Bændablaðið - 25.05.2023, Qupperneq 61
61Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Félag garðplöntuframleiðenda
fékk styrk til að endurgera
gagnagrunn um garðplöntur
sem framleiddar eru og seldar á
Íslandi. Þessi gagnagrunnur hefur
verið hluti af heimasíðu félagsins
og hefur komið öllum sem hyggja
á ræktun að góðum notum.
Í Samkomulagi um breytingar
á samningi um starfsskilyrði
garðyrkjuafurða er gert ráð fyrir
fjármunum til loftslagsverkefna.
Félag garðplöntuframleiðenda
hefur verið með ýmis átaksverkefni
í gangi til að vekja athygli á hlut
garðræktar í kolefnisbindingu.
Fólk verður sífellt meðvitaðra
um jákvæð áhrif gróðurs og grænna
svæða á líkamlega og andlega
heilsu. Gróður gegnir lykilhlutverki
við kolefnisbindingu, því er ræktun
almennings eitt af því sem hver og
einn getur lagt af mörkum við að
hafa jákvæð áhrif í loftslagsmálum.
Félagið sótti um og fékk styrk frá
þessu verkefni til að vinna að því
að koma upplýsingum um ræktun
á framfæri við almenning.
Á heimasíðu félagsins
www.gardplontur.is er safn
af fróðleiksgreinum sem hver
og einn getur nýtt sér við sína
ræktun. Hluti af heimasíðunni er
gagnagrunnurinn Plöntuleit (www.
leita.gardplontur.is). Þar er að finna
kynningu á fjölbreyttum tegundum
garðplantna sem ræktaðar eru
á Íslandi, sjá af þeim myndir og
fræðast um við hvaða skilyrði þær
henta. Þarna á fólk að geta fundið
hvaða tré og runnar eru í boði, sem
og skrautplöntur í garða eða mat og
kryddjurtir. Plöntuleitargrunnurinn
er hugsaður til að nýtast jafnt
kaupendum sem seljendum við að
fræðast og fræða um hvað best er
gera á hverjum stað.
Vinna við nýja og uppfærða
útgáfu af plöntuleitargrunninum
hófst árið 2021. Gögnin voru sett
upp í nýtt umhverfi til að gera
þau aðgengilegri og að myndir af
plöntunum nytu sín betur. Pétur
Pétursson, starfsmaður TRS, sá um
tæknivinnuna, Guðrún Þórðardóttir
og Drífa Björk Jónsdóttir sáu um
að yfirfæra gögnin og leiðrétta
þau, flestar myndirnar eru úr
söfnum Guðríðar Helgadóttur og
Hólmfríðar A. Sigurðardóttur.
Það hefur verið stórkostlegt að
fá að nota myndir frá þessum
heiðurskonum því góð mynd segir
meira en 1000 orð. Yfirstjórn
verkefnisins hefur verið á höndum
stjórnarmanna í félaginu, þeirra
Guðmundar Vernharðssonar og
Helgu Rögnu Pálsdóttur.
Aðstandendur verkefnisins
eru mjög stoltir af afurðinni og
vonast til að sem flestir nýti sér
Plöntuleitina.
Stjórn Félags garðplöntu-
framleiðenda.
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Til sölu 68,5m2 iðnaðarbil
til afhendingar strax
í Breiðamýri 3, Selfossi.
Allar nánari upplýsingar veitir
Loftur Erlingsson, löggiltur fasteignasali
S: 896 9565, loftur@husfasteign.is
Varahlu�r í Bobcat
Plöntuleit Félags garðplöntu-
framleiðenda uppfærð
Helleborus orientalis – Fösturós.
Ligularia sibirica - Dísarskjöldur.