Bændablaðið - 25.05.2023, Page 44

Bændablaðið - 25.05.2023, Page 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023 LÍF&STARF Landgræðslan stóð fyrir opnum kynningar- og samráðsfundi um verkefnið GróLind í Keldnaholti á dögunum. Þar fjölluðu þau Bryndís Marteinsdóttir, Jóhann Helgi Stefánsson og Rán Finnsdóttir um stöðu verkefnisins og næstu skref þess. Fundurinn var sá áttundi í röð opinna funda GróLindar en aðrir voru haldnir á Kirkjubæjarklaustri, í Ljósvetningabúð, á Egilsstöðum, Brautarholti, Hvanneyri, Sauðfjár­ setrinu á Ströndum og á Blönduósi. Markmið verkefnisins GróLindar er að meta og vakta ástand gróður­ og jarðvegsauðlinda landsins og þróa sjálfbærnivísa fyrir nýtingu auðlindanna. Verkefnið hófst árið 2017 og hefur verið fjármagnað gegnum búvörusamninga. Í verkefninu felst að byggja upp samstarfsnet við landnotendur og stofnanir, setja fram stöðumat á ástandi landsins gegnum fyrirliggjandi gögn, ásamt því að kortleggja íslensk beitilönd, leggja út vöktunarreiti og fá landnotendur til að gera slíkt hið sama. Útlagning vöktunarreita hefur staðið yfir frá árinu 2019 en stefnt er að því að þeir verði 1.000–1.500 talsins. Meðal þess sem er metið á hverjum stað er gróðurþekja, jarðvegsrof, vistgerðir, eiginleikar og tegundir gróðurs. Reitirnir munu geta gefið vísbendingar um þróun gróður­ og jarðvegs þegar fram líða stundir en áætlað er að hver reitur verði endurmældur á fimm ára fresti. Vonir standa til um að notkun gervitunglamynda og gervigreindar munu auðvelda ástandsmat í náinni framtíð, en starfsmenn útskýrðu framþróun tækninnar og hvernig hún gæti stutt við mat í jörðu niðri. Aðferðarfræði við kortlagningu beitilanda er enn í vinnslu, m.a. með þátttöku geitfjáreigenda í verkefninu sem nú eru að teikna inn beitarsvæði. Við verkefnið bættist svo þriðja markmiðið árið 2022, að meta beitarþol lands og setja fram ráðgjöf varðandi nýtingu lands til beitar, en sá þáttur verkefnisins er enn ófjármagnaður. Mikið magn upplýsinga til hagnýtingar Hluti af verkefni GróLindar er einnig að skoða atferli sauðfjár í sumarhögum. En síðan 2018 hefur GPS staðsetningarbúnaður verið hengdur á allmargar kindur sumarlangt til að fylgjast með ferðum þeirra. Geta þau gögn sem þar hafa safnast nýst í ýmis rannsóknarverkefni. Gagnvirk vefsjá Framsögumenn lögðu áherslu á það mikla gagnamagn sem verkefnið hefur viðað að sér og að öll gögnin verði aðgengileg. Nefndu þau rannsóknarverkefni á borð við TRAPP og Tundrasalad sem nýta sér gögnin. Í gegnum vefsíðu GróLindar er m.a. hægt að nálgast þær upplýsingar sem þegar hafa fengist gegnum landvöktun. Stefnt er að endurbættri heimasíðu og gagnvirkri vefsjá og vonast er til að hagnýting gagna muni leiða til betri þekkingar á gróður­ og jarðvegsauðlind Íslands. Síðasti kynningarfundur GróLindar verður haldinn miðvikudaginn 31. maí kl. 14 gegnum vefinn. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um hann á vefsíðunni grolind.is /ghp Útlagning vöktunarreita hefur staðið yfir frá árinu 2019 en stefnt er að því að þeir verði 1.000–1.500 talsins. Hér má sjá einn slíkan reit. GróLind: Vakta gróður og jarðveg Rán Finnsdóttir, Bryndís Marteinsdóttir og Jóhann Helgi Stefánsson starfa hjá Landgræðslunni að verkefninu GróLind. Myndir / GróLind Atferli sauðfjár í sumarhögum er skoðuð með hjálp GPS búnaðar. Meðal þess sem vaktað er gróður- þekja og tegundir gróðurs. Annan hvern fimmtudag fara mæðgurnar Björk Konráðsdóttir og hin eins árs gamla Heiðdís Vár Unnarsdóttir í göngutúr á bensínstöðina við Stóragerði í Reykjavík til að ná eintaki af Bændablaðinu um leið og það kemur út. „Ég má til með að senda ykkur þessa skemmtilegu mynd af einum yngsta lesanda Bændablaðsins. Heiðdís Vár er nýorðin eins árs og lætur ekki deigan síga á meðan hún bíður eftir leikskólaplássi eins og svo mörg önnur börn á höfuð­ borgarsvæðinu. Hún missir ekki af Bændablaðinu, enda ýmislegt fróðlegt og skemmtilegt þar að finna,“ skrifar Björk, móðir hennar. /ghp Mynd / Björk Konráðsdóttir Lengi býr að fyrstu gerð

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.