Bændablaðið - 25.05.2023, Qupperneq 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
LÍF&STARF
Böðmóðsstaðir í Bláskógabyggð:
Sexföld stækkun úti-
ræktunar grænmetis
– Stórt gróðurhús á teikniborðinu
„Við vorum mikið í útiræktuninni
hér áður fyrr og ansi stór á tímabili
í þessu. Svo dalaði þetta, salan
var ekki góð og því dró smám
saman úr þessu hjá okkur. Síðan
varð ákallið alltaf sterkara frá
Sölufélagi garðyrkjumanna um
meiri framleiðslu og því höfum við
spýtt í lófana á síðustu árum,“ segir
Auðunn, en sonurinn Gabríel kom
nýlega af fullu inn í búreksturinn
með nýjar hugmyndir.
Spýttu í lófana
„Aðallega höfum við verið að rækta
blómkál og kínakál. Svo erum
við líka með hvítkál, rauðkál og
bættum við okkur blöðrukáli fyrir
tveimur árum og ætlum að halda því
áfram því það er nokkuð spennandi
viðbót,“ segir Auðunn, spurður um
helstu tegundir í ræktun.
„Blöðrukálið myndar höfuð
eins og hvítkálið en er allt í litlum
blöðrum – og mér skilst að það sé
mikið notað til matargerðar í löndum
við Miðjarðarhafið til dæmis og
kallast víða erlendis „savoy-kál“.
Það er bæði notað eldað og ferskt.
Á sama tíma bættum við líka við
regnbogasalati, sem er nýtt afbrigði
af gömlu strandblöðkunni. Hún er
talsvert notuð til að vefja utan um
annað hráefni í eldamennskunni til
dæmis. Það er svolítið spennandi
og við höfum fengið góðar
viðtökur neytenda við þessum
tegundum. Það er flutt töluvert inn
af blöðrukáli þannig að við erum
svona að vonast til að innlenda
framleiðslan ætti að geta gengið
vel. Við höfum aðeins verið að
þreifa okkur áfram með tegundir
sem geta gengið markaðslega.“
Ný útplöntunarvél
Ný útplöntunarvél er komin á
Böðmóðsstaði, ítölsk að uppruna
og um fjögurra milljóna króna
fjárfesting, sem Auðunn vonast til
að verði mikil hagræðing af. „Við
höfum verið að fá inn nýjar vélar,
þetta var allt orðið dálítið gamalt
hjá okkur. Vélin verður formlega
tekin í notkun á næstu dögum.
Klakinn er nú bara nýlega farinn
úr jörðu hér þannig að það hefur
ekki verið mögulegt að planta fyrr
út, en við verðum að þessu næstu
tvær vikurnar.
Núna eru um sex hektarar undir
í okkar útiræktun en við vorum
komin niður í hektarann fyrir um
þremur árum. Við erum með meira
núna í sumar heldur en var þegar
við vorum hvað mest í þessari
útiræktun, sem var sennilega upp
úr 1990. Við stefnum að enn frekari
aukningu í útiræktuninni, jafnvel 20
prósent á ári.“
Blómabúskapur og ylrækt
Auk matjurtaræktunar er veruleg
ræktun á sumarblómum á
Böðmóðsstöðum og jafnvel stefnt
að aukningu þar einnig. „Við
höfum alltaf verið í laukblómum,
páskaliljum til dæmis, og ein
viðbótin enn eru túlípanar. Það fer
vel saman að vera með útiræktun og
laukblóm því þá nýtast kæligeymslur
að fullu. Kálið er farið úr hluta af
geymslunum í desember og þá
getum við tekið inn lauka.
Við vorum líka með ylræktarstöð
alveg til 2014, þar sem við vorum
með rósir og svo tómata – en þetta
datt svo upp fyrir en við héldum
laukunum alltaf. Síðan eru komin
áform núna um að hefja aftur
ylræktun með innkomu Gabríels
í reksturinn og við erum að fara í
gegnum deiliskipulag með stöð
þar sem byrjað yrði á tvö þúsund
fermetrum að flatarmáli og við erum
að skoða tilboð frá Hollandi um slíkt
hús, með möguleikum á stækkun.
Allar líkur eru á að þar verði ræktaðir
tómatar,“ segir Auðunn.
/smh
Feðgarnir Auðunn Árnason og Gabríel Auðunsson við nýju útplöntunarvélina á Böðmóðsstöðum. Mest er ræktað
af blómkáli og kínakáli á Böðmóðsstöðum en á undanförnum tveimur árum hefur tegundum eins og blöðrukáli og
regnbogasalati verið bætt við. Mynd / Aðsend
Garðyrkjubændurnir Auðunn Árnason og María C. Wang á
Böðmóðsstöðum í Bláskógabyggð eru stórhuga nú í byrjun sumars.
Á aðeins tveimur árum hafa þau aukið umfang sitt sexfalt í útiræktun
grænmetis. Þá stefna þau á að endurreisa ylræktina á bænum og ætla
að byggja tvö þúsund fermetra gróðurhús næsta sumar.
Stúdentar fluttir í Sögu
– 111 íbúðir í gömlu Bændahöllinni
Félagsstofnun stúdenta og Háskóli
Íslands hafa unnið að því að
breyta Hótel Sögu í kennslurými
og stúdentagarða. Í mars fluttu
fyrstu stúdentarnir í nýjar íbúðir
og er stefnt að því að koma öllum
íbúðunum í útleigu fyrir lok maí.
Menntavísindasvið Háskóla
Íslands flytur höfuðstöðvar sínar í
Sögu sumarið 2024.
Íbúðirnar voru hannaðar af
Félagsstofnun stúdenta (FS) í
samstarfi við Andrúm arkitekta, sem
hafa yfirumsjón með endurbótum
á húsnæðinu að utan sem innan.
Innréttingarnar sem voru áður í
herbergjunum voru ónýtar og ekki
hægt að nýta neitt sem var áður. FS
flutti inn nýjar innréttingar smíðaðar
í Litáen.
FS mun nýta fjórðung hússins
og lýkur sínum framkvæmdum
núna í maí. Háskóli Íslands hefur
yfirráð yfir því sem eftir stendur og
er áætlað að öllum endurbótum verði
lokið á næstu tveimur árum.
Íbúðirnar eru ferns konar, allt frá
því að vera 20 fermetra stúdíóíbúðir,
upp í 43 fermetra íbúðir. Flestar
íbúðirnar eru 25 fermetrar. Stúdentar
sem sækja um húsnæði hjá FS geta
óskað sérstaklega eftir að flytja á
Sögu. Jafnframt geta núverandi
leigjendur hjá FS óskað eftir
milliflutningi þangað.
Áætlað er að kennsla hefjist á
haustönn 2024. Mjög fjölbreyttar
kennslustofur verða í húsinu
sem geta þjálfað tilvonandi
kennara í bóklegum fögum og
sérhæfðum verklegum greinum.
Lágmarksbreytingar verða gerðar
á ráðstefnusölum á annarri hæð.
Súlnasalur mun að mestu halda sér
og mun m.a. nýtast við leiklistar- og
tónlistarkennslu. Skrifstofurýmin á
þriðju hæð, þar sem höfuðstöðvar
Bændasamtaka Íslands voru áður,
verða nýtt án breytinga.
Samkvæmt upplýsingum frá
Framkvæmda- og tæknisviði HÍ
er stefnt að því að hafa Grillið sem
fjölnota sal. Endanleg útfærsla er
ekki komin á hreint, en vilji er fyrir
að halda áfram veitingaþjónustu.
Húsnæðið heitir ekki lengur
Bændahöllin og hefur skiltið á hlið
hússins verið fjarlægt. /ÁL
Sameiginlegt rými fyrir íbúa á stúdentagörðunum.
Búið er að innrétta allar stúdentaíbúðir
FS í Sögu. Menntavísindasvið HÍ flytur
þangað sumarið 2024.
Skráið smáauglýsingar
á www.bbl.is