Bændablaðið - 25.05.2023, Qupperneq 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
2010:
Skógrækt sem hluti af loftslags-
lausninni efldist. Engin trjátegund
á „Rauða listanum“ hefur
fundist útdauð á síðustu tveimur
áratugum. Blaðamaður Dagens
Nyheder, skrifaði langan pistil
sem blés lífi í skógarumræðuna.
Umhverfissamtök umbreyttust
í aðgerðasamtök þar sem þau
fylgdust með öllu mögulegu og
kærðu. Hið vaxandi samstarf tíunda
áratugarins fór þverrandi.
2020:
Umhverfissamtök bretta upp
ermarnar, mikill vill meira. Pistlar
blaðanna eru orðnir drungalegri og
örvæntingarfyllri. Líflaus skógur,
íkveikjuhætta, ört hlýnandi veröld
og skógariðnaðurinn er sem opið
skotmark í nafni loftslagsmála.
Er skógrækt orðin fallin spýta?
Já, hvert erum við að fara?
Vísindin og venjur hafa þróast
yfir árin, sem og markmiðin/
áfangastaðurinn. Þrátt fyrir svartsýni
unglingsáranna er ég nú bjartsýn.
Ef við getum lent á Mars verðum
við líka að geta skapað sjálfbæra
framtíð án jarðefnaeldsneytis.
Skógurinn gegnir lykilhlutverki ef
við ætlum að ná þeim áfangastað.
Skógurinn einn og sér kemur okkur
samt ekki alla leið. Nú er kominn
tími kjörinna stjórnmálamanna að
leggja línurnar. Það vantar enn
yfirsýnina og skýr markmið. Réttlátt
og skynsamlegt jafnvægi. Það þarf
að forgangsraða um hvernig skal
nýta skógana.
Bentu á áfangastaðinn og lát
heyra – „við erum að fara þangað“.
Deilið greininni!
Strúktúr ehf | www.struktur. is | struktur@struktur. is | Bæjaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími: 588 6640
Strúktúr ehf | www.struktur. is | struktur@struktur. is | Bæjaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími: 588 6640
Fjölbreyttar lausnir
fyrir hús & nýbyggingar
Strúktúr er með
lausnina fyrir húsið
Allt sem við hugsum, allt sem við gerum,
snýst um þig okkar viðskiptavin
Einingahús CLT
krosslímt tré
Z Strúktúrhús
Gluggar & hurðir
Utanhússklæðningar
Límtré
Stálgrindarhús
Yleiningar
Dúkar & þéttiborðar
Við erum alltaf
klár í spjallið
Hafðu samband við okkur
Strúktúr_ISC000762_220x305.indd 1 10-03-2022 10:58:11
Miðhrauni 6, 210 Garðabæ, s. 544 8900
m@malmsteypa.is malmsteypa.is
M
yn
d:
B
öð
va
r
Le
ós
Rör og fittings
Viðgerðarefni
Þorgrímsfótur
Festihulsur
Ídráttarrör
Topphringir
Trjáristar
Drenrör
Brunnkarmar/lok
Sandföng/ristar
Rennustokkar/ristar
Spindillok
Kerfislok
Tengistykki
Húsbrunnar
Kúluristar
Götubrunnar
Tengibrunnar
xxx.
Marianne Eriksson.
Frá þýðanda
Merkilegt að lesa að raddir þarlendra
náttúruverndarsinna ganga út á að
halda sem fastast í skógarlands-
lagið en um leið koma í veg fyrir
hefðbundnar timburnytjar, sem
er mjög sérstakt því einmitt með-
höndlun skóga gerir þá betur í stakk
búna til loftslagsbindingar en þeir
sem fá að vaxa villtir.
Alltaf má læra, jafnvel hvort að
öðru og í lok síðustu aldar virðist
það hafa viðgengist ágætlega þar
ytra. Svo gerðist eitthvað, einhver
óútskýrð heift, ef ég skildi þetta rétt.
Á meðan íslenskir trjáfaðmarar leita
nærveru trjáa í tilgangi jarðtengingar,
eru sænskir trjáfaðmarar að taka
afstöðu gegn skógarhöggi á skógi
sem þó var ræktaður til nytja. Af
hverju er ég að þýða sænskan pistil
um yfirlit sænskrar skógræktarsögu?
Það er til að varpa ljósi á að
nágrannar okkar, frændur og
frænkur í Skandinavíu, hafa um
árabil séð kosti skóga sem alvöru
búbót við hefðbundinn landbúnað
og síðar loftslagmál. Það vill svo
skemmtilega til að landbúnaður og
loftslagsmál eru einnig brýnustu mál
Bændasamtaka Íslands Stjórnvöld
geta valið úr kostum morgun dagsins,
en hvernig verður skrifað um þau í
annálum framtíðar?