Úrval - 01.04.1966, Síða 49
DRENGURINN, SEM BJARGAÐI HEIÐRI. ■
47
Og til þess aS gera henni nú til
geðs, fór hann ekki upp á þakið
þessa nótt. Hann dvaldist með fjöl-
skyldu sinni allan nýársdaginn og
fylgdi móður sinni svo til lítils
musteris þar í nágrenninu til þess
að biðja um gæfu og gengi á hinu
nýja ári, árinu 1963.
Næstu nótt , aðfaranótt 2. janú-
ar árið 1963, uppgötvaði Kaoru svo
halastjörnuna sína.
í stjörnuathugunarstöð Harvard-
háskóla, þeirri athugunarstöð Vest-
urálfu, sem sér um söfnun, dreif-
ingu og miðlun stjarnfræðilegra
upplýsinga af öllu tagi, voru allar
upplýsingar um Ikeya-halastjörn-
una 1963a skráðar á tilkynninga-
spjöld og þau síðan send öðrum
stjörnuathugunarstöðvum og stjarn-
fræðiritum um gervalla veröld. Og
nokkrum vikum eftir að Kaoru
hafði komið auga á halastjörnuna,
bárust einnig tilkynningar frá öðr-
um stjörnuathugunarstöðvum þess
eðlis, að þar hefðu menn einnig
komið auga á þessa nýju hala-
stjörnu. Og þannig tókst Kaoru að
halda áfram að hafa samband við
halastjörnuna sína með hjálp sí-
vaxandi fjölda samstarfsmanna
sinna víðs vegar í heiminum.
Meðan á öllum þessum ósköpum
stóð, hélt Kaoru alltaf áfram að
koma til vinnu sinnar í píanóverk-
smiðjunni. Það var ekki fyrr en
blaðamennirnir fóru að biðja um
viðtöl við hann í verksmiðjunni, að
stjórn hennar frétti um þetta afrek
piltsins. Viðbrögð hennar urðu þau
að hefja söfnun meðal samstarfs-
manna Ikeya til þess að gera hon-
um það auðveldara að geta haldið
árfam stjörnuathugunum sínum.
Einnig var honum fært skjal, þar
sem hann var lofaður fyrir það,
hvernig hann hefði varið frítímum
sínum og sýnt þar geysilegan á-
huga og þolgæði. Skjali þessu fylgdi
50 sterlingspunda ávísun, sem er
mjög mikið fé í Japan. Var honum
afhent þessi gjöf við hátíðlega at-
höfn í verksmiðjunni.
Síðan hefur Kaoru gert feiri upp-
götvanir á sviði stjörnufræðinnar.
í júlímánuði árið 1964, en þá hafði
hann nýjan, betri stjörnusjónauka
sér til hjálpar, kom hann auga á
aðra halastjörnu, halastjörnuna
1964f. Það hafði kostað hann að-
eins 5 sterlingspund að smíða þenn-
an nýja stjörnusjónauka. Og í sept-
ember síðastliðnum fann hann
þriðju halastjörnuna í samvinnu við
annan áhugamann á sviði stjörnu-
fræðinnar, Tsutomu Seki að nafni,
en hann hefur bækistöð sína í bæn-
um Kochi, sem er í 240 kílómetra
fjarlægð frá Bentenjima. Þetta er
halastjarnan Ikeya-Seki, sem nú er
orðin fræg og vakti geysilega eftir-
væntingu og athygli um víða ver-
öld í fyrrahaust, þegar hún komst
óvenjulega nálægt sólu.
Kaoru starfar enn í píanóverk-
smiðjunni. Hann hefur hvorki reynt
að fá betra starf né hefur honum
verið boðið það. Honum finnst
ríkulegasta umbunin hafa verið
fólgin í því, að á sinni 22 ára ævi,
sem hann nú hefur lifað, hefur hann
nú borgað afborgun af sínu ,,ko“
með því að taka smánað nafn, varpa
því til himins og skrifa það eld-
stöfum yfir þvert himinhvolfið.