Bændablaðið - 25.05.2023, Page 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Landsliðið
í dælum
Eldsneytis- og efnadælur,
tunnudælur, mælar,
slöngur og fylgihlutir.
LANDVÉLAR | SMIÐJUVEGI 66 | 580 5800 | LANDVELAR.IS
LAUSNIR Á LAGER
Samþykkt - búið að skila
BÆJARHRAUNI 12
220 HAFNARFIRÐI
S. 555 4800
Hafnargata 52
260 Reykjanesbæ
S. 421 7510
Hrísmýri 7
800 Selfossi
S. 482 4200
Furuvöllum 15
600 Akureyri
S. 535 9085
Sólvangi 5
700 Egilsstöðum
S. 471 1244
STÓRVERSLUN STÓRVERSLUN
BÍLDSHÖFÐA 12
110 REYKJAVÍK
S. 535 9000
Skoðaðu vöruúrvalið á www.bilanaust.is
BRENDERUP KERRUR
Það var mikið verk eftir gosið í Eyjafjallajökli árið 2010 að moka öskunni upp
úr lauginni. Margir hjálpuðust að við þá erfiðu vinnu en Suðurverk sendi á
sinn kostnað Caterpillar-gröfu af stærstu gerð á staðinn sem mokaði 1180
tonnum upp úr lauginni.
Þann 23. desember árið 1922 var
Íþróttafélag Eyfellinga stofnað og
samþykkt að næsta vor yrði byggð
steinsteypt sundlaug. Félagsmenn
skyldu vinna endurgjaldslaust
að byggingu laugarinnar. Á
þessum fundi var upplýst að
samskotafjárloforð næmi kr. 764,00,
því var eingöngu safnað meðal yngri
manna sveitarinnar og bændur allir
friðhelgir við þá söfnun, en 85
einstaklingar, piltar og stúlkur, stóðu
að þessari upphæð. Margir voru svo
ungir að þeir höfðu aldrei á ævi sinni
séð pening fyrir vinnu sína. Framlag
hvers og eins var frá 1 kr. upp í 30
kr. Þetta samskotafé var það eina
sem félagið hafði í fyrirhugaðar
framkvæmdir.
Nokkrum dögum eftir stofnfund
var sýslunefnd Rangárvallasýslu
sent bréf frá félaginu og sótt var
um styrk til þessara framkvæmda.
Því var synjað en eins og til að
bæta fyrir það tók sýslumaður sig
til og sótti um styrk til Alþingis,
bæði til sundlaugarbyggingarinnar
og til sundkennslu við væntanlega
laug. Hálfu öðru ári síðar afhenti
sýslumaður íþróttafélaginu 70 kr. frá
ríkissjóði Íslands sem veittan styrk.
Vinna við laugina tók níu mánuði
og braust út mikil sigurgleði meðal
manna þegar því lauk.“
Byggt á frásögn
Björns J. Andréssonar
Unnin dagsverk við að byggja steinsteypta Seljavallalaug voru rúmlega
jafnmörg og dagar eins árs eru og var aldur þátttakenda á milli 11 og 46
ára. Virðingarvert var fyrir alla bændur sveitarinnar hvað takmarkalausan
stuðnig þeir veittu félaginu með því að leyfa sínum heimamönnum að mæta
til vinnu hvenær sem þeir voru boðaðir.