Læknaneminn - 01.04.2005, Blaðsíða 34
Sumarvinna í héraði
hef ég ekki samanburð frekar en fyrr en ég myndi telja þau sann-
gjörn miðað við álag, þ.e. mikil vinna - mikill peningur - mikil
reynsla. Að endingu vil ég hvetja alla sem lokið hafa 5.ári til að
skella sér í hérað...smá hausverkur, niðurgangur og magasár
svona fyrstu vikuna en svo er þetta bara skemmtilegt og krefj-
andi!
Hj \ v / ?/ ‘0 N; ^
Patreksfifirður i Hólmavík
v. • p; \
— > ' '/ 4 I 4 ) Reyfthólar.- .. ■ í
\, /
StykkishólmurÁ Búðardalur.
y
Heilsugæslustöðin Búðardal
Upplýsingar frá Þórði Ingólfssyni, yfirlækni:
Upptökusvæði Heilsugæslustöðvarinnar er landfræðilega mjög
stórt, Dalasýsla og Austur- Barðastrandarsýsla. Starfssvæðið
nær því frá Álftafirði í suðvestri og Bröttubrekku í suðri og allt
norður og vestur á Litlanes milli Kerlingarfjarðar og Kjálkafjarðar
í norðri. Að norðaustan og austan afmarkast svæðið svo af fjall-
lendi á milli okkar sýslna annars vegar og Strandasýslu hins
vegar. Þjóðvegir eru í allar áttir út af og inn á svæðið og er afar
fátítt að lokast hér inni vegna ófærðar. Aðal sjúkrahús okkar er á
Akranesi og er þangað tæplega 1,5 klst. akstur frá Búðardal.
Alvarlegustu tilfellin fara til Reykjavíkur og er þangað tæplega 2
klst. akstur. Á upptökusvæðinu búa um 1050 manns, þar af um
300 í Búðardal, um 100 á Reykhólum og hinir mjög dreift um
upptökusvæðið. Ferðamennska hefur verið vaxandi undanfarin
ár og því er mikil umferð hér á sumrin. Á stöðinni starfa 2 læknar
og eru báðir á vakt, annar á framvakt og hinn á bakvakt. Báðir
fastráðnir læknar stöðvarinnar eru sérfræðingar í heimilislækn-
ingum. Þegar læknanemar hafa verið ráðnir í afleysingar, t.d. á
sumrín er reynt að gæta þess að annar sérfræðinganna sé ávallt
á svæðinu og til taks ef læknaneminn þarf aðstoð. Gisting er fyrir
afleysingalækni í lítilli en þokkalegri 2 herbergja íbúð sem er í
sama húsi og Heilsugæslustöðin. Vel er hægt að vera þarna
með maka og t.d. 1 barn en þröngt yrði um fleiri. Afleysinga-
læknar hafa ekki verið krafðir um leigu. Vaktbifreið er til staðar og
fylgir þeim lækni sem hefur framvakt. Ekki tíðkast að greiða fyrir
ferðir til og frá Búðardal. Grænir miðar eru greiddir skv. gildandi
gjaldskrá og eru þessar greiðslur oftast á bilinu 50.000 -
100.000 krónur á mánuði. Vaktir fylgja ráðningunni. Þær eru að
lágmarki önnur hver vika en yfirleitt er farið fram á mun meiri
vaktavinnu þegar um afleysingamenn er að ræða. Hins vegar
eru vaktirnar oftast rólegar og truflanir eru fáar, talsvert fleiri þó á
sumrin en á veturna. Útköll eru hins vegar oft tímafrek ef einhver
eru því flutningur á sjúkrahús getur tekið margar klukkustundir.
Starfinu fylgir einnig starf við 3 aðrar stofnanir. Á Reykhólum er
dvalar- og hjúkrunarheimili fyrir 14 vistmenn. í Búðardal er önnur
slík stofnun fyrir 11 vistmenn. Á Fellsenda í Miðdölum er hjúkr-
unarheimili fyrir aldraða og miðaldra geðfatlaða og eru vistmenn
þar 17 talsins. Auk launa frá heilsugæslu koma greiðslur frá
þessum stofnunum. Hugsanlegt er að maki með menntun á
heilbrigðíssviði geti fengið starf hér einníg yfir sumartímann, óskir
um slíkt yrðu skoðaðar með jákvæðum hug.
Umsögn unglæknis:
Unglæknir var á staðnum sumarið 2003. Vinnuálag var í meðal-
lagi, oftast fullbókað frá 9-16. Að meðaltali 2-3 sjúklingar utan
dagvinnutíma. Stöðin er H2. Þetta er mjög dæmigerð aðstaða,
teikning hússins hefur verið notuð víðar s.s. á Þórshöfn og
Hvolsvelli. Tvær læknastofur með tveimur aðskildum skoðunar-
herbergjum (annað er skiptistofa/aðgerðarstofa). Það eru rann-
sóknarstofa og röntgenstofa í húsinu sem læknar og afleysarar
sinna alfarið sjálfir. Lyfsalan er rekin af stöðinni. Það er Nissan
Ratrol jeppi til ráðstöfunar fyrir vaktlækni og 2 sjúkrabílar gerðir
út frá stöðinni. Vistarverur afleysingarlæknis eru í viðbyggingu
stöðvarinnar. Starfsfólk var vingjarnlegt og tilbúið að aðstoða
eftir fremsta megni. Skorti þó hjúkrunarfræðing þetta sumarið
vegna eldri innanhússátaka sem setti auknar byrðar á hendur
lækna. Fjölbreytileiki vinnunnar var í meðallagi. Heildarlaun voru
góð og greidd af ríkinu, lyfsölunni og 3 hjúkrunarheimilum sem
læknar sinna í verktakastarfi. Grænir miðar gefa ca 50 þúsund á
mánuði. Fátt er í boði á staðnum en þar er þó veitingasala, kjör-
búð, pizzastaður og myndbandaleiga. í 10 mín fjarlægð er sund-
laugin á Laugum í Sælingsdal sem gott er að sækja í góðu veðri.
Helsti kostur þessarar stöðvar er að aðeins er unnið aðra hvora
viku. Þetta þýðir að læknar skiptast á forvakt eða bakvakt með
viku millibili. Gert er ráð fyrir tveggja klukkustunda útkallstíma
bakvaktar, sem þá getur verið í Reykjavík aðra vikuna. Ekki kom
til útkalls bakvaktar þetta sumarið. Þetta gefur því vel í aðra
hönd sé miðað við útlagðar vinnustundir. Einnig er H0 stöð á
Reykhólum rekin frá heilsugæslustöðinni á Búðardal sem
bakvaktarlæknir sinnir á mánudegi í lok sinnar vinnuviku. Helsti
ókostur stöðvarinnar er hversu landfræðilega stórt upptöku-
svæðið er.
Heilsugæslan á Dalvík
Upplýsingar frá Guðmundi Pálssyni, yfirlækni.
Dalvíkurlæknishérað tekur yfir Dalvíkurbyggð og Hrísey. Héraðið
er fremur lítið landfræðilega borið saman við önnur héruð. Það
eru ca 20 - 25 km milli fjarlægustu punkta eftir vegi. Það liggur
milli Akureyrar og Ólafsfjarðar. Hálftíma akstur er til Akureyrar og
15 mínútur til Ólafsfjarðar. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri tekur
við öllum tilfellum sem þurfa á sjúkrahúsmeðferð að halda.
Þangað er greiður vegur sem nær aldrei lokast af snjó eða
veðrum. íbúafjöldi er nú ca. 2.100, hefur farið fækkandi eins og
víða á landsbyggðinni. Þar af búa 1.600 - 1.700 á Dalvík.
Heilsugæslustöðin er H2 stöð. Stöðugildi lækna eru tvö.
Einungis einn læknir er á vakt. Heilsugæslustöðin hefur yfir að
ráða íbúð fyrir afleysara. Þetta er 2ja herbergja íbúð með sér
eldhúsi og rúmum fyrir hjón með tvö börn. íbúðin er lánuð
endurgjaldslaust en ætlast til að fólk þrífi eftir sig. Venjan hefur
32
LÆKNANEMINN
2005
l