Úrval - 01.11.1969, Page 59
ÁSTAMÁL VIKTORÍU DROTTNINGAR
57
enn erfiðara fyrir ráðherra hennar
að komast að samkomulagi við hana
en nokkru sinni fyrr.
En þó veitti nærvera Skotans
Johns Browns henni nokkra hugg-
un, þótt einkennilegt megi virðast.
Hann ‘vár norðaþ úr Háiöndum
Skotlands og hafði verið uppáhalds-
þjónn þeirra Alberts í Balmoral-
kastala. Henni fannst sem Albert
væri nær henni í anda, þegar John
Brown var í návist hennar. Og því
varð þessi hrjúfi og fremur gróf-
gerði en gáfaði Skoti stöðugur fé-
lagi hennar. Hann veitti henni jafn-
vel góð ráð og skipaði henni fyrir
verkum og ávítaði hana jafnvel á
þann hátt, sem enginn ættingi henn-
ar hefði þorað að reyna. Hún hafði
hann í þjónustu sinni, þangað til
hann dó. Og hún saknaði hans inni-
lega, er hann var ekki lengur ná-
lægur.
Það liðu 25 ár, þangað til hún hóf
aftur þátttöku sína í opinberu lífi.
Það olli henni mikillar gleði, að
þjóðin tók henni þá af hlýju. Hald-
ið var upp á 50. stjórnarár hennar
af hátíðlegri alvöru. Svo kom hin
dýrlega hátíð árið 1897, þegar hald-
ið var upp á 60 ára stjórn hennar.
Öll þessi ár rækti hún störf sín
af stakri samvizkusemi og mikilli
röggsemi, hélt nánum tengslum við
hina ýmsu þætti þjóðlífsins og
fylgdist vel með því, sem var að
gerast í konungsríki hennar. Og
jafnframt því fylgdist hún náið með
lífi allra barna sinna og fjölskyldna
þeirra og hafði hönd í bagga með
öllu, er þau snerti.
Hún hafði fyrst óskað þess að
mega deyja, er Albert dó. Sjö til-
raunir höfðu verið gerðar til að
ráða hana af dögum á ríkisstjórnar-
árum hennar, þótt hún slyppi ó-
sködduð frá þeim öllum (að undan-
skildu höfuðhöggi, sem óður sjó-
maður veitti henni, eftir að hann
hafði verið rekinn úr flotanum). Og
það var ekki fyrr en 22. janúar árið
1901, að hún hélt til fundar við sinn
ástfólgna eiginmann, en minningu
hans hafði hún geymt í hjarta sér
og haldið henni stöðugt á lofti i 40
löng ár og einu betur.
Ef við erum fær um að elska fiðrildi, hlýtur okkur að bykja vænt
um nokkrar fiðrildislirfur.
Antoine de Saint-Exupéry.
Við skulum ekki horfa um öxl í reiði, ekki fram á veginn í ótta,
heldur i kringum okkur með galopin augun..
James Thurber.
Hvenær ættu foreldrar að fá bami völdin yfir því sjálifu i þess eigin
hendur? Þegar barnið ihættir að reyna að hrifsa til sín völdin og
teygir sig eftir ábyrgðinni, en ekki fyrr.
Donald Barr.