Bændablaðið - 25.05.2023, Síða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - 551-5464
www.wendel.is - wendel@wendel.is
GÖNGUBRÝR OG
ÖRYGGISGIRÐINGAR
____________________
FYRIR ÖRYGGI Á
VINNUSVÆÐUM
Ársfundur 2023
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda
▪
▪
▪
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
Lífeyrissjóður bænda - Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík
Sími 563 1300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is
VALLARFOXGRAS
Sáðvörulistinn 2023
Tuukka
I Finnskt yrki
I Vetrarþolið
I Hefur gott fóðurgildi
I Nokkuð uppskerumikið
I Hátt próteininnihald
Tenho
I Harðgert yrki
I Gott vetrarþol
I Orku- og próteininnihald
er nokkuð hátt
Rhonia
I Uppskerumikið
I Vetrarþolið
Hefur þú kynnt þér sáðvörulistann okkar?
Sjá nánar á landstolpi.is
Sögufélag Eyfirðinga var stofnað árið
1971 með það fyrir augum að safna,
skipuleggja og skrá eyfirsk fræði og
alþýðlegan fróðleik heimahaganna og
gefa efnið út.
Um miðjan áttunda áratug festi félagið
kaup á tímaritinu Súlum sem gefið er út
árlega, en í ár eru þar alls sautján greinar,
ríkulega myndskreytt og fjölbreytt efni.
Til að mynda er rætt við listakonuna Rósu
Kristínu Júlíusdóttur, Jón Ingi Cæsarsson
rifjar upp Oddeyri bernskuára sinna og
hinn kunni hestamaður og söngvari, Þór
Sigurðsson, fer með lesendur um fjallgarðinn
mikla sem skilur að Eyjafjörð og Fnjóskadal.
Fjallar listmálarinn Kristinn G.
Jóhannsson um Morgankarlana, Guðrún Sigurðardóttir segir sögu
skólastjórans og baráttukonunnar Halldóru Bjarnadóttur og hestamaðurinn
góðkunni, Jón Ólafur Sigfússon, rekur sögu Hestamannafélagsins Léttis.
Nýir áskrifendur að Súlum eru boðnir velkomnir í síma 863-75299 – eða
í netfangið jhs@bugardur.is. /SP
Tímarit:
Árlegt rit Sögufélags
Eyfirðinga komið út
Kristmundur Karl Björnsson og Fannar Blær Ágústsson tóku textíl-
menntarverkefnið með trompi og merktu sundpokana með uppáhalds
dráttarvélarmerkinu. Mynd / Esther Kjartansdóttir
Fljótsdalshérað:
Massey Ferguson
til skreytinga
Nemendur í 5. bekk í Egils
staðaskóla, saumuðu sér
á dögunum sundpoka í
textílmennt.
Þeir þurftu ekki að velta
lengi fyrir sér hvernig þeir
vildu skreyta sundpokana
sína því ekki kom annað til
greina en að merkja pokana
með vörumerki Massey
Ferguson.
Þeir eru enda sammála
um að það sé langbesta
dráttarvélategundin. Þeir
piltarnir eiga ekki langt að
sækja áhuga sinn og aðdáun
á dráttarvélum, en Fannar
Blær býr á Hjartarstöðum
í Eiðaþinghá og Krist-
mundur Karl er ættaður úr
Hjaltastaðarþinghánni og
hjálpar gjarnan til í búskapnum
hjá ömmu sinni og afa í Laufási.
/sá