Bændablaðið - 25.05.2023, Qupperneq 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Hugmyndir um vindmyllur á
Íslandi og að nýta vindorku í
auknum mæli eru mjög umdeildar.
Tekist er á um hvort ávinningurinn
af vindorkuverum vegi þyngra en
umhverfisáhrifin sem af hljótast
og um hver þau séu í raun.
Vindurinn er óþrjótandi og þróun
í vindmyllutækni fleygir fram. Áður
en vindmylla á landi er reist þarf að
gera plan fyrir undirstöðu hennar
með tilheyrandi vegarlagningu.
Vindmyllur eru í hæstu stöðu oft
150-200 metra háar og gefa frá sér
hljóð og skuggaflökt þegar spaðarnir
snúast. Vindmyllur verða að standa
þar sem hægt er að koma að aðföngum
og tengja rafmagnsframleiðslu
þeirra við flutningskerfi raforku.
Í vindmyllugarði geta verið tugir
vindmylla.
Meðal þess sem huga þarf að
vegna áforma um vindmyllur eru
áhrif þeirra á náttúru og umhverfi
svo sem gróður, jarðminjar,
menningarminjar, búsvæði dýra
og farleiðir fugla, ásýnd landsins
og áhrif á fólk. Stærstu breyturnar
í umhverfismati vindorkuvera eru
sagðar annars vegar landslags- og
ásýndaráhrif og hins vegar áhrif á
fuglalíf. Vindmyllur breyta ásýnd
landsins en bent hefur verið á að
tiltölulega auðvelt sé að fjarlægja
þær aftur og endurvinna efni þeirra
að hluta. Líftími vindmylla er sagður
að jafnaði vera tveir til þrír áratugir
og er þá jafnvel hægt að endurnýja
þær eða fjarlægja og færa svæðið
sem næst fyrra horfi.
Á Íslandi hefur verið farin sú
leið að nýta vatnsafl og jarðhita til
raforkuframleiðslu en m.a. vegna
knýjandi þarfar um viðbrögð við
umhverfisvá loftslagsbreytinga
er krafa um fleiri leiðir til
raforkuframleiðslu og orkuskipti; úr
jarðefnaeldsneyti í endurnýjanlega
orkugjafa og mikil eftirspurn er eftir
grænni orku.
Framleiðsla vindorku er talin
henta vel með framleiðslu orku úr
vatnsafli, líkt og hér er ráðandi,
þar sem hægt sé að geyma vatn
í lónum þegar vindurinn blæs en
nýta vatnsaflið þegar vindaskilyrði
eru lakari.
Hvað varðar vindmyllur á hafi er
tæknin við þær skemur á veg komin
en á landi. Kostnaðarsamara mun
vera að tengja og keyra orkuver á
sjó en á landi og áhrif á dýralíf og
náttúru talin nokkuð sambærileg og
hjá vindorkuverum á landi.
Hugmyndir um tugi staðsetninga
misstórra vindmyllugarða vítt og
breitt um landið hafa komið á borð
verkefnastjórnar í 3. eða 4. áfanga
Rammaáætlunar á undanförnum
misserum. Framkomnar hugmyndir
eru á ýmsum stigum, flestar aðeins
á frumstigi og alls óvíst um afdrif
margra þeirra. Einkafyrirtæki
standa að flestum hugmyndanna
og ljóst er að margir einkaaðilar,
bæði innlendir og erlendir, hafa
mikinn áhuga á uppbyggingu
vindorkugarða hér á landi. Íslenskt
orkuumhverfi hefur á síðustu
árum verið að færast yfir í meira
markaðsumhverfi og vaxandi
krafa er um að leyfisferli verði
gerð gegnsærri og skilvirkari og
að arður af auðlind vindorkunnar
skili sér til þjóðarinnar burtséð
frá eignarhaldi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Skipulagsstofnun er nú í vinnslu
umhverfismat fyrir 11 vindorkuver
á landsvísu. Orkustofnun hefur fram
að þessu gefið út þrjú virkjunar-
leyfi vindorku: Fyrir Belgsholt í
Hvalfjarðarsveit árið 2011
fyrir allt að 30 kW vindrafstöð,
til Landsvirkjunar 2012 fyrir
rannsóknavindmyllurnar nærri
inntaksmannvirkjum Búrfells-
virkjunar í Skeiða- og Gnúp-
verjahreppi, og 2014 til Biokraft ehf.
fyrir tvær 600 kW vindrafstöðvar í
Þykkvabæ í Rangárþingi ytra.
Vindorkuver séu
í eigu þjóðarinnar
Eins og áður segir er víða verið að
skoða möguleika á vindorkuverum
og deilt um hvort þau eigi rétt á sér.
Rök hníga bæði með og á móti;
meðan sumir telja vindmyllur
hið mesta þarfaþing og gagnlega
viðbót í raforkuframleiðslu eru
aðrir algerlega á öndverðum meiði
og segja fjölmargt sýna fram á
skaðsemi þeirra og að þær séu í raun
óumhverfisvænar þegar grannt sé
skoðað. Enn aðrir segja vindmyllur
ýmist eiga heima fjarri byggðu
bóli og helst á öræfum eða aðeins
á svæðum sem þegar er búið að
raska með mannvirkjum og í grennd
við þéttbýli.
Landsvirkjun reisti árið 2012
tvær vindmyllur í rannsóknarskyni
norðan við Búrfell og áformar
svonefndan Búrfellslund, vindgarð
austan við Sultartangastöð á Þjórsár-
og Tungnársvæðinu. Þar rekur
Landsvirkjun sjö vatnsaflsstöðvar,
og háspennulínur, vegir og ýmis
stoðvirki eru þegar til staðar.
Vindorkuverið var endurhannað með
FRÉTTASKÝRING
Sími 570 9090 • frumherji.is
Komdu með hestakerruna á næs
skoðunarstöð og hafðu hana klára
rir vorið og sumarið.
Vindorka:
Stjórnvöld verði að fara í heildarstefnumörkun
– Varað við að loftslagsumræðu sé stillt upp á móti náttúruvernd
Steinunn Ásmundsdóttir
steinunn@bondi.is
Í skýrslu sem verkfræðistofan Efla vann árið 2020 um tilhögun Hrútsmúlavirkjunar fyrir Gunnbjörn ehf. má finna þessa sýnileikamynd af vindmyllum ofan við Minni-Mástungu í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi. „Ef af þessu verður mun þetta rýra notagildi nærliggjandi jarða og hafa veruleg áhrif á umhverfið í kring,“ segir Jón Marteinn Finnbogason. Mynd / Efla verkfræðistofa
Ég er hlynntur virkjun vindsins og
vindmyllur um alla Evrópu virðast
gefa þokkalega raun ... Við þurfum að bæta
við raforkuframleiðslu, eða það er okkur
allavega sagt. “