Bændablaðið - 25.05.2023, Page 64

Bændablaðið - 25.05.2023, Page 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023 Þegar þetta er ritað lekur slyddan niður rúðuna og fátt minnir á vor, sumar og grillmat sem sam- kvæmt almanakinu ætti að vera umfjöllunarefnið núna í lok maí. Við skulum samt ekki örvænta, það kemur á endanum og þá burstum við rykið af grillinu og njótum okkar í sólinni. En þar sem útsýnið hefur þau áhrif að vetrarmatur er mér ofarlega í huga læt ég vaða á hægeldaðan og bragðgóðan rétt sem á svo sem líka við í íslensku vori eins og það gerist best, rétt slefandi í tveggja stafa tölu yfir hádaginn. Einn af vanmetnustu bitum lambsins, sem og annarra ferfætlinga, er bógur sem of fáir hafa prófað að matreiða. Til að gera góðan mat úr bóg þarf aðallega ögn af þolinmæði og skipulagi. Best er að bógurinn fái langan eldunartíma á lágum hita. Þá verður niðurstaðan sannkölluð veislumáltíð. Hér er mælt með 5 tímum að lágmarki fyrir lambabóg, en ekki er síðra að gefa bógnum 7-8 klst. í ofninum. Í skipulaginu þýðir það að með smá undirbúningi deginum áður en hann er eldaður má brúna og krydda kjötið og skella svo í ofninn áður en fólk fer til vinnu að morgni og eiga svo von á góðu þegar heim er komið. Meðlætið er einfalt og fljóteldað, og má einnig undirbúa það deginum áður að stórum hluta. Hægeldaður lambabógur með maís, smælki, grilluðu flatbrauði og hrásalati Fyrir 4 pers. Tími 5 ½ klst. 1,5 kg lambabógur 2 msk. matarolía Salt & pipar 1 kanilstöng 1 msk. reykt paprikuduft 1 msk. broddkúmen 1 msk. fennelfræ 2 kvistar ferskt timían 1,5 l vatn 1 l lambasoð 1 stk. hvítlauksgeiri 1 msk. púðursykur 1 stk. laukur 5 stk. sveppir ½ sítróna Stillið ofninn á 90 °C. Nuddið bóginn með salti og brúnið á vel heitri pönnu með olíunni á háum hita í 3-5 mínútur á hvorri hlið. Setjið bóginn í djúpa ofnskúffu, nuddið kryddinu á og bætið við restinni af því sem fram kemur í uppskriftinni, breiðið yfir með álpappír (eða setjið í ofnpott með loki) og eldið í a.m.k. 5 klst. En ekki er síðra að teygja eldunartímann í 7-8 klst. Ristaður maís 4 stk. foreldaðir maísstönglar 100 g smjör 50 ml olía íslenskt sjávarsalt Penslið maísstönglana með olíunni og stráið salti yfir. Grillið eða steikið á pönnu, vel á öllum hliðum, áður en stöngullinn er smurður með smjörinu og borinn fram. Sósa Steikingarsafi 50 g kalt smjör Sigtið safann úr ofnskúffunni í pott þegar lambakjötið hefur verið eldað, haldið kjötinu heitu. Fleytið megnið af fitunni af og látið vökvann sjóða niður um þriðjung. Takið pottinn af eldavélinni og pískið smjöri saman við í litlum bitum, bragðbætið með salti og pipar og sítrónusafa eða ediksslettu eftir smekk. Ofnbakað smælki með sýrðum rjóma 300 g kartöflusmælki 2 hvítlauksgeirar 50 g ólífuolía íslenskt sjávarsalt 100 ml sýrður rjómi 10 ml sítrónusafi 1 tsk. hunang Hitið ofn í 180 °C. Skolið kartöflurnar og þerrið. Sjóðið þar til eru mjúkar, sigtið vatnið frá og setjið kartöflur í ofnskúffu. Bætið við olíu, hvítlauk og salti eftir smekk. Bakið í 25 mínútur. Blandið sýrða rjómanum, sítrónusafanum og hunanginu saman í skál og bragðbætið með salti eftir smekk. Veltið kartöflunum upp úr blöndunni og berið fram. Grillað flatbrauð 120 ml volgt vatn 1 msk. góð ólífuolía 1 tsk. salt ½ tsk. þurrger 220 g hveiti Setjið vatnið og þurrgerið saman í skál og bíðið í 5 mínútur. Bætið við olíu, hveiti og salti og blandið vel saman. Hnoðið deigið þar til mjúkt og látið hefast í 30 mínútur. Stillið ofninn á 225 °C eða hafið pönnu vel heita. Fletjið deigið út í 1 cm þykkt og skerið í ákjósanlegar stærðir. Burstið olíu á báðum hliðum og grillið eða steikið á pönnu í 2 mínútur á hvorri hlið, eða setjið í forhitaðan ofninn í 4-5 mínútur. Penslið aftur með olíu og stráið yfir þurrkuðum jurtum að eigin vali. Hrásalat ½ haus rauðkál – niðurskorið 2 stk. gulrætur – rifnar niður 100 ml eplaedik 100 g sykur salt og pipar Setjið sykur og eplaedik í pott og leyfið suðunni að koma upp. Leyfið blöndunni að kólna áður en rauðkálinu og gulrótunum er bætt við. Bragðbætið með salti og pipar. Þessa uppskrift er tilvalið að gera í magni og geyma í loftþéttu íláti í ísskápnum. MATARKRÓKURINN Hægeldaður lambabógur Listakonan Heiðrún Hekla Hún Heiðrós Hekla er sex ára Egilsstaðamær sem finnst nær allt skemmtilegt og verður án efa flott listakona í framtíðinni. Nafn: Heiðrós Hekla Bergvinsdóttir. Aldur: 6 ára. Stjörnumerki: Steingeit. Búseta: Egilsstaðir. Skóli: Egilsstaðaskóli. Skemmtilegast í skólanum: Val. Áhugamál: Lita, púsla og leira. Tómstundaiðkun: Er að æfa fimleika, sund og skíði. Uppáhaldsdýrið: Kanína. Uppáhaldsmatur: Píta. Uppáhaldslag: Öll lög eru skemmtileg. Uppáhaldslitur: Ljósblár. Uppáhaldsmynd: Allar Disney-kvikmyndir. Fyrsta minningin: Þegar litla systir mín, Hildur, kom í heiminn. Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur gert: Allt skemmtilegt og það er mjög gaman þegar pabbi dregur mig á stigasleða með snjósleðanum. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór: Listakona. ERFINGJAR LANDSINS Setja skal inn tölur frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt - og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins Þung Þyngst Létt Miðlungs Hafliði Halldórsson haflidi@icelandiclamb.is

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.