Bænavikan - 07.12.1940, Blaðsíða 7
- 5 -
hafa það sem honum ber í þessurn tilfellum? Borgar þú
trúlega tíundina? Ert þú örlátur i hinurn frjcálsu fórnurn
þínum? Hvernig heldur þú hvíldardaginn? Er það dagur
tilgangslauss þvaðurs eða dagur almennra heimsókna., útreiða
sér til skemmtunar, eða dagur bænahalds og rannsóiuia
á Biblíunni? Er það dagur til að heimsækja sjúka, og til
að fá nágranna þína til að fyigja Kristi? Heldur þú
hvíldardaginn eins og þú mundir halda. hann, ef Iiristur
væri á heimili þínu??
Kallaðir út úr Egiptalandi Þegar ísraelsmenn vjru til-
búnir til að fara út úr
Egiptalandi, fór Móse til Faraós og sagði: "Var viljum
fara burt með unglinga vora, með gamalmenni vor, synir
vora og dætur og hjarðir vorar»,; 1 þessu er lærdómur
fyrir okkur. Höfum við börn okkar í okkar eigin skólum?
Drottinn hefur kallað okkur út úr Babýlon inn í Ijós
fagnaðarerindisins. Eigum við að skilja börn okkar eftir
í Babýlon undir áhrifum óguðlegra kennara, sem fara með
villandi, veraldlega lærdóma?
Sumt af okkar trúsystkinum hefur gifts utansafnaðar
mönnurn og konum, en það er ein af leiðunum til að yfirgefa
Guð» Slík sameining er ein af hinum hættulegu snörum
óvinarins. Eoreldrar, hvetjið þið börn ykkar til slíkr-
ar sameiningar?. Ef svo er, þá er ábyrgð ykkar mikiL, og
vissulega mun ábyrgðarskylda ykkar vera alvarleg.
Eelagslíf okkar sýnir allt af hversu við stöndum nálægt
Guði. Þetta kemur illa við þá, sem álíta sig vera meðlimi
í söfnuði Guðs, en sækja samt leikhús og kvikmyndir eða
aðra veraldlega skemmtistaði. Er heimilislíf þitt þannig,
að þú getir hve nær sem er boðið Jesú heim til þín, ef
hann væri hér á jörðinni, eins og hann var fyrir 2000 ár-
um síðan? Og þar sem við erum farin að tala um verald-
lega skeromtistaði, þá gætið ykkar fyrir því, að flytja
ekki anda leikhúsanna inn í fjölskyldur ykkar gegn um út-
varpið. Það getur verið mikil hætta fólgin í því.
Eristilegt líf nær alla leið til klæðnaðarins, sem við
noturn og til fæðunnar, sem við borðum. Postulinn segit:
"Hvort sem þér því etið eða drekkið, eða hvað sero þér
gjörið, þá gjörið það allt Guði til dýrðar," Fylgendur
Krists vilja vitanlega borða og klæða sig þannig, að það