Bændablaðið - 25.05.2023, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Góð smurning
Komdu við á næstu Olísstöð
Góð smurolía eykur endingu véla og dregur úr sliti
og kostnaði við rekstur. Við eigum mikið úrval frá
Texaco, Castrol og Cargo Oil fyrir öll hugsanleg tæki.
Skógrækt:
Fullvinnsla afurða
í Heiðmörk
Skógræktarfélag Reykjavíkur starfrækir einu viðarvinnsluna á
suðvesturhorninu. Starfsmaður hefur verið ráðinn í fullt starf til
að vinna timbur úr grisjunarviði. Afurðirnar hafa farið í gólffjalir,
bekki, skilti, stíga innréttingar o.fl.
Eftir því sem skógurinn
í Heiðmörk eldist stækka
trén og afurðirnar verða
verðmætari. Sífellt stærra
hlutfall viðarins nýtist í
framleiðslu dýrari afurða,
svo sem borðvið, í stað
eldiviðar og kurls. Samtals
eru tvö til þrjú ársverk sem
fara í grisjun og vinnslu í
Heiðmörk. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu
frá Skógræktarfélagi
Reykjavíkur.
Talsverð verðmæti
Í viðarvinnslunni er bæði
stórviðarsög og band-
flettisög. Stórviðarsögin
er notuð til að fletta
trjábolum í borðvið.
Bandflettisögin hentar
fyrir sértækari verkefni,
svo sem vinnslu á mjög
sverum eða óreglulegum trjábolum.
Að auki við að nota tré úr Heiðmörk hefur vinnslan tekið á móti
timbri sem fallið hefur til við grisjun eða vegna framkvæmda á
höfuðborgarsvæðinu. Oft er það reyniviður eða alaskaösp. Talsvert
verðmæti geta verið í slíku timbri.
Hvergi er flatarmál skógarins minnkað, heldur fellur allt hráefnið til
við sjálfbæra grisjun. Skóglendið er víða þétt og nauðsynlegt að grisja til
að trén geti vaxið og dafnað. Hæfileg grisjun skapar aukið rými og birtu
í skóginum og þar með betri skilyrði til jafnari vaxtar fyrir þau tré sem
eftir standa. Vegna þess hve hægt trén vaxa hérlendis hafa þau eiginleika
sem gera þau eftirsóknarverð í smíðavið.
Nauðsynlegt að grisja reglulega
Í Heiðmörk eru um 270 hektarar af eldri barrskógum, sem eru að meðaltali
50 ára gamlir. Þá eru 140 hektarar af um það bil helmingi yngri barrskógum
og 440 hektarar af blandskógum. Birkiskógar eru á um eitt þúsund
hekturum til viðbótar. Víða hefur skógurinn náð þeim aldri að trén eru
farin að vaxa nokkuð hratt og nauðsynlegt að sinna grisjun reglulega.
Rúmlega fjórir hektarar voru grisjaðir í Heiðmörk í fyrra.
Á annað hundrað rúmmetra af timbri féll til við grisjunina og var meðal
annars notað í borðvið, bolvið og eldivið. Nú er verið að vinna efni í
timburborð fyrir Perlufestina, göngustíg umhverfis Perluna. Það er
stærsta pöntun á vörum Skógræktarfélags Reykjavíkur til þessa – alls
15 kílómetrar af borðviði. Hátt í þrjú þúsund lengdarmetrar af borð- og
bolvið voru framleiddir í Heiðmörk á síðasta ári. /ÁL
Bandflettisög í viðarvinnslunni í Heiðmörk.
Mynd / Skógræktarfélag Reykjavíkur
Bændablaðið kemur næst út
8. júní
Sauðfjárrekstur
Til sölu eða leigu sauðfjárrekstur
með allt að 300 ærgildum
í Sýrnesi Þingeyjarsveit.
Nánari upplýsingar Ragnar 8476325
eða syrnes@gmail.com