Stuðlaberg - 01.12.2016, Page 6

Stuðlaberg - 01.12.2016, Page 6
6 STUÐLABERG 2/2016 Nýjar bækur Margar áhugaverðar bækur komnar á markað Á valdi regns og vinda Bókin Núna eftir Þorstein frá Hamri er tæpar sextíu blaðsíður að stærð og hefur að geyma þrjátíu og níu ljóð. Þetta er ekki um­ fangsmikill texti enda er Þorsteinn ekki vanur að slá um sig með miklu orðskrúði. Ljóðin eru afar öguð og sterk, hvert einasta þeirra hefur sitt hlutverk, ber boð til lesandans, er farvegur hugsunar. Boðskapurinn er dálítið óræður á köflum en kemst til skila, hægur en ýtinn, váleg boð að vísu, en þó glittir í von, sé lesið milli lína. Fagnaðarefni fyrir unnendur hins hefð­ bundna ljóðs er formið sem Þorsteinn velur. Í Stuðlabergi hefur stundum verið minnst á það hvernig ljóðstafir geta borið ljóðið áfram án þess að um sé að ræða hefðbundna bragarhætti. Í bók Þorsteins er stuðlunin borin uppi af skáldi sem þekkir allar hliðar hefðarinnar og veit nákvæmlega hvað má ganga langt út fyrir mörkin án þess að særa brageyrað. Þetta sést vel í ljóðinu Barnið í vöggunni: Sumarið steig á stofuþiljum dans við skugga af gluggatjöldum og trjám. Og barnið í vöggunni elti með augunum; var það að lesa letraðan sólstöfum inngang að verðandi ævitíð með sínu af hverju: sætleik, bölmóði, þrám? Hér leika ljóðstafir stórt hlutverk í upp­ byggingu ljóðsins, ávallt tveir saman, spurn­ ing hvort ber að tala um stuðul og höfuðstaf eða aðeins tvo stuðla, það fer eftir því hvernig lesandinn vill horfa á braglínurnar, en skiptir að öðru leyti engu máli. Þeir eru þarna, allir á réttum stöðum, áferðarfallegir og hæfilega sterkir, eins og vörðurnar á Möðrudalsör­ æfunum. Í þessu ljóði er líka endarím sem virðist yfirlætislaust og ekki veigamikið við fyrstu sýn en lokar ljóðinu mjög smekklega og grípur lesandann æ meir eftir því sem ljóðið er lesið oftar. Svipað má segja um ljóð sem nefnist Sól­ heimar: Gæði veraldar: sýn, ómur og orð, stikur sem vísa veginn til móðurdyra, hönd sem styður það sem veilt er og valt ... Og utan um þetta allt:

x

Stuðlaberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.