Bændablaðið - 25.05.2023, Qupperneq 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Þegar ekið var um sveitir landsins
nú í byrjun maímánaðar mátti
víða sjá í stafla af pokum með
tilbúnum áburði á sveitabæjum.
Það e r
auðvitað frábært
að bændur
hafi aðgang að
lausnum til að
tryggja sér fóður
fyrir búpening.
En því miður
er þetta ekki
besta lausnin
sem þeir gátu valið. Hún er bæði
dýr, ósjálfbær og grefur undan
líffræðilegum fjölbreytileika
jarðarinnar, hvort sem hann er á
yfirborðinu, rétt undir yfirborði eða
úti í sjó. Allt líf á þessari jörð byggir
á þessum líffræðilega fjölbreytileika.
Vistkerfin láta á sjá
Tilbúinn áburður er oft og tíðum
einnig orsök þess að nota þarf
eiturefni í ræktun þar sem hann
veikir mótstöðuafl jarðvegslífsins
gegn sjúkdómum í plöntum. Þá er
gripið til eiturefna.
Talið er að í einni teskeið af góðum
ræktunarjarðvegi geti fundist allt að
7 milljarðar lífvera. Nú eru dæmi um
að aðeins 20% sé eftir af þessum
lífverum í slíkum ræktunarjarðvegi,
og að 40% allra skordýrategunda í
heiminum fari mjög fækkandi. Þá
er þriðjungur allra skordýrategunda
í útrýmingarhættu. Dauð svæði í
heimshöfunum hafa myndast vegna
ofauðgunar á næringarefnum sem
runnið hafa frá t.d landbúnaði.
Þau svæði eru talin vera á um 415
stöðum víðs vegar um heiminn. Það
lítur ekki vel út.
Hefðbundinn landbúnaður losar
mikið af gróðurhúsalofttegundum
Talið er að allt að helmingur gróður-
húsalofttegunda í hefðbundnum
landbúnaði sé komið frá tilbúnum
áburði, þ.e. frá vinnslu hans,
flutningi og notkun. Þá hindrar
tilbúinn áburður eðlilega bindingu
á koltvísýring úr andrúmslofti
vegna þess að jarðvegur tapar
náttúrulegum eiginleika sínum til
að binda og geyma kolefni til langs
tíma í ræktun.
Rangar aðferðir í landbúnaði
ógna fæðuöryggi
Það er rétt hjá bændum að það
sprettur lítið eða ekkert þar sem
notkun á tilbúnum áburði er sleppt
eftir langtímanotkun. Það segir
okkur mikið um tilbúna áburðinn
og hversu ótækur og gallaður hann
er þegar kemur að sjálfbærni.
Bændur neyðast til að nota hann
aftur og aftur vegna þess að þeir
hafa þegar skaðað hinn líffræðilega
fjölbreytileika jarðvegsins. Þeir eru
fastir í vítahring. Það væri ansi illa
komið fyrir bændum og þjóðinni
ef það lokaðist fyrir framleiðslu og
aðföng á tilbúnum áburði. Hvað yrði
um fæðuöryggið? Einu bændurnir
sem haldið gætu sömu uppskeru
væru bændur sem ekki eru háðir
tilbúnum áburði.
Koltvísýringur leggur grunninn
að uppskeru í lífrænni ræktun
Binding koltvísýrings úr andrúms-
lofti með plöntum leggur grunninn
og er fótstykkið í lífrænni ræktun.
Plöntur taka niður koltvísýring
úr andrúmsloftinu fyrir tilstuðlan
ljóstillífunar. Plönturnar breyta
koltvísýringnum í sykur sem leiðist
niður í rætur plantna og þaðan út í
jarðveginn þar sem þessi sykur er
tekinn upp sem næring fyrir það
jarðvegslíf sem þar býr.
Jarðvegslífið hannar og vinnur
í staðinn þá næringu til plöntunnar
sem hún hefur þörf fyrir á hverjum
tíma. Með réttum lífrænum áburði,
belgjurtum, og góðum ræktunar- og
beitaraðferðum, getum við örvað og
aukið uppskeru og bindingu kolefnis
í jarðveg. Því meira líf í jarðveginum
því meiri uppskera, því meiri dauði,
þvi meiri binding kolefnis.
Virkjum dýrmætustu auðlindina
Með því að taka upp nýtingu
á dýrmætustu auðlindinni geta
bændur sparað sér mikil útgjöld
án þess að minnka framleiðslu.
Að breyta um ræktunarstefnu
er ígildi nýsköpunar. Hér þarf
nýjan hugsunarhátt. Hann er nauð-
synlegur til að allt það orðaglamur
um sjálfbærni, fæðuöryggi og
loftslagslausnir sem fjallað er um
á ráðstefnum um landbúnað þessi
misserin, fái einhverja merkingu.
Segjum sem svo að allir rækt-
endur á Íslandi hefðu farið í lífræna
ræktun þegar sú bylgjan gekk yfir
landið fyrir um 25–30 árum.Þá
væri uppskeruframlegð lífrænnar
ræktunar hjá þessum bændum í
dag, væru allir ræktendur lífrænir,
jafnvirði 6–7 milljarðar á ári.
Bændur geta enn þá sótt sér þessa
fjármuni til að setja í eigin vasa
og það ættu þeir að stefna að. Um
hvaða fjárhæðir er hér um að ræða
vita bændur best sjálfir.
Farið varlega af stað
Það fer mikið eftir forsögunni hvers
vænta megi í uppskeru að tilbúnum
áburði slepptum.
Tún sem alltaf hefur fengið
búfjáráburð meðfram tilbúnum
áburði er mun betur sett en tún sem
aldrei hefur fengið búfjáráburð eða
annan lífrænan áburð.
Þeir sem eru með búfjárrækt og
vilja minnka notkun á tilbúnum
áburði ættu að byrja á þeim spildum
sem best hefur verið hlúð að með
búfjáráburði í gegnum tíðina. Þá
væri ekki verra að viðkomandi
spildur væru með smára. Byrja á
því að hætta notkun á tilbúnum
áburði á t.d. 3–4 ha og bera þar á
góðan skammt af búfjáráburði t.d.
40–50 t. á h. af mykju beint í ginið
á gróandanum.
Hugsanlega getur orðið um
eitthvert uppskerufall fyrstu árin á
þessum spildum en í besta falli sama
uppskera en það fer eftir ástandi
hins líffræðilega fjölbreytileika
jarðvegsins.
Sparnaður í áburði er þá 2–3
t. en uppskera á svipuðu róli og
áður á öðrum spildum. Ekki spara
tilbúinn áburð á aðrar spildur nema
gera aðrar ráðstafanir í staðinn, t.d.
að nota lífrænan áburð.
Að lokum óska ég bændum
öllum gleðilegs sumars og vona
að ykkur auðnist að narta svolítið
í þá fjármuni sem framleiðendur
áburðar ætla sjálfum sér.
Kristján Oddsson, bóndi að
Neðra Hálsi í Kjós.
Höfundur hefur stundað ræktun
í 29 ár án tilbúins áburðar.
Kristján Oddsson.
Þegar plönturætur taka ekki upp öll næringarefni úr áburði losnar gróðurhúsalofttegundin N2O, eða hláturgas, sem
er 300 sinnum verri gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur. 75% köfnunarefnis sem borið er á tapast í ræktun. Það
fer upp í andrúmsloftið sem hláturgas eða skolast út í ár og vötn og eða út í sjó.
Heimild: E. Verhoeven et al/California Agriculture 2017/Knowable Magazine
Beitarhaginn orðin vel beitarfær 19. maí 2023. Enginn tilbúinn áburður í 29 ár.
Mynd / KO
LESENDARÝNI
Lífrænt Ísland:
Dýrmætasta auðlindin