Bændablaðið - 25.05.2023, Blaðsíða 56

Bændablaðið - 25.05.2023, Blaðsíða 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023 Þegar ekið var um sveitir landsins nú í byrjun maímánaðar mátti víða sjá í stafla af pokum með tilbúnum áburði á sveitabæjum. Það e r auðvitað frábært að bændur hafi aðgang að lausnum til að tryggja sér fóður fyrir búpening. En því miður er þetta ekki besta lausnin sem þeir gátu valið. Hún er bæði dýr, ósjálfbær og grefur undan líffræðilegum fjölbreytileika jarðarinnar, hvort sem hann er á yfirborðinu, rétt undir yfirborði eða úti í sjó. Allt líf á þessari jörð byggir á þessum líffræðilega fjölbreytileika. Vistkerfin láta á sjá Tilbúinn áburður er oft og tíðum einnig orsök þess að nota þarf eiturefni í ræktun þar sem hann veikir mótstöðuafl jarðvegslífsins gegn sjúkdómum í plöntum. Þá er gripið til eiturefna. Talið er að í einni teskeið af góðum ræktunarjarðvegi geti fundist allt að 7 milljarðar lífvera. Nú eru dæmi um að aðeins 20% sé eftir af þessum lífverum í slíkum ræktunarjarðvegi, og að 40% allra skordýrategunda í heiminum fari mjög fækkandi. Þá er þriðjungur allra skordýrategunda í útrýmingarhættu. Dauð svæði í heimshöfunum hafa myndast vegna ofauðgunar á næringarefnum sem runnið hafa frá t.d landbúnaði. Þau svæði eru talin vera á um 415 stöðum víðs vegar um heiminn. Það lítur ekki vel út. Hefðbundinn landbúnaður losar mikið af gróðurhúsalofttegundum Talið er að allt að helmingur gróður- húsalofttegunda í hefðbundnum landbúnaði sé komið frá tilbúnum áburði, þ.e. frá vinnslu hans, flutningi og notkun. Þá hindrar tilbúinn áburður eðlilega bindingu á koltvísýring úr andrúmslofti vegna þess að jarðvegur tapar náttúrulegum eiginleika sínum til að binda og geyma kolefni til langs tíma í ræktun. Rangar aðferðir í landbúnaði ógna fæðuöryggi Það er rétt hjá bændum að það sprettur lítið eða ekkert þar sem notkun á tilbúnum áburði er sleppt eftir langtímanotkun. Það segir okkur mikið um tilbúna áburðinn og hversu ótækur og gallaður hann er þegar kemur að sjálfbærni. Bændur neyðast til að nota hann aftur og aftur vegna þess að þeir hafa þegar skaðað hinn líffræðilega fjölbreytileika jarðvegsins. Þeir eru fastir í vítahring. Það væri ansi illa komið fyrir bændum og þjóðinni ef það lokaðist fyrir framleiðslu og aðföng á tilbúnum áburði. Hvað yrði um fæðuöryggið? Einu bændurnir sem haldið gætu sömu uppskeru væru bændur sem ekki eru háðir tilbúnum áburði. Koltvísýringur leggur grunninn að uppskeru í lífrænni ræktun Binding koltvísýrings úr andrúms- lofti með plöntum leggur grunninn og er fótstykkið í lífrænni ræktun. Plöntur taka niður koltvísýring úr andrúmsloftinu fyrir tilstuðlan ljóstillífunar. Plönturnar breyta koltvísýringnum í sykur sem leiðist niður í rætur plantna og þaðan út í jarðveginn þar sem þessi sykur er tekinn upp sem næring fyrir það jarðvegslíf sem þar býr. Jarðvegslífið hannar og vinnur í staðinn þá næringu til plöntunnar sem hún hefur þörf fyrir á hverjum tíma. Með réttum lífrænum áburði, belgjurtum, og góðum ræktunar- og beitaraðferðum, getum við örvað og aukið uppskeru og bindingu kolefnis í jarðveg. Því meira líf í jarðveginum því meiri uppskera, því meiri dauði, þvi meiri binding kolefnis. Virkjum dýrmætustu auðlindina Með því að taka upp nýtingu á dýrmætustu auðlindinni geta bændur sparað sér mikil útgjöld án þess að minnka framleiðslu. Að breyta um ræktunarstefnu er ígildi nýsköpunar. Hér þarf nýjan hugsunarhátt. Hann er nauð- synlegur til að allt það orðaglamur um sjálfbærni, fæðuöryggi og loftslagslausnir sem fjallað er um á ráðstefnum um landbúnað þessi misserin, fái einhverja merkingu. Segjum sem svo að allir rækt- endur á Íslandi hefðu farið í lífræna ræktun þegar sú bylgjan gekk yfir landið fyrir um 25–30 árum.Þá væri uppskeruframlegð lífrænnar ræktunar hjá þessum bændum í dag, væru allir ræktendur lífrænir, jafnvirði 6–7 milljarðar á ári. Bændur geta enn þá sótt sér þessa fjármuni til að setja í eigin vasa og það ættu þeir að stefna að. Um hvaða fjárhæðir er hér um að ræða vita bændur best sjálfir. Farið varlega af stað Það fer mikið eftir forsögunni hvers vænta megi í uppskeru að tilbúnum áburði slepptum. Tún sem alltaf hefur fengið búfjáráburð meðfram tilbúnum áburði er mun betur sett en tún sem aldrei hefur fengið búfjáráburð eða annan lífrænan áburð. Þeir sem eru með búfjárrækt og vilja minnka notkun á tilbúnum áburði ættu að byrja á þeim spildum sem best hefur verið hlúð að með búfjáráburði í gegnum tíðina. Þá væri ekki verra að viðkomandi spildur væru með smára. Byrja á því að hætta notkun á tilbúnum áburði á t.d. 3–4 ha og bera þar á góðan skammt af búfjáráburði t.d. 40–50 t. á h. af mykju beint í ginið á gróandanum. Hugsanlega getur orðið um eitthvert uppskerufall fyrstu árin á þessum spildum en í besta falli sama uppskera en það fer eftir ástandi hins líffræðilega fjölbreytileika jarðvegsins. Sparnaður í áburði er þá 2–3 t. en uppskera á svipuðu róli og áður á öðrum spildum. Ekki spara tilbúinn áburð á aðrar spildur nema gera aðrar ráðstafanir í staðinn, t.d. að nota lífrænan áburð. Að lokum óska ég bændum öllum gleðilegs sumars og vona að ykkur auðnist að narta svolítið í þá fjármuni sem framleiðendur áburðar ætla sjálfum sér. Kristján Oddsson, bóndi að Neðra Hálsi í Kjós. Höfundur hefur stundað ræktun í 29 ár án tilbúins áburðar. Kristján Oddsson. Þegar plönturætur taka ekki upp öll næringarefni úr áburði losnar gróðurhúsalofttegundin N2O, eða hláturgas, sem er 300 sinnum verri gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur. 75% köfnunarefnis sem borið er á tapast í ræktun. Það fer upp í andrúmsloftið sem hláturgas eða skolast út í ár og vötn og eða út í sjó. Heimild: E. Verhoeven et al/California Agriculture 2017/Knowable Magazine Beitarhaginn orðin vel beitarfær 19. maí 2023. Enginn tilbúinn áburður í 29 ár. Mynd / KO LESENDARÝNI Lífrænt Ísland: Dýrmætasta auðlindin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.