Bændablaðið - 25.05.2023, Blaðsíða 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Streymishitarar
20% afsláttur
Slepptu hitakútnum
Fáðu strax heitt vatn
Kristján G. Gíslason ehf
Verslaðu á www.kgg.is
LÁGAFELL VERSLUN OG BYGGINGAR EHF
VÖLUTEIGUR 4, 270 MOSFELLSBÆR
WWW.LAGAFELLVERSLUN.IS
846 7014 – 895 4152
Sérstyrkt fyrir íslenskar aðstæður - 24 ára reynsla á Íslandi
SERRALUX
Gróðurhús og yndisreitir í miklu úrvali
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
GLI ehf • gli.is • s:8994870
Tufftruck rafhjólbörur 4x4
8 vinnustundir á batterí , innbyggt hleðslutæki
Fjölbreyttur aukabúnaður ,val um fínmunstruð dekk.
Drífur 25° fullhlaðin, mótorbremsa.
Verð frá 1.159.400 m/vsk
OG VINNUM ÚR ÞEIM
LAUSNIR
TÖKUM AÐ OKKUR VERKEFNI
VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði
Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is
Nýsköpun véla og eldsneytis
– Fróðleikur um orkumál og orkuskipti – 8. hluti
Flókin bylting í framleiðslu
orkubera er hafin. Hvers konar
hleðslutæki eru á markaði?
Rafeldsneyti
Rafeldsneyti er orkugjafi sem er
framleiddur með endurnýjanlegri
raforku, annaðhvort gas eða vökvi,
og veldur ekki viðbótarlosun
kolefnisgasa við notkun. Hugtakið
eldsneyti er gamalt og getur verið
misvísandi vegna þess að orkugjafar
nútímans virka bæði við bruna og án
bruna. Við notum hugtakið engu að
síður. Grunnefni í gerð rafeldsneytis
eru vetni, og koldíoxíð (koltvíildi,
kolsýringur – efnasamband kolefnis
og súrefnis).
Nú til dags er mest horft til vetnis,
metans, alkóhóls og líf- rænna efna sem
líkjast olíuættuðu brennsluefni. Eitt af
því sem er ólíkt með jarðefnaeldsneyti
á vélar og rafeldsneyti er að sumt af
því síðarnefnda er gas (eða þjappað
gas sem vökvi) með mjög lágu
geymsluhitastigi (í hörkufrosti).
Orkuberi
Hugtakið orkuberi nær yfir marga
orkumiðla sem eru búnir til á
framleiðslustað eða berast þaðan á
viðkomustað til frekari vinnslu eða
til notenda – t.d. olíuhreinsunarstöð
eða vetnisölustöð eða iðjuveri þar
sem rafeldsneyti er framleitt. Kol og
dísilolía hafa lengi verið orkuberar
t.d. í húshitun og á bíla og smám
saman mun bera æ meira á vetni
og ammoníaki eða lífdísli sem
orkuberum. Hlutföll ólíkra orkubera
við full orkuskipti koma senn í ljós.
Vetnisknúnar vélar
Brunavélar eða rafmótorar (algengast)
sem knúnir eru vetni. Það er jafnan
framleitt með því að kljúfa vatn
með raforku. Vetni er hægt að
geyma háþrýst sem gas eða fljótandi
á geymum eða í eins konar afar
fíngerðum málm„svömpum“ en líka
sem hluta ammoníaks.
Ammoníak helst sem eitruð loft-
tegund (gas) við venjulegar
útiaðstæður og er efnablanda vetnis
og niturs (köfnunarefnis). Nitur er
meginfrumefnið í loftinu og þaðan
getur efnið fengist til framleiðslu
ammoníaks ásamt framleiddu vetni.
Ammoníak sem vetnisberi er haft til
reiðu á sérstökum geymum. Unnt er
að losa um vetnið og skila nitrinu til
baka. Meirihluti vetnisbíla eru rafbílar
með efnarafölum (fuel cells) þar sem
vetni sameinast súrefni. Rafeindir
losna og mynda rafstraum á rafmótora
og vatsgufu að auki. Aðrir vetnisbílar
nýta bruna vetnis.
Lífeldsneyti
Lífeldsneyti er úr lífrænum efnum,
sem framleitt er með endurnýjanlegri
orku úr föstum lífmassa (t.d.
plönuleifum) eða lífrænum vökva,
eða það er náttúrulegt gas (t.d.
metan úr sífrera, gömlum jarðklaka).
Unnt er að framleiða eldsneytisolíu
svipaða dísilolíu en einnig þotu/
skrúfuþotueldsneyti í þessum
flokki eldsneytis.
Rafhleðslutæki
Rafhleðslutæki eru afar algeng, allt frá
hleðslutækjum fyrir síma til öflugra
hleðslustöðva fyrir þung ökutæki,
vinnuvélar og skiparafmagn, svo
dæmi séu nefnd. Enn er mest um
hleðslustöðvar (stundum nefndar
orkustöðvar) við heimili og ýmiss
konar atvinnubyggingar eða opin-
berar byggingar, auk stöðva hjá
orkusölufyrirtækjum.
Heimahleðslustöð gæti verið með
hleðslugetu (afli) frá 4 til 8 kW (eins
fasa stöð) upp í 10 til 20 kW (þriggja
fasa stöð).
Hraðhleðslustöðvar fyrir íbúðar-
hús eru af stærðargráðu 30 til 50 kW
og hraðhleðslustöðvar orkusala t.d.
100 til 225 kW.
Mikil eftirspurn er þegar til orðin
eftir hleðslustöðvum um allt land.
Þeir sem kaupa hleðslustöð fyrir
íbúðarhúsnæði fá fulla endurgreiðslu
virðisaukaskatts af kaupverði og
vegna vinnu við uppsetningu.
/ATG
Hleðslustöðvar rísa vítt og breitt um landð og nægja framfarirnar næstum
til að halda í við rafbílavæðinguna en ljóst að fjölgun stöðva á almannafæri
mætti vera hraðari. Mynd / Isavia