Úrval - 01.03.1975, Qupperneq 13
NAUÐGUN OG ALLAR HENNAR ÓGNIR
11
mýking og óvirðing fylgi, þótt
reynt sé jafnframt að halda fram
rétti hins ákærða svo sem unnt er.
Refsing fyrir slíka árás ætti auð-
vitað að vera hliðstæð því, sem
gert er ráð fyrir viðvíkjandi öðr-
um ofbeldisverkum, þar sem yfir-
leitt er forðast úrskurði til margra
ára.
Lögmenn telja líklegt, að slík
linkind mundi leiða til meiri sann-
ana, þar eð dómstólar eru að sjálf-
sögðu tregir til að dæma menn til
dæmis í 40 ára fangelsi eingöngu
fyrir vitnisburð læknis og kvart-
andi vitna.
HINDRUN OG SJÁLFSVÖRN.
Samtök kvenna í nauðgunarmálum
ættu að leggja enn meiri áherslu
á þau atriði, sem orðið gætu til að
hindra nauðganir og efla sjálfs-
vörn þeirra, sem fyrir þeim verða.
Hin fyrstu samtök af þessu tagi
voru skipulögð í Washington af
fyrrverandi fórnardýrum nauðg-
ara. Þar er starfrækt hjálparmið-
stöð, sem hægt er að leita til um
ýmiss konar aðstoð bæði viðvíkj-
andi læknum og lögfræðingum,
sjúkrahúshjálp og fleira þess hátt-
ar. Miðstöð þessi sendir einnig ein-
hvern til fylgdar, þegar stúlka þarf
að leita læknis eða lögfræðings í
þessum málum. Tugir slíkra sjálf-
boðaliða vinna einnig í öðrum
borgum og bjóða fram aðstoð sína
bæði til að kenna sjálfsvörn og
finna opinbera hjálp.
Stórt spor í þessa átt yrði skip-
un umsjónarkonu, sem hægt væri
að leita til í þessum tilfellum, og
hún gæti síðan leiðbeint viðkom-
andi nauðleitarstúlkum um, hvað
heppilegast væri að gera, og við
að finna sambönd við hina ýmsu
hjálparflokka.
Smám saman breytist afstaða
fólks til nauðgunarmála. Gamlir
fordómar hverfa, ásamt alls konar
auðmýkingu, og samúð og skiln-
ingur vex að sama skapi.
o—o
Sé ráðist á þig, þá reyndu að
telja manninum hughvarf. Segðu
honum, að þú sért þunguð eða veik
af kynsjúkdómi. Tefðu fyrir eins
og unnt er, ef takast mætti að
sleppa eða hrópa á hjálp.
Hugsanlegt er að nota hattprjón,
lykil, upptakara, penna eða eitt-
hvað þess háttar, líklega er þó
regnhlíf það helsta. Best er að
beina slíkum hlutum að hálsi og
andliti.
Sé ekkert vopn nothæft, skaltu
samt berjast á móti eftir föngum,
ef þú finnur, að það hafi eitthvað
að segja. Best er að setja hnén
upp og sparka milli fóta hans. Ef
þú getur losað hendur, skaltu
krækja fingrunum í augu árásar-
mannsins.
Berstu ALDREI á móti, ef hann
er vopnaður.
☆
Lof leikur við eyru.
Bits and Pieces.