Læknaneminn - 01.04.2005, Page 89

Læknaneminn - 01.04.2005, Page 89
Verkefni 3. árs læknanema þó einstaka sjúklingur hafði lágt kalkgildi. Beinvísar flestra voru sömuleiðis eðlilegir. DEXA mælingar sýndu að átta sjúklingar höfðu beinrýrnun en þrír höfðu beinþynningu samkvæmt WHO skilgreiningunni. Samanborið við einstaklinga á sama aldri (Z- gildi) þá voru sex sjúklingarnir með beinþéttni einu staðalfráviki neðan aldursviðmiðana. Umræða: fslenski sjúklinga hópurinn er lítill og því verður að takamarka ályktanir. í heild virðist hópurinn hafa eðlilega bein- umsetningu og beinþéttni en einstaka sjúklingar voru með lægri beinþéttni borið saman við aldursviðmið og einstaka sjúklingar höfðu óeðlilegt kalk, paratýrín og D-vítamín gildi. Ályktun: Rannsókn okkar sem nær yfir alla íslenska sjúklinga með herslismein sýnir að kanna verður beinþéttni þessara sjúk- linga og útiloka að um undirliggjandi orsakir séu að ræða. Ennfremur verður að tryggja sjúklingum með herslismein full- nægjandi beinverndandi meðferð. Lykilorð: Systemic sclerosis, Scleroderma, Osteophorosis. Mynstur klumbufótaaðgerða á íslenskum börnum 1985-2000 Dagur Bjarnason', Halldór Jónsson jr.2, Sigurveig Pétursdóttir2, Höskuldur Baldursson2. 'Læknadeíld Háskóla íslands, "Bæklunarskurðdeild Fossvogi. Inngangur: Klumbufótur (talipes equinovarus adductus) er einn algengasti neðri útlima gallinn sem barnabæklunarlæknar þurfa að glíma við í dag. Meðferð hans getur orðið bæði erfið og ófyr- irsjáanleg. Nýgengi klumbufótar var rannskað hérlendis árið 2002 og reyndist það vera lækkandi á tímabilinu 1985-2000; það var í lok þess orðið 0,9 á hverjar 1000 fæðingar. Þessar niðurstöður eru í samræmi við það sem þekkist í okkar nágrannalöndum. Flest börn hér á landi eru sett í þriggja mánaðar gipsmeðferð, sem fyrst eftir fæðingu, til að reyna rétta aflögunina. Ef slík meðferð skilar ekki ásættanlegum árangri innan þess tímabils er gerð aðgerð. Almennt er talið að u.þ.b 30-70% barnanna þurfi að gangast undir einhverskonar skurð- aðgerð eftir hefðbundna gipsmeðferð. Tilgangur: Kanna fjölda klumbufótaaðgerða á tímabilinu 1985-2000. Kanna hlutfall þeirra sem fóru í aðgerð. Kanna helstu ástæður fyrir aðgerð Kanna kynjamun þeirra sem fóru í aðgerð. Efni og aðferðir: Upplýsingar voru sóttar úr sjúkraskrám þeirra sem höfðu verið lagðir inn vegna aðgerðar 1985-2000 til að fá samanburð við nýgengistímabilið. Kennitala og nöfn voru fundin undir ICD- greininganúmerunum 754,5; 754,7; Q66,0 og Q66,8. Einnig fengnar upplýsingar um, aðgerðardaga, aðgerð- arfjölda, tegund aðgerðar og ástæðu aðgerðar. Tölfræðilegar upplýsingar voru unnar í Microsoft Excel®. Niðurstöður: Fjöldi þeirra sem fóru í aðgerð og voru fæddir 1985-2000 voru 48, 36 drengir (75%) og 12 stúlkur (25%).Miðað við að 222 greindust með klumbufót á sama tíma- bili fóru 21,62% (48) í að minnsta kosti eina aðgerð. Sjötiu og fimm aðgerðir voru framkvæmdar á sama tímabili sem er að meðaltali 4,69 aðgerðir á ári. Af 75 aðgerðum voru 56 (74,66%) gerðar á drengjum en 19 (25,34%) á stúlkum. Drengir þurftu að meðaltali 2,11 aðgerð til að laga aflögunina en stúlkur 1,66 aðgerð. Ályktun: Samkvæmt þessum niðurstöðum fara þrisvar sinnum fleiri drengir (36) en stelpur (12) í aðgerð vegna klumbufótar. Auk þess sem fleiri drengir fara í aðgerð þurfa þeir einnig á fleiri aðgerðum að halda til rétta aflögunina. Heildarhlutfall þeirra sem þurftu á aðgerð að halda er lægra en sambærilegar erlendar tölur. Stigun og meðferð brjóstakrabbameins á íslandi 1995 - 1998 Davíð Þór Þorsteinsson', Þorvaldur Jónsson2, Laufey Tryggvadóttir3, Elínborg Ólafsdóttir3 'Læknadeild Háskóla íslands, "Skurðlækningadeild Landspltala, “Krabbameins- skrá. Inngangur og markmið: Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein kvenna á Vesturlöndum. Margvíslegum upplýs- ingum um konur sem greindust með brjóstakrabbamein á íslandi á árunum 1995-1998 hefur verið safnað í gagnagrunn og er rannsókn þessi úrvinnsla úr þeim gagnagrunni. Markmið rannsóknarinnar var að kanna stigun, rneðferð og afdrif kvenna sem greindust með brjóstakrabbamein á rannsóknartímabilinu. Ennfremur var athugað hvort þessir þættir væru frábrugðnir hjá konum sem greindust við kembileit samanborið við konur sem greindust á annan hátt. Niðurstöður voru bornar saman við sambærilegar athuganir frá Norðurlöndunum og niðurstöður úr eldri íslenskum rannsóknum. Efniviður og aðferðir: Upplýsingum um stærð æxla, eitlamein- vörp og fjarmeinvörp voru flokkaðar samkvæmt TNM kerfi American Joint Committe on Cancer (AJCC) og klínískt sjúk- dómsstig ákvarðað. Meingerð og hormónviðtakastaða æxla voru athuguð. Skurðmeðferðir og viðbótarmeðferðir (e. adjuvant therapy) voru flokkaðar og greindar og kannað var hvort konur höfðu greinst við kembileit eða á annan hátt. Kaplan-Mayer lifunargröf voru reiknuð fyrir þýðið allt og m.t.t. sjúkdómsstigs við greiningu. Eftirfylgni m.t.t. lifunar var a.m.k. 5 ár frá greiningu sjúkdóms. Niðurstöður: Á rannsóknartímabilinu greindust 490 konur með ífarandi brjóstakrabbamein. Meðalaldur var 61 ár, 58% höfðu krabbamein í vinstra brjósti og algengasta staðsetning æxlis var í efri, ytri fjórðungi (55%). Helmingur æxlanna var <20 mm (T1), 36% kvenna hafði eitlameinvörp og 4% fjarmeinvörp við sjúk- dómsgreiningu. Á klínísku stigi I voru 35% sjúklinga, stigi II 48%, LÆKNANEMINN 2005 87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.