingar, sem líktust mjög gömlum blettum (chronic
plaques) í heila- og mænusiggi. Þessar skemmdir
einkenndust af afmýlingu, með óverulegri íferð
bólgufruma. I rafeindasmásjá sáust í þessum blett-
um eðlilegir taugasímar án mýlis og nokkuð bar á
endurmýlingu. Slík breyting á eðli vefjaskemmda,
þ. e. að byrjunarbreytingar einkennist af bólgu, en
síðbúnar breytingar hins vegar af afmýlingu, er
þekkt úr tilraunum með ýmsa afmýlandi veirusjúk-
dóma og minnir að vissu leyti á breytingar, sem
verða á eðli vefjaskemmda í heila- og mænusiggi,
þar sem bólga getur verið ríkjandi í ferskum
skemmdum en víkur fyrir afmýlingu í gömlum blett-
um.
Snílijudýr í nieltingurvegi nuinnu á íslundi
Sigurður H. Richter, Tilraunastöð Háskólans í meinafrœði, Keldum
Frá 1973 hefur verið tekið við sýnum á Keldum
til rannsókna vegna gruns um sníkjudýrasýkingar í
og á mönnum. í byrjun voru þessi sýni aðeins fá á
ári, en fjöldi þeirra hefur vaxið jafnt og þétt. Hér
verður aðeins fjallað um þann hluta sýnanna er bár-
ust vegna gruns um sníkjudýr í meltingarvegi. Af
slíkum sýnum voru á árunum 1973—1980 skoðuð
279 saursýni og 23 önnur sýni úr samtals 216 ein-
46
LÆKNANEMINN