Úrval - 01.03.1969, Page 40

Úrval - 01.03.1969, Page 40
38 ÚRVAL kennaranum þarna alltaf nokkur vandi á höndum, þar sem erfitt er að finna hinn gullna meðalveg. En ég myndi telja það hollara barn- anna vegna að þarna væri sett fyrir frekar of lítið en of mikið. Það er einhver höfuðsynd margra kennara, sérstaklega duglegra og kappsfullra kennara, að ætla börnunum meira en þau eru fær um að geta. Ég hef nokkrum sinnum haft skoðanakönnun um það í ýmsum bekkjardeildum, sérstaklega í efri bekkjum barnaskólans, hve dagleg- ur vinnutími barnanna væri langur, með heimanámi. Þau hafa svarað eftir beztu samvizku og tekið þá fyrir t.d. eina viku og skráð hjá sér daglegan vinnutíma. Hefur þá kom- ið fram, að vinnutíminn hefur reynzt óhóflega langur, svo að það nálgast þrældóm. Enn verra er þó ástandið í fram- haldsskólunum þar sem fagkennsla ríkir. Þar setur hver fagkennari fyr- ir í sinni námsgrein, án þess að hafa hugmynd um, hvað hinir setja fyr- ir, og er þá ekki tekið tillit til ann- arra aukastarfa, sem oft hlaðast á nemendur á þessum aldri, svo sem félagsstörf, aukatímar í hljóðfæra- leik o.fl. Þetta getur allt farið fram úr öllu hófi, og er líklegt til að vekja námsleiða, þótt hann hafi annars ekki verið fyrir hendi. Það hefur að vísu nokkrum sinn- um verið bent á það af foreldrum 8 og 9 ára barna, einkum þeim 9 ára, að þau hefðu of lítið að gera. Skólinn fengi þeim ekki nægileg verkefni. Ég geri ráð fyrir að þetta sé réttmæt aðfinnsla, og þyrfti þá að bæta úr þessu í námsskránni, að færa námið þarna eitthvað til og nýta þennan tíma betur á einhvern hátt. Ég hef oft vakið athygli á því bæði í ræðu og riti, að foreldrum, ekki sízt mæðrum, væri ekki ætl- að að annast kennslu barna sinna heima. Það mætti frekar segja, að þeir ættu þar að vera eins konar námsstjórar. Kennsluna eiga skól- arnir að annast og gera ef allt er með felldu. En börn eru alltaf börn. Þau þurfa stjórn við námið, einnig heima hjá sér. Það er þessi stjórn, sem ætlazt hefur verið til af for- eldrunum. Hlutverk heimilanna er þá fyrst og fremst það að sjá úm að börnin geri skyldu sína varðandi heimanámið og rétta hjálparhönd, þegar þess er brýn þörf. Foreldr- arnir þurfa sérstaklega að láta börn- in finna til þess, að þau hafi áhuga á námi þeirra og standi alltaf á bak við þau. Horfi yfir öxlina á þeim við heimanámið hvetji þau og hæli þeim, þegar það á við, en finni að í hófi. Þetta er hið mikilvæga hlut- verk foreldranna, og ekki sízt mæðranna. Því miður hefur það stundum komið fyrir að þau mistök hafa orðið, að foreldrarnir hafa unnið verkefnin fyrir börnin, sem börnin skila svo sem sinni vinnu. En það er hinn mesti bjarnargreiði bæði við skólann og börnin. Það er t.d. alveg fráleitt að reikna heimadæmin fyrir börnin, eða annað ámóta. Ég þykist vita, hvernig þessi mis- tök eiga sér oftast stað. Börnin hafa að sjálfsögðu ekki sjálfsstjórn til að skipta tíma sínum hæfilega á milli skyldustarfa og leikja. Leik-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.