Bændablaðið - 25.05.2023, Side 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Þegar þetta er ritað lekur slyddan
niður rúðuna og fátt minnir á
vor, sumar og grillmat sem sam-
kvæmt almanakinu ætti að vera
umfjöllunarefnið núna í lok maí.
Við skulum samt ekki örvænta,
það kemur á endanum og þá burstum
við rykið af grillinu og njótum
okkar í sólinni. En þar sem útsýnið
hefur þau áhrif að vetrarmatur er
mér ofarlega í huga læt ég vaða á
hægeldaðan og bragðgóðan rétt sem
á svo sem líka við í íslensku vori
eins og það gerist best, rétt slefandi
í tveggja stafa tölu yfir hádaginn.
Einn af vanmetnustu bitum
lambsins, sem og annarra ferfætlinga,
er bógur sem of fáir hafa prófað að
matreiða. Til að gera góðan mat úr
bóg þarf aðallega ögn af þolinmæði
og skipulagi. Best er að bógurinn
fái langan eldunartíma á lágum hita.
Þá verður niðurstaðan sannkölluð
veislumáltíð.
Hér er mælt með 5 tímum að
lágmarki fyrir lambabóg, en ekki
er síðra að gefa bógnum 7-8 klst.
í ofninum. Í skipulaginu þýðir það
að með smá undirbúningi deginum
áður en hann er eldaður má brúna og
krydda kjötið og skella svo í ofninn
áður en fólk fer til vinnu að morgni
og eiga svo von á góðu þegar heim
er komið.
Meðlætið er einfalt og fljóteldað,
og má einnig undirbúa það deginum
áður að stórum hluta.
Hægeldaður lambabógur með
maís, smælki, grilluðu flatbrauði
og hrásalati
Fyrir 4 pers.
Tími 5 ½ klst.
1,5 kg lambabógur
2 msk. matarolía
Salt & pipar
1 kanilstöng
1 msk. reykt paprikuduft
1 msk. broddkúmen
1 msk. fennelfræ
2 kvistar ferskt timían
1,5 l vatn
1 l lambasoð
1 stk. hvítlauksgeiri
1 msk. púðursykur
1 stk. laukur
5 stk. sveppir
½ sítróna
Stillið ofninn á 90 °C. Nuddið
bóginn með salti og brúnið á vel
heitri pönnu með olíunni á háum
hita í 3-5 mínútur á hvorri hlið.
Setjið bóginn í djúpa ofnskúffu,
nuddið kryddinu á og bætið við
restinni af því sem fram kemur í
uppskriftinni, breiðið yfir með
álpappír (eða setjið í ofnpott með
loki) og eldið í a.m.k. 5 klst. En ekki
er síðra að teygja eldunartímann í
7-8 klst.
Ristaður maís
4 stk. foreldaðir maísstönglar
100 g smjör
50 ml olía
íslenskt sjávarsalt
Penslið maísstönglana með
olíunni og stráið salti yfir. Grillið
eða steikið á pönnu, vel á öllum
hliðum, áður en stöngullinn er
smurður með smjörinu og borinn
fram.
Sósa
Steikingarsafi
50 g kalt smjör
Sigtið safann úr ofnskúffunni
í pott þegar lambakjötið hefur
verið eldað, haldið kjötinu heitu.
Fleytið megnið af fitunni af og látið
vökvann sjóða niður um þriðjung.
Takið pottinn af eldavélinni og
pískið smjöri saman við í litlum
bitum, bragðbætið með salti og
pipar og sítrónusafa eða ediksslettu
eftir smekk.
Ofnbakað smælki með sýrðum rjóma
300 g kartöflusmælki
2 hvítlauksgeirar
50 g ólífuolía
íslenskt sjávarsalt
100 ml sýrður rjómi
10 ml sítrónusafi
1 tsk. hunang
Hitið ofn í 180 °C. Skolið
kartöflurnar og þerrið. Sjóðið þar
til eru mjúkar, sigtið vatnið frá og
setjið kartöflur í ofnskúffu. Bætið
við olíu, hvítlauk og salti eftir
smekk. Bakið í 25 mínútur. Blandið
sýrða rjómanum, sítrónusafanum
og hunanginu saman í skál
og bragðbætið með salti eftir
smekk. Veltið kartöflunum upp úr
blöndunni og berið fram.
Grillað flatbrauð
120 ml volgt vatn
1 msk. góð ólífuolía
1 tsk. salt
½ tsk. þurrger
220 g hveiti
Setjið vatnið og þurrgerið saman
í skál og bíðið í 5 mínútur. Bætið við
olíu, hveiti og salti og blandið vel
saman. Hnoðið deigið þar til mjúkt
og látið hefast í 30 mínútur. Stillið
ofninn á 225 °C eða hafið pönnu vel
heita. Fletjið deigið út í 1 cm þykkt
og skerið í ákjósanlegar stærðir.
Burstið olíu á báðum hliðum
og grillið eða steikið á pönnu í 2
mínútur á hvorri hlið, eða setjið í
forhitaðan ofninn í 4-5 mínútur.
Penslið aftur með olíu og stráið yfir
þurrkuðum jurtum að eigin vali.
Hrásalat
½ haus rauðkál – niðurskorið
2 stk. gulrætur – rifnar niður
100 ml eplaedik
100 g sykur
salt og pipar
Setjið sykur og eplaedik í pott
og leyfið suðunni að koma upp.
Leyfið blöndunni að kólna áður en
rauðkálinu og gulrótunum er bætt
við. Bragðbætið með salti og pipar.
Þessa uppskrift er tilvalið að gera
í magni og geyma í loftþéttu íláti í
ísskápnum.
MATARKRÓKURINN
Hægeldaður lambabógur
Listakonan Heiðrún Hekla
Hún Heiðrós Hekla er sex ára Egilsstaðamær sem finnst nær allt
skemmtilegt og verður án efa flott listakona í framtíðinni.
Nafn: Heiðrós Hekla
Bergvinsdóttir.
Aldur: 6 ára.
Stjörnumerki: Steingeit.
Búseta: Egilsstaðir.
Skóli: Egilsstaðaskóli.
Skemmtilegast í
skólanum: Val.
Áhugamál: Lita, púsla og
leira.
Tómstundaiðkun: Er
að æfa fimleika, sund og
skíði.
Uppáhaldsdýrið: Kanína.
Uppáhaldsmatur: Píta.
Uppáhaldslag: Öll lög eru
skemmtileg.
Uppáhaldslitur: Ljósblár.
Uppáhaldsmynd: Allar Disney-kvikmyndir.
Fyrsta minningin: Þegar litla systir mín, Hildur, kom í heiminn.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert: Allt skemmtilegt
og það er mjög gaman þegar pabbi dregur mig á stigasleða með
snjósleðanum.
Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór: Listakona.
ERFINGJAR LANDSINS
Setja skal inn tölur frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt
- og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins
Þung Þyngst
Létt Miðlungs
Hafliði Halldórsson
haflidi@icelandiclamb.is