Úrval - 01.04.1966, Síða 23

Úrval - 01.04.1966, Síða 23
SIGURVEGARI FJALLANNA 21 á Petit Dru kölluð Bonattisúlan honum til heiðurs. Hvers vegna leggur Bonatti á sig næstum ómennskt erfiði og und- irgengst ofurmannlegar þolraunir til þess að geta klifið ýmsa fjalla- tinda? Ein skýring þessa er sú, að fjöllin dragi hann til sín með ein- hverjum dularkrafti. í einni af bók- um hans getur að líta þessar setn- ingar: „Ég trúi á það, sem Móðir Náttúra getur kennt okkur. Þess vegna er ég sannfærður um, að fjallið, með allri sinni fegurð og í sínum ströngu lögmálum, sé nú, jafnvel enn frekar en nokkru sinni áður, eitt bezta tækið til þess að móta skapgerðina og styrkja hana. Uppi á fjallinu lærist manni í raun og sannleika að afbera þjáningar og sýna þolgæði. Ósviknar Alpa- fjallgöngur eru bardagi, sem er háð- ur, og sigur, sem er unninn innra með okkur.“ Það er alls ekki svo að skilja, að Bonatti finni ekki til ótta. Það mætti fremur segja, að fjallgöngur færi honum kærkomið tækifæri til þess að horfast í augu við nakinn ótta og sigrast á honum. Sigur hans er fólginn í þeirri andlegu endur- næringu og hvatningu, sem hann öðlast við það að þvinga líkama sinn til þess að standast þrekraun- ir, sem eru oftast allri mannlegri getu. „Þið skuluð vera á verði, ef þið finnið ekki til ótta upp í fjöll- unum,“ segir hann. „Ef þið finnið ekki til ótta, missið þið af hinni dýrlegu gleði, sem gagntekur mann við að vinna bug á honum.“ Bonatti, sem hefur ofan af fyrir sér með ritstörfum og fyrirlestra- haldi, leggur aldrei af stað í fjall- göngu, fyrr en hann hefur búið sig undir hana af mikilli hörku vik- unum saman. Áður en hann lagði af stað í ferðina upp Matterhorn, hafði hann eytt mörgum mánuðum á undan í að gera áætlanir, rannsaka kort og uppdrætti og myndir og lesa sér til um athuganir, sem gerð- ar höfðu verið á jarðlögum fjall- anna á þeim slóðum. Allan janúar- og febrúarmánuð æfði hann sig á degi hverjum í að standa á höndum og höfði. Hann sveiflaði sér á riml- um og gerði fjölmargar aðrar æf- ingar til þess að styrkja og liðka líkama sinn sem allra mest, en hann er 5 fet og 6 þumlungar að hæð og um 140 pund að þyngd. Hann kreisti gúmíbolta og æfði sig með griptækjum til þess að styrkja fing- ur sína. Hann æfði sig í svigi til þess að styrkja ökklana. Hann herti sig gegn áhrifum mikils kulda með því að sofa tíu nætur úti undir beru lofti í þó nokkru frosti. (Hjarta Bonatti slær aðeins 40 sinum á mínútu, en meðalhraðinn er 75 slög á mínútu, og hvítu blóðkornin í blóði hans endurnýja sig líka hrað- ar en hjá venjulegu fólki. Þessar staðreyndir skýra að einhverju leyti hið ofurmannlega þrek hans og þolni hans gagnvart kulda, en hann virðist hafa tiltölulega lítil áhrif á hann). Hann býr í Courmayeur í ítölsku Ölpunum, og hann æfði sig á degi hverjum í að klifra upp 1.000 feta háan hamravegg, sem hann kallar leikfimishúsið sitt), sem er þar í nánd. Hann klifraði upp, og niður og þvert yfir hina bröttu hamra í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.