Úrval - 01.03.1969, Page 57

Úrval - 01.03.1969, Page 57
54 Vélin steypti sér og þaut eins og kólfi vceri skotið lágt yfir lendingarbrautunum með 1500 km-. hraða á klukkustund og var óðara úr augsýn. Þá kvað við feikna brestur. Flugvallarbyggingin lá í rústum. r A að banna flug risaþotanna? Eftir JAMES WINCHESTER. ann 5. ágúst, 1959, var orrustuflugvél, „F-104 Starfighter“ frá Lock- heedverksmiðjunum á sýningarflugi yfir Up- landsvellinum í Ottawa. Áhorfend- urnir stóðu úti fyrir nýrri og næst- um fullgerðri flugvallarbyggingu, stórhýsi miklu úr gleri og ryðfríu stáli. Sýningarstjórinn hafði radíó- samband við flugmanninn. „Fljúgðu einu sinni lágt yfir“, sagði hann. Vélin steypti sér og þaut eins og kólfi væri skotið lágt yfir lending- arbrautunum með 1500 km. hraða á klukkustund og var óðara úr aug- sýn. Þá kvað við feikna brestur. Flugvallarbyggingin nýja lá í rústum. Veggirnir hrundir inn, allt gler mölbrotið. Gólfin voru þakin braki úr einangrunarþiljum og þak- hellum. Dyraumbúnaður, glugga- karmar og burðarstoðir — allt var undið og skælt. Viðgerðin kostaði tuttugu milljónir króna. Þessi tuttugu milljón króna brest- ur er ljóst dæmi um hið harla al- varlega vandamál, sem flugvélaiðn- aðurinn stendur andspænis aðleysa. Þegar flugvél fer fram úr hljóð- hraða, kveður við feiknhár brest- ur. Fyrir fimm árum var brestur þessi einungis skemmtiatriðið við flugvélasýningar. Nú er svo komið að einmitt þessi brestur stofnar framtíð hljóðframa farþegaflugsins í hættu. Tæknilega séð er ekkert því til fyrirstöðu, að hljóðframar farþega- flugvélar geti hafið flug á áætlun- arleiðum eftir nokkur ár. Fyrir hina tröllauknu hreyfla, sem framleiða tvo þriðju hluta þeirrar þrýstiorku, sem með þurfti til að flytja fyrsta bandaríska gervihnöttinn út í geim- 55 Myndin sýnir þotu, sem flýgur hraðar en hljóðið. Um leið og hún klýfur loftið myndast þrýstilofts bylgja á eftir vélinni eins og keila x laginu. Bylgjan verð- ur að œrandi bresti, þegar hún nær til jarðar. inn, mundu þær valda gerbyltingu í öllum flutningum á langleiðum. Þær munu fljúga í 18 km. hæð, ofar öllum veðrum undir síheiðum, næstum myrkum himni og með hin- um mikla flughraða, allt að 800 m. á sekúndu, fara þær langt fram úr bæði hljóði og sól. Flugið á milli fjarlægustu borga á jörðinni tekur ekki nema tólf stundir. Fjárfestingin í því sambandi nem- ur gífurlegum upphæðum þegar þar að kemur. Því er spáð, að um 1990 þurfi stóru flugfélögin á að halda að minnsta kosti 100 hljóð- frömum flugvélum, fyrir allt að 1500 milljarða króna. Það er ekki neinn smáskildingur, og auk þess er það fjárfesting, sem veitir mönnum í hundraðþúsundatali vinnu við störf, sem krefjast hinn- ar ýtrustu vandvirkni. En þessi ein- stæðu farartæki geta líka reynzt einstæð mistök. Verði ekki unnt að draga úr hljóðbrestinum, er eins víst að þau verði aldrei tekin í notkun, vegna þess að andspyrn- an gegn þeim eykst stöðugt. Af hverju stafar bresturinn? Sér- hver flugvél — meira að segja pappírsskutla —- ryður loftinu frá sér þegar hún flýgur. Það veldur þó ekki neinum örðugleikum, á meðan hún fer ekki hraðara en hljóðið, sem berst með því sem næst 1200 km. hraða á klst. við yfirborð sjávar. En fari hún fram úr hraða hljóðsins, vinnst öreind- um loftsins ekki tími til að víkja sér undan. Þær þrýstast saman og mynda einskonar múr af sam- þjöppuðu lofti. Stefni flugvélarinnar stingst inn í þennan múr, eins og skipsstefnið sker vatnið, og loftið ryðst frá í allar áttir. Við það myndast keilu-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.