Læknaneminn - 01.04.2005, Blaðsíða 63

Læknaneminn - 01.04.2005, Blaðsíða 63
Stofnfrumur: Uppruni og meðferðarmöguleikar kerfið í kjölfar beinmergsígræðslu. Algengast er að finna slíkar stofnfrumur úr beinmerg en einnig í litlum mæli í blóði og nafla- strengjum (3). Þekkt klínísk hagnýting frumnanna er þegar bein- mergur er endurreistur eftir krabbameinsmeðferðir þar sem notast er geisla- og/eða stranga lyfjameðferð. Blóðmyndandi stofnfrumur eru sem stendur eina tegund stofnfrumna sem hefur fest sig í sessi hvað varðar meðferð sjúklinga. Hin mikla fjölgunarhæfni frumnanna gerir þær að hentugum skotmörkum fyrir genameðferð. Með þeirri meðferð má laga galla í genum sem geta leitt til skorts á nauðsynlegum prótínum. Genamemeðferð með tilliti til blóðsjúkdóma snýst í grunn- atriðum um að blóðmyndandi stofnfrumur eru teknar úr sjúk- lingum og erfðabreytt með hjálp veiruferja (viral vectors). Oftast eru notaðar svokallaðar víxlveirur (retrovirus), þ.e. oncoretrov- eirur eða lentiveirur sem hafa mismunandi eiginleika. Erfða- breyttu frumurnar mætti síðan græða aftur í sjúklinginn og þær framleitt erfðafræðilega leiðréttar blóðfrumur allt að því ævilangt. Genameðferð býr yfir miklum möguleikum og er verið að rann- saka hana m.t.t. fjölda erfðasjúkdóma í blóðkerfinu, t.d. Thal- assemiu, Gaucher sjúkdóm, Diamond Blackfan anemiu og jafn- framt ýmsar tegundir af hvítblæði (4). Tekist hefur að lækna sjúk- linga sem þjást af SCID-sjúkdómi (severe combined immuno deficiency) með genameðferð (5). Einnig hafa nýjar klínískar tilraunir gegn Chronic Granulomatous sjúkdómi, þar sem sjúk- dómsmyndin er banvæn bilun í ónæmiskerfi, tekist vel og lofa afar góðu (6). Undanfarið hefur komið í Ijós að fjölhæfni blóðmyndandi stofnfrumna er mun meiri en áður var talið. Vísindamenn hafa birt niðurstöður um farsæla ræktun t.d. lifrarfruma, vöðvafruma, taugafruma o.fl., út frá þeim. Þó eru margar niðurstöður umdeildar eins og síðar verður vikið að. Stofnfrumur úr einræktuðum fósturvísum Vitað er að ósérhæfðar stofnfrumur úr fósturvísum tjá lítið af sameindum sem geta vakið ónæmissvar ef græddar í óskylda lífveru. Hins vegar hefur verið sýnt fram á að við sérhæfingu frumnanna verður aukin tjáning á slíkum sameindum, t.d. MHC 1 (major histocompatibility complex 1) (7). Augljóst er að vegna þessa gæti vefjaígræðsla með utanaðkomandi stofnfrumum eða afleiðum þeirra verið afar hættuleg fyrir sjúklinga nema beitt sér stífri ónæmisbælandi meðferð. Athyglisverð leið til að sneiða hjá þessari hættu er einræktun í Mynd 2. Helstu skref kjarnaflutnings. Modifed from: The living world (3rd ed) by George B. Johnson. lækningaskyni (therapeutic cloning). Markmið þeirrartækni erað fá fram ósérhæfðar stofnfrumur með sama erfðamengi og sjúk- lingurinn. Út frá slíkum frumum væri svo ef til vill hægt að rækta vef sem gæti verið græddur í viðkomandi einstakling enda ígræðslan ekki með fyrrnefndar framandi yfirborðssameindir (8). í grófum dráttum snýst aðferðin um að flytja kjarna úr tvílitna líkamsfrumu sjúklings yfir í kjarnalausa eggfrumu (9) (Sjá mynd 2. og 3.a). Miklar vonir eru bundnar við þessa tækni og má sem dæmi nefna að henni hefur verið beitt með góðum árangri í músum með Parkinson sjúkdóm (10). Árið 2004 tilkynntu kóreskir vísindamenn að í fyrsta skipti hafa verið ræktaðar stofnfrumulínur úr einræktuðum mannafóstur- vísum (11). Rannsóknir sem þessar hafa mætt mikilli mótspyrnu og sem stendur er Bretland eina þjóðin í hinum Vestræna heimi sem heimilar einræktun í lækningaskyní. Vandamálið er að með þessari tækni er það fræðilega mögulegt að koma einræktuðum fósturvísi á blastocyst stigi fyrir í legi konu og fá þannig barn sem er með sama erfðamengi og kjarnagafinn, líkt og var gert með kindina Dollý. Slíkt nefnist einræktun í æxlunarskyni (sjá mynd 3. b). Það kemur því ekki á óvart a rannsóknirnar veki upp hörð viðbrögð enda snerta þær grundvallarspurningar um upphaf lífs- ins og helgi þess. Mynd 3. Tvenns konar tilgangur einræktunar. Leið 3.a) sýnir einræktun í læknisfræðilegum tilgangi en leið 3. b) í æxlunarlegum tilgangi. Modifed from: The living world (3rd ed) by George B. Johnson. Dæmi um möguleg ný meðferðarúrræði Fjöldi sjúkdóma sem hefur verið bendlaður við stofnfrumurann- sóknir er allt að því ævintýralegur. Sem dæmi má nefna insúlín- háða sykursýki, Parkinsonveiki, mænuskaða, Alzheimer sjúk- dóm, króníska hjartakvilla vegna dreps í hjartavöðva o.fl. Allir þessir sjúkdómar eiga það sameiginlegt að starfhæfan vef skortir á einhvern hátt, ýmist vegna sjúkdóma eða slysa. Að auki eru bundnar miklar vonir við framfarir í lyfjaprófunum með því að láta stofnfrumur mynda æskilegan vef in vitro, t.d. lifrarfrumur sem mætti nota til að mæla eitrunaráhrif lyfja (12). James Thomson, sem fyrstur manna ræktaði mannastofnfrumur úr fósturvísum, lagði sérstaka áherslu á lyfjaprófanamöguleika stofnfrumna í fyrirlestri sínum sem haldinn var í hátíðarsal Háskóla íslands sumarið 2003. Algengur sjúkdómur sem hefur talsvert verið rannsakaður með tilliti til stofnfrumna er insúlínháð sykursýki. í sjúkdómsferl- inu skemmast insúlín seytandi beta-frumur sem finnast í Langer- LÆKNANEMINN 2005 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.