Bændablaðið - 25.05.2023, Page 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
„Ég fór á vettvang í Laugargilið
og athugaði alla staðhætti og
möguleika. Ég fór aðra ferð og
fékk þá með mér jafnaldra minn
og vin, Björn Guðmundsson frá
Gíslakoti. Hann hafði ekki minni
áhuga fyrir sundi en ég og höfðum
við búið saman og æft sund veturinn
áður í Reykjavík. Hann hvatti mig
vel að hefjast handa og nú varð ég
ákveðinn. Ég óttaðist að ekki yrði
tekið mark á því sem ég segði um
slíkar framkvæmdir og hélt ég því
næsta dag á yfirreið um héraðið og
réðst ekki fyrst á garðinn þar sem
hann var lægstur, heldur hélt beint til
stórbóndans Ólafs á Þorvaldseyri og
sagði honum málavexti og bað hann
að koma með mér og líta á aðstæður.
Það var ekki að fara í geitarhús að
leita ullar að koma til hans, hann
lagði frá sér verkfæri í hasti og
fylgdi mér á vettvang. Af meðfæddu
verkfræðieðli sínu sá hann fljótt að
hugmynd mín gat staðist. „Þið ljúkið
þessu verki á einum degi ef þú færð
nógu marga menn,“ sagði Ólafur. Nú
var ég ekki lengur hikandi við að
hefja þetta starf, ég ákvað að halda
yfirreið minni um sveitina áfram,“
skýrði Björn J. Andrésson frá.
Svo fór að Ólafur á Eyri fylgdi
Birni á þrjá bæi til að heyra
undirtektir. Björn kom á öll heimili
sem á leið hans lágu og hafði tal af
öllum æsku- og unglingsmönnum.
Alls staðar fékk Björn góðar
undirtektir með að hjálpa til við að
útbúa sundlaug innan við Seljavelli.
Launin voru endurgjaldslaus
sundkennsla að verkinu loknu.
Verkið vannst ekki nógu fljótt
Björn minnist þess þegar hann beið
liðsafnaðar á túninu við Selkot að
menn nálguðust úr ýmsum áttum, alls
25 manns sem tóku þátt í verkinu.
Minnist hann þess ekki að hafa
verið jafn gagntekinn af tilhlökkun
og spenningi í nokkurri ferð sem
hann hafði farið. Síðasta spölinn að
laugarstaðnum var gengið. Svo lýsir
Björn þegar hafist var handa:
„Um staðarval fyrir laugina var
aðeins eitt að ræða, urðu því engar
tafir vegna ræðuhalda um það og
hófst því verkið umsvifalaust. Vel
var haldið áfram svo lengi sem
dagurinn entist og var þá greftri
lokið en eftir var að hlaða innan
með grassnyddum og leiða vatnið.
Á yfirreið minni deginum áður hafði
ég sagt að dagur mundi nægja til
þessara framkvæmda en aurinn
var harður, samanþjappaður og all
stórgrýttur. Með handverkfærum
einum vannst verkið ekki nógu fljótt.
Ég fékk að heyra að ekki stæðist mín
áætlun og til voru þeir sem ekki voru
ákveðnir að koma aftur að morgni.
Voru þeir með getgátur um að laugin
mundi leka og svo framvegis. Þetta
var á laugardagskvöldi. Ég man ég
sagði við þá sem voru óákveðnir:
„Í dag er virkur
dagur og feður ykkar
og húsbændur hafa
gefið ykkur frí frá
nauðsynlegum störfum
heima, á morgun er
sunnudagur sem þið
eigið sjálfir, það væri
því óverjandi skömm
fyrir hvern sem ekki
vildi leggja fram vinnu
á sínum eigin frídegi til
að ljúka þessu verki næsta dag.“ Að
svo mæltu var einróma samþykkt
að hver og einn kæmi aftur næsta
morgun svo verkinu yrði þá haldið
áfram. Sama blíðviðri hélst og var
unnið af jafnmiklum áhuga sem
fyrri daginn. Um kvöldið var lokið
við að hlaða veggina að innan og
þekja laugina grassverði. Þá var
líka búið að klappa skorur í mjúka
og sundursoðna bergfláa ofan við í
brattanum og heita vatnið látið renna
þar að lauginni.“
Laugin gædd dularmætti
Eftir tveggja daga stranga vinnu
tók volgt vatn að streyma ofan
í laugina en að sögn Björns var
magnþrungin stund í kvöldhúminu
þegar allur hópurinn stillti sér
upp á laugarvegginn og söng „Þú
bláfjallageimur með heiðjöklahring.“
„Þessi laug var ekki stórbrotin,
hún var aðeins 9 metra löng og 4-5
m víð en hún var frá upphafi gædd
dularmætti sem réði úrslitum um að
þarna má líta aðlaðandi steinsteypta
sundlaug í fögru landslagi sem
hvergi á sinn líka hér á landi,“
minntist Björn og bætti við:
„Daginn áður en námskeið skildi
hefjast í lauginni fórum við Björn
Guðmundsson í Gíslakoti inn að
henni. Þegar þangað kom var hún
nærri tóm, aðeins botnhylur af
vatni. Þetta voru mikil vonbrigði,
við höfðum ætlað að vígja laugina
með sundi. Hann hafði áður lært það
í Reykjavík og var að mig minnir
sá eini sem kunni sund í sveitinni
annar en ég.”
Vegna vonbrigðanna ákváðu þeir
félagar að gera sitt besta til að þarna
yrði gerð steinsteypt laug.
Sprikluðu buslandi í allar áttir
Þrátt fyrir að lítið vatn væri í
lauginni stakk Björn upp á því við
viðstadda að prófa að leggjast í
hana til að finna þá vellíðan sem
því fylgir að hvílast í volgu vatni.
Flestir tóku hann á orðinu og þá
gerðist merkilegur hlutur.
„Nú skeður það sem enginn hafði
búist við, vatnið fer allt í einu að
stíga í lauginni og þó það væri með
fullum moldarlit hafði það hrífandi
áhrif á ærslafullan lýðinn, sem ofan
í lauginni spriklaði buslandi í allar
áttir. Það sem olli hækkun vatnsins
var að þegar það var orðið gruggugt,
þétti það veggina sjálfkrafa um
leið og það síaðist út í sandinn á
meðan laugin var að fyllast, sem
gekk vel. Var nú stjórnlaust fjör
og gleðskapur allsráðandi og segja
mætti að glaumur og gleði svifi yfir
vötnum. Menn voru bæði hrifnir
og undrandi. Þeir höfðu aldei áður
fundið hvernig var að koma í volgt
vatn. Líklega hefur þó enginn í
þessum hópi verið ánægðari og
sælli en ég, minn langþráði draumur
um að til yrði sundlaug á svæðinu
var orðinn að veruleika og öllum
mínum áhyggjum um aðstæður til
sundkennslu aflétt.“
Vinna við steinsteypta laug hefst
Nú var ekki eftir neinu að bíða og
hóf Björn námskeið með kennslu
í sundi og 25 menn tóku þátt. Þó
að sund hafi verið aðalnámsgreinin
sagði hann einnig til í fleiri
íþróttagreinum. Búið var í tjöldum
meðan á námskeiðinu stóð. Kaffi
var lagað við heita uppsprettulind
á staðnum.
„Áhuginn að læra sund
yfirgnæfði allt annað. Eftir sjö daga
kennslu voru allir komnir á flot og
skein óblandinn fagnaðarljómi af
hverju andliti yfir þeim árangri sem
hver og einn hafði náð. Í kjölfarið
var ákveðið að mynda félag og
daginn eftir fyrsta námskeiðið tók
Sigurður Guðjónsson í Hlíð sig
til og leitaði eftir samskotum til
sundlaugarbyggingar og reið hann
um sveitina í þessum tilgangi,“
minnist Björn.
LÍF&STARF
Einstök sundlaug
– 100 ára afmæli Seljavallalaugar fagnað á árinu
Í sumar verður 100 ára afmæli Seljavallalaugarinnar fagnað. Aðdragandi
að byggingu Seljavallalaugar árið 1923 má segja að hafi hafist eftir að
Björn J. Andrésson sótti sundnámskeið í rúman mánuð til Reykjavíkur
sem fulltrúi sveitarinnar. Þegar Björn kom til baka var honum ofarlega
í huga að útbúa bráðabirgðasundlaug, nýta heita uppsprettuna í
Laugarárgili innan við bæinn Seljavelli í Austur-Eyjafjallasveit.
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is
Myndin er tekin um 1954 þegar unnið var að lagfæringum
og nýtt klósett byggt sem stóð stutt.
Ein af elstu myndum sem til eru af Seljavallalaug, hér hefur Andrés Pálsson stungið sér til sunds en hann var faðir
Björns J. Andréssonar, sem þessi grein byggir á en Björn stóð á sínum tíma fyrir byggingu laugarinnar.
Oft hefur verið torvelt að komast að lauginni en hugsjónafólk hefur í gegnum tíðina staðið að viðhaldi hennar. Þó hefur lítið verið gert
viðhaldslega séð frá árinu 2005, sem er synd því um mjög merkilegt mannvirki er að ræða.
Björn J.
Andrésson.