Bændablaðið - 25.05.2023, Page 65
65 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. maí 2023
Ragnhildur er fædd og uppalin
í Norðurhaga og hefur stundað
búskap þar með foreldrum sínum
síðan hún man eftir sér. Dagur kemur
svo inn í búið 2019 en þau kaupa
jörðina af foreldrum Ragnhildar í
ársbyrjun 2023.
Býli? Norðurhagi í Húnabyggð.
Staðsett í sveit? Austur-
Húnavatnssýsla.
Ábúendur? Ragnhildur Ásta
Ragnarsdóttir og Dagur Freyr
Jónasson, ásamt foreldrum
Ragnhildar, Ragnar Bjarnason og
Þorbjörg Pálsdóttir
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Við parið, hundarnir Moli og Garpur
og kötturinn Pétur.
Stærð jarðar? 250 hektarar og um
70 hektarar af ræktuðu landi.
Gerð bús? Sauðfjárbú.
Fjöldi búfjár? Rúmlega 500 kindur
og nokkur hross.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Morgun- og kvöldgjafir ásamt
ýmsum verkum yfir daginn.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Flest allt skemmtilegt
en það sem stendur upp úr er
sauðburður, smalamennskur og
réttir, en svo er alltaf gaman að fóðra
gripina og heyja í góðu húnversku
veðri. Leiðinlegast er þegar
skepnurnar veikjast, gera við ónýtar
girðingar og hreinsa skít af grindum.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Enn þá
fleiri kindur og meiri kynbætur.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk og ostur.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambakjöt í hinum
ýmsum formum er yfirleitt á boð-
stólum og slatti af meðlæti með því.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Eftirminnilegast er
líklegast þegar við tókum við búinu
núna í ársbyrjun en annars eru öll
markmið sem hafa náðst og allir litlu
sigrarnir eftirminnilegir líka.
Prjónað ungbarnateppi úr DROPS Merino Extra
Fine. Stykkið er prjónað fram og til baka með
áferðarmynstri sem minnir á mynsturpeysurnar
sem hafa verið svo vinsælar upp á síðkastið.
DROPS Design: Mynstur me-089-by
Stærðir: ca 62-73 cm á breidd, ca 58-64 cm á lengd.
Garn: DROPS Merino Extra Fine (fæst hjá
Handverkskúnst) 300-400 g, litur á mynd 15, ljós
grágrænn
Prjónar: Hringprjónn nr 4, 60 cm. Kaðlaprjónn.
Prjónfesta: 21 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð
með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð
frá réttu.
Ungbarnateppi: Stykkið er prjónað fram og til baka
á hringprjóna.
Fitjið upp 130-154 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS
Merino Extra Fine.
Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Prjónið síðan næstu
umferð frá réttu þannig: Prjónið A.1, 1 lykkja sléttprjón,
A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir, 1 lykkja sléttprjón, prjónið
A.1. Haldið svona áfram þar til A.2 hefur verið prjónað
alls 4-5 sinnum á hæðina og stykkið mælist ca 17-21
cm. Prjónið síðan mynstur yfir miðju 120-144 lykkjur
eins og útskýrt er að neðan – ystu 5 lykkjurnar í hvorri
hlið halda áfram í A.1 og 1 lykkja í sléttprjóni eins og
áður. Prjónið A.3, endurtakið á hæðina þar til stykkið
mælist ca 29-33 cm. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur.
Prjónið A.4 alls 2 sinnum á hæðina og stykkið mælist
ca 42-46 cm. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Prjónið
A.5 – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 12
lykkjur jafnt yfir = 142-166 lykkjur (þetta er gert vegna
þess að mynstrið dregur stykkið saman). Endurtakið
A.5 yfir miðju 132-156 lykkjurnar og prjónið ystu 5
lykkjur eins og áður þar til stykkið mælist ca 57-63 cm
– JAFNFRAMT í síðustu umferð í A.5 er fækkað um 12
lykkjur jafnt yfir = 130-154 lykkjur. Nú er prjónað A.1
yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum.
Teppið mælist ca 58-64 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónakveðja, Stelpurnar í Handverkskúnst
Norðurhagi í Húnabyggð
BÆRINN OKKAR
HANNYRÐAHORNIÐ
Punktur punktur komma strik
– Ungbarnateppi