Úrval - 01.04.1966, Blaðsíða 96
94
ÚRVAL
in, mál C“. Þetta var ein fjölmargra
áætlana, sem gerðar höfðu verið í
sambandi við framkvæmd hinnar
miklu áætlunar, sem fyrir dyrum
stóð að framkvæma, „Operation Ov-
erlord“ — allsherjarinnrásarinnar í
Evrópu í Rankináætluninni máli
C var fjallað um hvað til bragðs
skyldi taka, ef óvinurinn óskaði
skyndilega eftir friðarsamningum
eða varnir hans biluðu gersamlega
á snögglegan hátt. Áætlunin gerði
ráð fyrir því, að þýzka ríkinu og
Berlín yrði skipt í svæði og skyldi
hvert stórveldanna þriggja hernema
eitt svæði. En það, sem forsetanum
mislíkaði, var svæðið, sem átti að
koma í hlut lands hans.
Rankináætlunin hafði verið gerð
við furðulegar og óviðunandi að-
stæður. Það var þá enn eftir að út-
nefna sameiginlegan yfirmann her-
afla Bandamanna í Evrópu. Og
brezka hershöfðingjanum Frederick
Morgan hafði verið falið hið erfiða
starf að reyna að semja framtíðar-
áætlanir, sem þessi tilvonandi yfir-
maður átti svo síðar að framkvæma.
Hann átti að semja áætlun um sókn-
ina yfir Ermasund og einnig áætl-
un um það, sem til bragðs skyldi
taka, ef Þýzkaland gæfist skyndi-
lega upp. Síðar skýrði hann frá
því, að fyrstu frumdrættirnir að
hernámi Þýzkalands hafi ekki ver-
ið gerðir, „fyrr en neytt hafði verið
allra bragða til þess að reyna að
skyggnast inn í framtíðina". En á-
ætlun þessi bar einnig merki ým-
issa ráðstafana, sem ráðuneytis-
nefnd, mynduð undir yfirstjórn
Clements Attlees varaforsætisráð-
herra, hafði mælt með, að gerðar
eru. Nefnd þessi hafði mælt með
þrískiptingu landsins, og samkvæmt
skiptingu þessari átti Bretland að
hernema hin auðugu iðnaðar- og
viðskiptahéruð í norðvesturhluta
landsins.
Morgan tók kort af Þýzkalandi og
dró línur yfir það, þannig að því
var skipt í sem næst jafnstóra þriðj-
unga „og dró daufar línur með blá-
um blýanti ofan í fylkjamörk þau,
sem sýnd voru á kortinu“. Það lá í
augum uppi, að Rússar, sem sóttu
að Þýzkalandi úr austri, hlytu að
hernema austurhluta landsins. Hvað
brezku og amerísku svæðin snerti,
virðist sú skipting þeirra, að Bretar
hlytu nyrðra svæðið og Bandaríkja-
menn það syðra, hafa frá fyrstu
ákvarðast af þessari staðreynd:
bandarískar hersveitir höfðu frá
fyrstu haft bækistöðvar í suður- og
suðvesturhluta Englands, en brezk-
ar liðsveitir í norður- og suðaustur-
hlutanum. Þannig voru liðin aðskild.
Þau höfðu hvort um sig sínar sér-
stöku herstöðvar og birgðastöðvar
og aðskilda birgðaöflun og fjar-
skiptakerfi. Morgan leit þannig á
framkvæmd „Operation Overlord",
allsherjarinnrásarinnar í Evrópu,
að þessu fyrirkomulagi yrði haldið
áfram á innrásarströndunum í Nor-
mandí hinum megin Ermarsunds og
að öllum líkindum áfram allt til
enda, allt inn í hjarta Þýzkalands
sjálfs, Bandaríkjamenn væru þann-
ig alltaf staðsettir hægra megin í
sóknarfylkingunni og Bretar vinstra
megin. Og þannig mundi þá fara
að lokum, að Bandaríkjamenn her-
næmu suðurhéruð Þýzkalands.
Um þetta viðhafði Morgan þessi