Bændablaðið - 25.05.2023, Page 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
+354 4601706
sigti og auðvelt að tæma
lítill rafmagnskostnaður
stöðug hreyfing
án notkunar í allt að 160 daga
engin siturlögn og lyktarlaust
UMHVERFISVÆN
WWW.HAGVÍS.IS
YFIR 20 ÁRA REYNSLA Á NORÐURLÖNDUM
SKÓLPHREINSIBÚNAÐUR FYRIR SUMARBÚSTAÐINN HEIMILI OG FYRIRTÆKI
Hreinsistöðin uppfyllir ströngustu kröfur sem gerðar eru á Evrópska
efnahagssvæðinu
Hreinsar fosfór og köfnunarefni
hreinsun á frárennsli, böðum, salernum, vöskum og þvotta- og
uppþvottavélum
-ENGI N SITURLÖGN
HEINSISTÖÐ
FramtíðFortíð
Midea Varmadæla
Arctic Series
- Loft í vatn -
Nýtt útlit - tekur lítið gólfpláss
Innbyggður neystluvatnstankur
Wifi tenging - hægt að stjórna og fylgjast
með úr snjalltæki
Hafðu samband við okkur og við
finnum réttu dæluna fyrir þig
Frábær verð
Umhverfisvænn
kælimiðill
Allt að 80% orkusparnaður
www.kaelitaekni.is
Smiðjuvellir 9 300 Akranes 430 6600 akur@akur.is
AKURShús - timbureiningahús
íslensk hönnun
& framleiðsla
Afhent uppsett á byggingarstað eða í einingum
– Við allra hæfi –
„
Kynntu þér
húsabæklinginn
okkar á akur.is
og fáðu
verðáætlun í
húsið þitt
Margar gerðir og
stærðir
Ágúst Sigurðsson, sem er nýráðinn fagstjóri á búfjárræktar- og þjónustusviði
RML með starfsstöð á Selfossi. Mynd / Aðsend
Ágúst Sigurðsson á Kirkjubæ á
Rangárvöllum hefur nýlega tekið
við starfi fagstjóra í búfjárrækt og
þjónustu hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins (RML).
Hann er með starfsaðstöðu hjá
Búnaðarsambandi Suðurlands á
Selfossi. Ágúst var áður sveitarstjóri
Rangárþings ytra og þar áður rektor
Landbúnaðarháskóla Íslands.
„Þessa dagana er ég glaðbeittur
„starfsmaður í þjálfun“. Ég er að
kynna mér verkefnin og finna út
hverjar áherslurnar eru, hver gerir
hvað og hvernig skipulagið er á
vinnulagi og slíku. Ég þekki mörg
verkefnin sem unnið er að og stóran
hluta starfsfólksins þekki ég úr
fyrri störfum mínum eða af öðrum
vettvangi. Ég veit því að verkefnin
eru áhugaverð og samstarfsfólkið
öflugt og starfið leggst því vel í
mig,“ segir hann.
Ágúst er búvísindamenntaður
með doktorspróf í búfjárerfðafræði
frá SLU í Svíþjóð. „Ég þrífst á því
að sinna krefjandi og fjölbreyttum
störfum og láta til mín taka eftir
bestu getu án þess að gerast mjög
þaulsætinn í hverju verkefni fyrir
sig. Margt af því sem ég hef gert um
ævina tengist með einum eða öðrum
hætti landbúnaði og því þekki ég það
svið ágætlega.“
Áfram þarf fólk að borða
Þegar Ágúst er spurður um stöðu
landbúnaðarins heilt yfir stendur
ekki á svari. „Tækifærin liggja
víða og kannski nú sem sjaldan
fyrr. Almennt er ekki skortur á
áhuga fyrir verkefnum í landbúnaði
og tækni og vísindum fleygir fram.
Áfram þarf fólk að borða og spurn
eftir þjónustu sem sprettur fram í
landbúnaði er svo sannarlega til
staðar. Þetta stendur með okkur.
Jafnvægi hinna ýmsu þátta þarf hins
vegar að vera til staðar svo framtíðin
haldist björt í landbúnaði. Nýting
auðlinda þarf að vera skynsamleg og
afrakstur starfseminnar hjá hverjum
og einum að vera nægur. Þar liggur
stóra verkefnið,“ segir Ágúst.
Gagnagrunnar
stórkostleg auðlind
Ágúst segir að það séu mjög
spennandi tímar fram undan þegar
búfjárræktin er annars vegar.
„Aðferðir og tækni sem voru á
hugmyndastigi fyrir tiltölulega
fáum árum síðan eru nú komin á
stig nýtingar og framkvæmda.
Nýting erfðamengjaúrvals og
greining arfgerða sem tengjast alls
kyns verðmætum og áhugaverðum
eiginleikum er nú staðreynd, líka hér
við okkar aðstæður. Gagnagrunnar
okkar um íslenskt búfé eru
stórkostleg auðlind sem þarf að
halda áfram þétt utan um og efla á
alla lund. Áhugi á búfjárrækt er mjög
almennur meðal íslenskra bænda,
það er mikilvægt. Það sem þarf að
hafa í huga hvað varðar árangur í
flestum greinum búfjárræktar er
að ræktunarstarfið er í rauninni
samstarfsverkefni, ef einum gengur
vel þá gagnast það öllum að verulegu
marki,“ segir Ágúst. Hann bætir við
að það skipti miklu að gagnasöfnun
sé traust og almenn og að allir taki
þátt í framkvæmd ræktunarstarfsins
og leggi sitt af mörkum. Nauðsynleg
tækifæri hvers og eins til að skara
fram úr séu engu að síður til staðar.
/mhh
Glaðbeittur starfs-
maður í þjálfun