Bændablaðið - 25.05.2023, Qupperneq 45

Bændablaðið - 25.05.2023, Qupperneq 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023 Góð smurning Komdu við á næstu Olísstöð Góð smurolía eykur endingu véla og dregur úr sliti og kostnaði við rekstur. Við eigum mikið úrval frá Texaco, Castrol og Cargo Oil fyrir öll hugsanleg tæki. Skógrækt: Fullvinnsla afurða í Heiðmörk Skógræktarfélag Reykjavíkur starfrækir einu viðarvinnsluna á suðvesturhorninu. Starfsmaður hefur verið ráðinn í fullt starf til að vinna timbur úr grisjunarviði. Afurðirnar hafa farið í gólffjalir, bekki, skilti, stíga innréttingar o.fl. Eftir því sem skógurinn í Heiðmörk eldist stækka trén og afurðirnar verða verðmætari. Sífellt stærra hlutfall viðarins nýtist í framleiðslu dýrari afurða, svo sem borðvið, í stað eldiviðar og kurls. Samtals eru tvö til þrjú ársverk sem fara í grisjun og vinnslu í Heiðmörk. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Talsverð verðmæti Í viðarvinnslunni er bæði stórviðarsög og band- flettisög. Stórviðarsögin er notuð til að fletta trjábolum í borðvið. Bandflettisögin hentar fyrir sértækari verkefni, svo sem vinnslu á mjög sverum eða óreglulegum trjábolum. Að auki við að nota tré úr Heiðmörk hefur vinnslan tekið á móti timbri sem fallið hefur til við grisjun eða vegna framkvæmda á höfuðborgarsvæðinu. Oft er það reyniviður eða alaskaösp. Talsvert verðmæti geta verið í slíku timbri. Hvergi er flatarmál skógarins minnkað, heldur fellur allt hráefnið til við sjálfbæra grisjun. Skóglendið er víða þétt og nauðsynlegt að grisja til að trén geti vaxið og dafnað. Hæfileg grisjun skapar aukið rými og birtu í skóginum og þar með betri skilyrði til jafnari vaxtar fyrir þau tré sem eftir standa. Vegna þess hve hægt trén vaxa hérlendis hafa þau eiginleika sem gera þau eftirsóknarverð í smíðavið. Nauðsynlegt að grisja reglulega Í Heiðmörk eru um 270 hektarar af eldri barrskógum, sem eru að meðaltali 50 ára gamlir. Þá eru 140 hektarar af um það bil helmingi yngri barrskógum og 440 hektarar af blandskógum. Birkiskógar eru á um eitt þúsund hekturum til viðbótar. Víða hefur skógurinn náð þeim aldri að trén eru farin að vaxa nokkuð hratt og nauðsynlegt að sinna grisjun reglulega. Rúmlega fjórir hektarar voru grisjaðir í Heiðmörk í fyrra. Á annað hundrað rúmmetra af timbri féll til við grisjunina og var meðal annars notað í borðvið, bolvið og eldivið. Nú er verið að vinna efni í timburborð fyrir Perlufestina, göngustíg umhverfis Perluna. Það er stærsta pöntun á vörum Skógræktarfélags Reykjavíkur til þessa – alls 15 kílómetrar af borðviði. Hátt í þrjú þúsund lengdarmetrar af borð- og bolvið voru framleiddir í Heiðmörk á síðasta ári. /ÁL Bandflettisög í viðarvinnslunni í Heiðmörk. Mynd / Skógræktarfélag Reykjavíkur Bændablaðið kemur næst út 8. júní Sauðfjárrekstur Til sölu eða leigu sauðfjárrekstur með allt að 300 ærgildum í Sýrnesi Þingeyjarsveit. Nánari upplýsingar Ragnar 8476325 eða syrnes@gmail.com
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.