Bændablaðið - 25.05.2023, Side 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
LÍF&STARF
Landgræðslan stóð fyrir opnum
kynningar- og samráðsfundi um
verkefnið GróLind í Keldnaholti
á dögunum. Þar fjölluðu þau
Bryndís Marteinsdóttir, Jóhann
Helgi Stefánsson og Rán
Finnsdóttir um stöðu verkefnisins
og næstu skref þess.
Fundurinn var sá áttundi í röð
opinna funda GróLindar en aðrir
voru haldnir á Kirkjubæjarklaustri,
í Ljósvetningabúð, á Egilsstöðum,
Brautarholti, Hvanneyri, Sauðfjár
setrinu á Ströndum og á Blönduósi.
Markmið verkefnisins GróLindar
er að meta og vakta ástand gróður
og jarðvegsauðlinda landsins og
þróa sjálfbærnivísa fyrir nýtingu
auðlindanna. Verkefnið hófst árið
2017 og hefur verið fjármagnað
gegnum búvörusamninga. Í
verkefninu felst að byggja upp
samstarfsnet við landnotendur
og stofnanir, setja fram stöðumat
á ástandi landsins gegnum
fyrirliggjandi gögn, ásamt því að
kortleggja íslensk beitilönd, leggja
út vöktunarreiti og fá landnotendur
til að gera slíkt hið sama.
Útlagning vöktunarreita hefur
staðið yfir frá árinu 2019 en stefnt
er að því að þeir verði 1.000–1.500
talsins. Meðal þess sem er metið
á hverjum stað er gróðurþekja,
jarðvegsrof, vistgerðir, eiginleikar
og tegundir gróðurs. Reitirnir munu
geta gefið vísbendingar um þróun
gróður og jarðvegs þegar fram líða
stundir en áætlað er að hver reitur
verði endurmældur á fimm ára
fresti. Vonir standa til um að notkun
gervitunglamynda og gervigreindar
munu auðvelda ástandsmat í náinni
framtíð, en starfsmenn útskýrðu
framþróun tækninnar og hvernig
hún gæti stutt við mat í jörðu niðri.
Aðferðarfræði við kortlagningu
beitilanda er enn í vinnslu, m.a. með
þátttöku geitfjáreigenda í verkefninu
sem nú eru að teikna inn beitarsvæði.
Við verkefnið bættist svo þriðja
markmiðið árið 2022, að meta
beitarþol lands og setja fram ráðgjöf
varðandi nýtingu lands til beitar,
en sá þáttur verkefnisins er enn
ófjármagnaður.
Mikið magn upplýsinga
til hagnýtingar
Hluti af verkefni GróLindar er
einnig að skoða atferli sauðfjár
í sumarhögum. En síðan 2018
hefur GPS staðsetningarbúnaður
verið hengdur á allmargar kindur
sumarlangt til að fylgjast með
ferðum þeirra. Geta þau gögn
sem þar hafa safnast nýst í ýmis
rannsóknarverkefni.
Gagnvirk vefsjá
Framsögumenn lögðu áherslu
á það mikla gagnamagn sem
verkefnið hefur viðað að sér og
að öll gögnin verði aðgengileg.
Nefndu þau rannsóknarverkefni á
borð við TRAPP og Tundrasalad
sem nýta sér gögnin. Í gegnum
vefsíðu GróLindar er m.a. hægt að
nálgast þær upplýsingar sem þegar
hafa fengist gegnum landvöktun.
Stefnt er að endurbættri heimasíðu
og gagnvirkri vefsjá og vonast er
til að hagnýting gagna muni leiða
til betri þekkingar á gróður og
jarðvegsauðlind Íslands.
Síðasti kynningarfundur
GróLindar verður haldinn
miðvikudaginn 31. maí kl. 14
gegnum vefinn. Hægt er að nálgast
nánari upplýsingar um hann á
vefsíðunni grolind.is /ghp
Útlagning vöktunarreita hefur staðið yfir frá árinu 2019 en stefnt er að því
að þeir verði 1.000–1.500 talsins. Hér má sjá einn slíkan reit.
GróLind:
Vakta gróður og jarðveg
Rán Finnsdóttir, Bryndís Marteinsdóttir og Jóhann Helgi Stefánsson starfa
hjá Landgræðslunni að verkefninu GróLind. Myndir / GróLind
Atferli sauðfjár í sumarhögum er skoðuð með hjálp GPS búnaðar.
Meðal þess sem vaktað er gróður-
þekja og tegundir gróðurs.
Annan hvern fimmtudag fara mæðgurnar Björk Konráðsdóttir og hin
eins árs gamla Heiðdís Vár Unnarsdóttir í göngutúr á bensínstöðina við
Stóragerði í Reykjavík til að ná eintaki af Bændablaðinu um leið og það
kemur út. „Ég má til með að senda ykkur þessa skemmtilegu mynd af
einum yngsta lesanda Bændablaðsins.
Heiðdís Vár er nýorðin eins árs og lætur ekki deigan síga á meðan
hún bíður eftir leikskólaplássi eins og svo mörg önnur börn á höfuð
borgarsvæðinu. Hún missir ekki af Bændablaðinu, enda ýmislegt fróðlegt
og skemmtilegt þar að finna,“ skrifar Björk, móðir hennar. /ghp
Mynd / Björk Konráðsdóttir
Lengi býr að fyrstu gerð