Úrval - 01.04.1966, Síða 12
10
ÚRVAL
Þetta volduga lifandi kerfi, sem
keyrir rætur sínar niður í harðan
jarðveg, klýfur kletta, rekur
fleyga í klettaskorur, lyftir lauf-
krónum hátt til lofts og lætur heilt
fljót af safa streyma frá dýpstu rót
upp til efstu greinar, grefur upp öll
sín nauðsynlegu frumefni og skil-
ar þeim á réttan stað á réttum tíma.
ALSJÁANDI MYNDAVÉL, SEM FINNUR VATN 1 EYÐIMÖRKINNI
Tekin hefur verið í notkun myndavél með töfraauga, sem getur
„skynjað" hitageisla, sem koma frá ísklumpi í mílufjarlægð (já, jafn-
vel is geislar frá sér dálitlum hita). Myndavél þessi er notuð til Þess
að leita að vatni, sem fólgið er í iðrum jarðar.
Myndir, sem teknar hafa verið úr lofti með myndavél þessari, hafa
Þegar gert sérfræðingum fært að kortleggja meira en 100 vatnsupp-
sprettur og rennsli þeirra á Hawaieyjum og meðfram strönd eyjunnar
Puerto Rico í Mexíkóflóa.
Nú vona vísindamenn, sem starfa fyrir Jarðfræðistofnun Bandaríkj-
anna, að þeir geti fært út kvíarnar og farið að leita á eyðimerkur-
svæðum, sem kunna að eiga vatnsbirgðir faldar djúpt undir yfirborðinu.
Myndavélunum c-r komið fyrir í mælingaflugvél, og geta myndavélar
þessar unnið eins vel að næturlagi sem að degi til. Slæmt veður hefur
ekki heldur nein slæm áhrif á starfhæfni þeirra.
Myndir þær, sem myndavéiar þessar taka, eru algerlega óskiljanlegar
venjulegu, óþjálfuðu leikmannsauga. En þær ljóstra upp um jarðlög
og ýmis efni neðanjarðar með þvi að sýna hinn hlutfallslega styrk-
leika geislunarinnar, sem berst upp í loftið frá jörðinni.
Því „heitara" sem svæðið er, því bjartara verður þáð á filmunni.
En svöl eða köld svæði, sem hafa að geyma vatn, eru grá eða jafnvel
svört.
Innrauðar myndavélar hafa að geyma örsmáan útbúnað, sem kall-
aður er „thermistor". Útbúnaður þessi breytir geisluninni í rafmagn,
sem er svo breytt í birtu, sem kemur frá á Ijósmyndafilmum.
Taka innrauðra mynda úr lofti er þegar orðin þekkt aðferð meðal
jarðfræðinga í leit að olíu og öðrum jarðefnum, einnig meðal byggingar-
verkfræðinga til þess að ákvarða Þykkt klappa, þegar rannsaka skal
undirstöðu bygginga og mannvirkja, og enn fremur meðal fornleifa-
fræðinga til þess að finna forsögulegar leifar fólgnar i jörðu.
Þar eð surnir sjúkdómar valda breytingu á hitastigi húðarinnar,
er nú einnig verið að gera tilraun til þess að sannreyna, hvort hita-
myndavélar kunni ef til vill að geta hjálpað til við sjúkdómsgreiningar.
Samtímis er nú einnig verið að byggja fyrstu stjörnuathugunarstöð-
ina, sem byggist á innrauðri ljósmyndatækni. Hún er nú að rísa á
eyjunni Maui ,á Hawaieyjum og á að veita stjörnufræðingum tækifa“ri
til þess að athuga stjörnur og plánetur með hjálp hitageisla, sem þær
gefa frá sér. Sunday Expresa