Bændablaðið - 25.05.2023, Page 28

Bændablaðið - 25.05.2023, Page 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023 LÍF&STARF Böðmóðsstaðir í Bláskógabyggð: Sexföld stækkun úti- ræktunar grænmetis – Stórt gróðurhús á teikniborðinu „Við vorum mikið í útiræktuninni hér áður fyrr og ansi stór á tímabili í þessu. Svo dalaði þetta, salan var ekki góð og því dró smám saman úr þessu hjá okkur. Síðan varð ákallið alltaf sterkara frá Sölufélagi garðyrkjumanna um meiri framleiðslu og því höfum við spýtt í lófana á síðustu árum,“ segir Auðunn, en sonurinn Gabríel kom nýlega af fullu inn í búreksturinn með nýjar hugmyndir. Spýttu í lófana „Aðallega höfum við verið að rækta blómkál og kínakál. Svo erum við líka með hvítkál, rauðkál og bættum við okkur blöðrukáli fyrir tveimur árum og ætlum að halda því áfram því það er nokkuð spennandi viðbót,“ segir Auðunn, spurður um helstu tegundir í ræktun. „Blöðrukálið myndar höfuð eins og hvítkálið en er allt í litlum blöðrum – og mér skilst að það sé mikið notað til matargerðar í löndum við Miðjarðarhafið til dæmis og kallast víða erlendis „savoy-kál“. Það er bæði notað eldað og ferskt. Á sama tíma bættum við líka við regnbogasalati, sem er nýtt afbrigði af gömlu strandblöðkunni. Hún er talsvert notuð til að vefja utan um annað hráefni í eldamennskunni til dæmis. Það er svolítið spennandi og við höfum fengið góðar viðtökur neytenda við þessum tegundum. Það er flutt töluvert inn af blöðrukáli þannig að við erum svona að vonast til að innlenda framleiðslan ætti að geta gengið vel. Við höfum aðeins verið að þreifa okkur áfram með tegundir sem geta gengið markaðslega.“ Ný útplöntunarvél Ný útplöntunarvél er komin á Böðmóðsstaði, ítölsk að uppruna og um fjögurra milljóna króna fjárfesting, sem Auðunn vonast til að verði mikil hagræðing af. „Við höfum verið að fá inn nýjar vélar, þetta var allt orðið dálítið gamalt hjá okkur. Vélin verður formlega tekin í notkun á næstu dögum. Klakinn er nú bara nýlega farinn úr jörðu hér þannig að það hefur ekki verið mögulegt að planta fyrr út, en við verðum að þessu næstu tvær vikurnar. Núna eru um sex hektarar undir í okkar útiræktun en við vorum komin niður í hektarann fyrir um þremur árum. Við erum með meira núna í sumar heldur en var þegar við vorum hvað mest í þessari útiræktun, sem var sennilega upp úr 1990. Við stefnum að enn frekari aukningu í útiræktuninni, jafnvel 20 prósent á ári.“ Blómabúskapur og ylrækt Auk matjurtaræktunar er veruleg ræktun á sumarblómum á Böðmóðsstöðum og jafnvel stefnt að aukningu þar einnig. „Við höfum alltaf verið í laukblómum, páskaliljum til dæmis, og ein viðbótin enn eru túlípanar. Það fer vel saman að vera með útiræktun og laukblóm því þá nýtast kæligeymslur að fullu. Kálið er farið úr hluta af geymslunum í desember og þá getum við tekið inn lauka. Við vorum líka með ylræktarstöð alveg til 2014, þar sem við vorum með rósir og svo tómata – en þetta datt svo upp fyrir en við héldum laukunum alltaf. Síðan eru komin áform núna um að hefja aftur ylræktun með innkomu Gabríels í reksturinn og við erum að fara í gegnum deiliskipulag með stöð þar sem byrjað yrði á tvö þúsund fermetrum að flatarmáli og við erum að skoða tilboð frá Hollandi um slíkt hús, með möguleikum á stækkun. Allar líkur eru á að þar verði ræktaðir tómatar,“ segir Auðunn. /smh Feðgarnir Auðunn Árnason og Gabríel Auðunsson við nýju útplöntunarvélina á Böðmóðsstöðum. Mest er ræktað af blómkáli og kínakáli á Böðmóðsstöðum en á undanförnum tveimur árum hefur tegundum eins og blöðrukáli og regnbogasalati verið bætt við. Mynd / Aðsend Garðyrkjubændurnir Auðunn Árnason og María C. Wang á Böðmóðsstöðum í Bláskógabyggð eru stórhuga nú í byrjun sumars. Á aðeins tveimur árum hafa þau aukið umfang sitt sexfalt í útiræktun grænmetis. Þá stefna þau á að endurreisa ylræktina á bænum og ætla að byggja tvö þúsund fermetra gróðurhús næsta sumar. Stúdentar fluttir í Sögu – 111 íbúðir í gömlu Bændahöllinni Félagsstofnun stúdenta og Háskóli Íslands hafa unnið að því að breyta Hótel Sögu í kennslurými og stúdentagarða. Í mars fluttu fyrstu stúdentarnir í nýjar íbúðir og er stefnt að því að koma öllum íbúðunum í útleigu fyrir lok maí. Menntavísindasvið Háskóla Íslands flytur höfuðstöðvar sínar í Sögu sumarið 2024. Íbúðirnar voru hannaðar af Félagsstofnun stúdenta (FS) í samstarfi við Andrúm arkitekta, sem hafa yfirumsjón með endurbótum á húsnæðinu að utan sem innan. Innréttingarnar sem voru áður í herbergjunum voru ónýtar og ekki hægt að nýta neitt sem var áður. FS flutti inn nýjar innréttingar smíðaðar í Litáen. FS mun nýta fjórðung hússins og lýkur sínum framkvæmdum núna í maí. Háskóli Íslands hefur yfirráð yfir því sem eftir stendur og er áætlað að öllum endurbótum verði lokið á næstu tveimur árum. Íbúðirnar eru ferns konar, allt frá því að vera 20 fermetra stúdíóíbúðir, upp í 43 fermetra íbúðir. Flestar íbúðirnar eru 25 fermetrar. Stúdentar sem sækja um húsnæði hjá FS geta óskað sérstaklega eftir að flytja á Sögu. Jafnframt geta núverandi leigjendur hjá FS óskað eftir milliflutningi þangað. Áætlað er að kennsla hefjist á haustönn 2024. Mjög fjölbreyttar kennslustofur verða í húsinu sem geta þjálfað tilvonandi kennara í bóklegum fögum og sérhæfðum verklegum greinum. Lágmarksbreytingar verða gerðar á ráðstefnusölum á annarri hæð. Súlnasalur mun að mestu halda sér og mun m.a. nýtast við leiklistar- og tónlistarkennslu. Skrifstofurýmin á þriðju hæð, þar sem höfuðstöðvar Bændasamtaka Íslands voru áður, verða nýtt án breytinga. Samkvæmt upplýsingum frá Framkvæmda- og tæknisviði HÍ er stefnt að því að hafa Grillið sem fjölnota sal. Endanleg útfærsla er ekki komin á hreint, en vilji er fyrir að halda áfram veitingaþjónustu. Húsnæðið heitir ekki lengur Bændahöllin og hefur skiltið á hlið hússins verið fjarlægt. /ÁL Sameiginlegt rými fyrir íbúa á stúdentagörðunum. Búið er að innrétta allar stúdentaíbúðir FS í Sögu. Menntavísindasvið HÍ flytur þangað sumarið 2024. Skráið smáauglýsingar á www.bbl.is

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.