Úrval - 01.03.1975, Page 16

Úrval - 01.03.1975, Page 16
14 ÚRVAL ast aðgerð til að skipta um nýru í henni, eða að hún yrði reglulega að leggjast inn á sjúkrahús og láta tengja sig við nýrnavél, eins kon- ar gervinýra. Toni, blíðlynd og undir eðlilegum kringumstæðum fjörleg stúlka, kinkaði kolli, eins og henni kæmi þetta ekki á óvart. En þegar lækn- irinn var farinn, hringdi hún tii foreldra sinna, og í fyrsta skipti í margra mánaða langri sjúkrasögu hennar komst hún við. „Hvað sem á gengur, skal ég dansa,“ stundi hún upp milli ekkasoganna. „Frek- ar vildi ég deyja á sviðinu, en geta ekki dansað.“ Orðin fengu mjög á móður henn- ar, sem brast í örvæntingargrát. Toni Gannarelli (Kaye hafði hún tekið upp, eftir að hún fór að koma fram) hafði alltaf þráð að dansa. Þriggja ára að aldri hafði hún dansað um húsið og þrábeðið um að fá að fara í dansskóla. Sem efni- legur nemandi í framhaldsskóla hafði hún leiðbeint yngri nemend- unum í dansi. Síðan hafði hún unn- ið við sviðsetningu minniháttar danssýninga í Los Angeles. Loks varð dansinn hennar atvinna, jass, þjóðdansar, acrobatic og nútíma- dansar. STJÖRNUHRAP. Annað dans- fólk dáðist að léttum erfiðislausum dansstíl hennar og leit á hana sem eina þá bestu í listinni. Stundum, þegar henni hafði tekist hvað best upp, hvarf hún titrandi á bak við sviðið og hugsaði með sér: „Þetta tókst vel. Skyldi mér nokkurn tima takast að dansa svona vel aftur?“ En Toni gekk með lupus erythe- matasus, sjúkdóm, sem menn vissu ekki, hvernig til væri kominn. Hann lýsti sér venjulegast í því, að hörund hennar roðnaði og hljóp upp, og á andliti hennar sást oft eitt merki þess, eins og fiðrildi í laginu. í örfáum tilvikum kom sjúk dómurinn niður á liðamótum og mikilvægustu innyflum — nýrum, lifur, lungu, hjarta eða jafnvel heila. Þessi innvortis tilfelli eru kölluð á læknamáli LE. Af einhverj um óskýranlegum ástæðum eru níu af hverjum tíu, sem fyrir þessu verða, konur. Flestir sjúklingarnir bregðast þó vel við lyfjagjöfum og veikin hverfur. En hins vegar, þeg- ar veikin hefur náð til nýranna, ráða læknavísindin ekki eins vel við hana, og bót fæst ekki á mein- inu nema að hluta til, og þá að- eins um tíma. Nýrnaskemmdir fylgja þessu gjarnan. Strax á barnsaldri hafði Toni sýnt einkenni LE, með hörunds- upphlaupum, sem ágerðust ef hún var úti í sól. (Svo var að sjá, sem hún hefði erft LE af móður sinni, sem aldrei hafði haft verra af sín- um veikindum en að hörundið hlypi upp). Á táningaárunum ágerðust veikindin og einkennin voru reglu- leg. Hún kenndi sársauka í oln- bogum og úlnliðum og fingurnir bólgnuðu. Loks, í júní 1967, meðan hún var ráðin hjá gistihúsi í Las Vegas, breiddist sjúkdómurinn út í nýrun og liðamót flest. Sviðstjór- inn sagði, að hún væri að fitna. Það var ekki fita. Vöðvavefirnir söfn- uðu í sig vatni. Þrátt fyrir að Toni lifði nær í
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.