Stuðlaberg - 01.12.2016, Blaðsíða 18

Stuðlaberg - 01.12.2016, Blaðsíða 18
18 STUÐLABERG 2/2016 Það gefur sér enginn brageyrað Rætt við systurnar Ástu, Fanneyju og Heiðu Guðnýju Þær systur, Ásta Sverrisdóttir og Fanney og Heiða Guðný Ásgeirsdætur fæddust og ólust upp á Ljótarstöðum í Skaftártungu þar sem sú síðastnefnda er bóndi. Fanney er kennaramenntuð og var skólastjóri um árabil en kennir nú við Sunnulækjarskóla á Selfossi. Ásta var til skamms tíma bóndi á Ytri­Ásum í Skaftártungu en flutti fyrir nokkrum árum á Selfoss og vinnur þar í Mjólkurbúinu. Þessar systur hafa vakið athygli fyrir hnyttnar og vel gerðar vísur sem sumar hverjar hafa meðal annars ratað á síður Stuðlabergs. Því var ákveðið að hafa samband við þær og biðja þær að svara nokkrum spurningum um hagmælskuna, ljóðformið og annað sem tengist vísnagerðinni. Þær tóku því vel og fara svör þeirra hér á eftir. Hvar lærðuð þið að yrkja? Ásta: Ég hlýt bara að hafa lært það heima hjá mér á Ljótarstöðum. Þó orti ég ekki neitt fyrr en ég var kannski tólf eða fjórtán ára, og þá með erfiðismunum. Ég ákvað að búa til vísu og smíðaði svo eitthvað þangað til ég var ánægð með það. Ég varð ekkert hagmælt þannig að ég gæti kastað fram vísu fyrr en eftir tvítugt. Fanney: Ég lærði aldrei beinlínis að yrkja, en heima hjá mér var alltaf verið að fara með vísur og ljóð, eins lengi og ég man eftir mér. Mamma og stóru systur mínar eru allar hag­ mæltar og það voru settar saman vísur við alls konar tækifæri. Þar fyrir utan ól mamma okkur upp á ljóðum Davíðs Stefánssonar og margra annarra, pabbi kenndi okkur ótal vísur – og það var alltaf einhver raulandi eða syngjandi. Heiða Guðný: Það var alltaf verið að yrkja í kringum mig, endalaust verið að fara með vísur og þylja kvæði á heimilinu, ég man ekki eftir mér öðruvísi en eitthvað að reyna að klambra saman vísum. Hvernig voru fyrstu vísurnar? Ásta: Fyrstu vísurnar voru mest svona stríðni sem við Arndís systir vorum að skiptast á um að búa til. Við snerum stundum útúr dægur- lagatextum svo þeir pössuðu tilefninu. Fanney: Fyrstu vísurnar voru líklega á ein­ hverjum heimatilbúnum afmæliskortum, en bæði þau og vísurnar eru löngu týnd. Það elsta sem ég fann eru hádramatískar vísur sem mamma hafði bjargað frá að týnast og eru líklega síðan ég var 11 ára. Tilefnið var að í girðingarvinnu dagsins fann ég fyrrum heimagang sem ég átti. Hún hafði ákveðið að reyna að troða sér í gegnum girðingu og setið þar föst þar til hún drapst. Þetta var auðvitað ákaflega leiðinlegt – en kannski ekki alveg eins hræðilegt og vísurnar gefa til kynna. Með hlátur í augum að heiman ég fer því himinninn brosir, svo lyftist brún og blærinn sín sumarljóð syngjandi er og sól stráir geislum um engi og tún. En allt þetta er fokið í veður og vind öll veraldargleði er horfin í bláinn. Því sólgeislum böðuð, við suðandi lind, í svolitlri lautu er Ófeig mín dáin! Heiða Guðný: Fyrstu vísurnar eru nú hvergi til enda hafa þær sjálfsagt ekki verið merkilegar. Hvað er minnisstæðast úr vísnagerðinni í æsku? Ásta: Við vorum stundum það grófar í að­ dróttunum og lýsingum, að það kom aldrei til greina að bera afraksturinn undir neinn fullorðinn. Stundum voru blaðsíðurnar rifnar úr vasabókinni og brenndar með flissi og hlátrasköllum þegar við höfðum lagt efnið á minnið. Það voru dýrðardagar. Fanney: Vísnagerðinni fylgdi yfirleitt grín og gaman. Mamma og pabbi hvöttu okkur

x

Stuðlaberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.