Úrval - 01.11.1969, Page 124

Úrval - 01.11.1969, Page 124
122 TJRVAL rænu þjálfunarstarfsemi. Mér finnst alltaf heppilegast að skipta henni í þrennt til skýringar. Hin hugræna þjálfun er: 1) Þjálfun og tamning hugsunarhæfileikans, til þess að hann verði lipur og þægur starfsmaður í sálarlífinu. 2) Rækt- un skapgerðarinnar, útrýming galla með því að leggja skipulega áherzlu á kosti, t. d. sannleiksást, hugrekki o. s. frv. 3) Sjálfsleit, það er að reyna að komast með sjálfsathug- un til þess, sem maður er í raun og veru. Þetta þrennt felst allt í daglegri hugleiðingu yoganemans. Honum er ráðlagt að vera mjög reglufastur og árvakur í hugleiðingunni, hugleiða á vissum tímum og oft á dag stutta stund í einu, en aðallega á einhverj- um vissum tíma, og oftast er ráð- lagt að gera það strax eftir fóta- ferð og þá 10—30 mínútur í einu, eftir því sem þurfa þykir. Langar hugleiðingar eru ekki aðalatriðið, heldur föst, ákveðin, innileg og djúp hugleiðing, laus við uppgerð og ímyndun, svo laus við slíkan vandræðagróður, að maður þarf að komast upp á lag með að verða eins og nakin sál, hafandi lagt til hliðar allt, sem við höfum ímyndað okkur um sjálf okkur og höldum, að við vitum. Hugleiðingarverkefnin eru byggð upp þannig, að öll þessi þrjú atriði komi strax fram, hugþjálfun, skap- gerðarrækt og sjálfsleit. Hugsunar- hæfileikinn er látinn þreifa fyrir sér eftir uppsprettu sjálfsvitundar- innar, hann er látinn fást við dyggð- ir, sem maður vill ávinna sér, og hann fær líka ýmiss konar æfing- ar, sem eru bein hugræn leikfimi eða bein einbeitingaræfing. Öll skipulögð hugsun er æfing í ein- beitingu. En lengi framan af er öll hugleiðing aðeins einbeiting hugans að fastákveðnu verkefni, glíma við að halda honum föstum við það og skoða það. Fyrsta stig hugleiðingarinnar er þannig einbeiting hugans, og það heitir hjá Indverjum Dharana. Á því stigi eru allir byrjendur, og annað og þriðja stigið, er taka við af því, eru naumast skiljanleg öðr- um en þeim, sem komnir eru tals- vert áleiðis í andlegri þjálfun. En á sanskrít heita þau Dhyana og Samadhi. Dhyana er eiginlega: fyr- irhafnarlaus íhugun, það er að geta íhugað verkefni stöðugt, án þess að hafa nokkuð fyrir því í huganum, það er eins og hinn athugandi hug- ur sameinist rannsóknarefninu. ■— Samadhi er yfirskilvitlegt hugar- ástand. Við skulum fjölyrða svolítið um hugleiðingarverkefni, svo að gildi þeirra verði ljósara. Venjuleg kristin bæn er t. d. mjög gott hugleiðingarverkefni, t. d. Fað- ir vor. Þá er auðvitað keppikeflið að láta athyglina fylgja hverju orði og merkingu þess. og hún má hvergi hvarfla frá, þótt maður kunni bæn- ina vel. Meðan maður kann ekki textann, hvílir athyglin við það að muna röð orða og setninga. En fyrst þegar maður kann hann reiprenn- andi, fer hann að geta hugleitt inni- hald orðanna. Lesturinn í huganum má ekki verða ósjálfráður, athygl- in verður að fylgjast með. Þetta er ekki eins auðvelt og menn halda.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.