Úrval - 01.04.1966, Page 47

Úrval - 01.04.1966, Page 47
DRENGURINN, SEM BJARGAÐI HEIÐRI... 45 fjölskyldu sinni frá stóru iðnaSar- borginni Nagoya til borgarinnar Bentenjima, þegar Kaoru var sex ára gamall. Frá nýja húsinu þeirra var útsýni yfir Hamanavatn. Á hús- inu var flatt þak, og Kaoru klifraði þangað upp til þess að losna und- an hávaðanum í þrem yngri bræðr- um og lítilli systur. Brátt fór hann líka að klifra þangað upp að nsetur- lagi til þess að virða fyrir sér stjörn- urnar. Þegar hann var orðinn 12 ára, var hann orðinn svo frá sér numinn af stjörnuhimninum, að hann var far- inn að lesa ýmsar bækur um stjörn- urnar, skoða og rannsaka stjörnu- kort og teikna uppdrætti af stjörnu- himninum í vasabók sína. Þegar hann var orðinn 13 ára, tók hann ákvörðun um að smíða sér stjörnu- sjónauka. Fiskbúð föður hans gekk vel, en samt vildi Kaoru helzt ekki biðja hann um að kaupa stjörnu- sjónauka. Samband þeirra var þá þegar orðið þvingað. Faðirinn kvart- aði yfir því, að drengurinn sneri sér ekki að því að kynnast atvinnu- rekstri fjölskyldunnar, svo að hann gæti þannig hjálpað til. „Heilbrigð skynsemi ætti að sýna þér fram á það, sonur minn“, sagði hann, „að stjörnufræðin liggur utan stöðu okk- ar í lífinu“. En samt hélt Kaoru áfram að rann- saka skólabókasafnið og leita í því að öllu, sem snerti stjörnufræði. Hann las allt, sem hönd á festi í þeirri grein, og lagði stund á þá þætti Ijósfræði, eðlisfræði og efna- fræði, sem snertu smíði stjörnusjón- auka. En ógæfan vofði nú yfir Ikeya- fjölskyldunni. Fyrirtæki herra Ik- eya fór nú að ganga illa. Hann missti aiveg móðinn og fylltist gremju. Iiann tók nú til að flækjast um á vínkrám og þamba áfengi og átti nú sífellt erfiðara með að horfast í augu við konu sína og ungu börn- in, sem voru fimm að tölu. Kannske kemur vanræksla föð- ursins hvergi eins grimmilega niður á fjölskyldunni sem í Japan, þar sem þær erfðavenjur eru ríkt í heiðri hafðar, sem „on“ nefnast. „On“ vísar til þeirrar skyldu, sem hver maður tekst á herðar með til- veru sinni einni. Aðalkjarni „on“ er hið svokallaða „ko“, skyldur gagnvart foreldrum og afkomend- um. Herra Ikeya hafði brugðizt skyldu sinni sem faðir og hafði varpað þjakandi smánarbyrði á nafni fjölskyldunnar, sem ef til vill mundi loða við það svo að kynslóð- um skipti. „Við mamma gátum ekki um annað hugsað“, sagði Kaoru um þetta, „við gátum ekki um annað hug'sað en það, að það hvíldi nú smánarblettur á fjölskyldunni". Dapur í huga virti Kaoru móður sína fyrir sér, er hún hóf nú að stúnda vinnu í gistihúsi nálægt járn- brautarstöðinni í Bentenjima, þar sem hún eldaði ofan í ókunnugt fólk og hreinsaði til í herbergjum þess. Hann fékk sér líka starf hluta úr deginum, fór á fætur klukkan 5 til þess að bera út blöð og bar svo út kvöldútgáfuna, þegar hann kom heim úr skólanum. Hann fann í síauknum mæli til þeirrar ábyrgðar og skyldu, sem á honum hvíldi, skyldu til að afmá þann smánar- blett, sem faðirinn hafði sett á hið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.