Úrval - 01.03.1975, Page 117

Úrval - 01.03.1975, Page 117
SEKKJAPÍPULEIKARINN . . . 115 við hlið mér. Ég kinkaði kolli, og hann tók þau upp. „Vertu kyrr hérna,“ sagði hann. „Ég kem aft- ur.“ Hann kom aftur með pinkilhnýti og sjúkrakassa. Á þessum dögum voru pípuleikarar og trommuleik- arar einnig sjúkraliðar deildanna. „Farðu úr sokkum og skóm,“ skip- aði hann og rak hitamælinn upp í mig. Hann las á mælinn við skím- una frá vasaljósi, sletti tungu í góm, hristi þrjár pillur úr glasi og tautaði. „Gleyptu þetta!“ Að því loknu sótthreinsaði hann fætur mína og bjó um þá. „Hérna, farðu í þessa þurru sokka.“ „Hvar fékkstu þurra sokka?“ „Á sama stað og ég fékk þurr teppi,“ sagði hann og hnykkti höfðinu í áttina að pinklinum. „Birgðavörðurinn slær ekki hend- inni á móti rommi annað slagið, þótt það sé svokallað lyfjaromm. Við skulum lappa svolítið upp á sárin á öxlunum á þér.“ Þegar liðskönnunin var gerð morguninn eftir, var Keay sekkja- pípuleikari fyrir aftan mig, og glaðlegt bros ljómaði upp leður- brúnt andlit hans: „Ennþá hrædd- ur?“ spurði hann. „Já!“ „Það er nú sama. Þú stendur þig í þessari göngu, því Keay gamli pípuleikari ætlar sjálfur að ganga úr skugga um, að þú gerir það.“ Fimmtíu mínútna ganga, tíu mín- útna hvíld, fimmtíu mínútna ganga, tíu mínútna hvíld. Kíló- metrarnir þokuðust undir fætur okkar, þegar þreytt og leirug A deildin þrammaði í áttina heim. Þegar leið á fjórðu klukkustund- ina, fór að blæða úr fótunum á mér. McCallum, liðþjálfi, kom upp að hlið minni: „Blæðir úr fótunum á þér, Kelley?" „Já, liðþjálfi." „Þetta sagði Keay pípuleikari. Næst þegar við stönsum, farðu þá úr stígvélunum og Keay lappar upp á fæturna á þér. En ég vil að þú vitir, að þú hefur staðið þig mjög vel.“ Þessi hlýlegu orð liðþjálfans voru eins og besta lyfjagjöf. í næstu hvíld bjó Keay um fætur mína. Svo rétti hann mér litla flösku. „Drekktu þetta!“ Ég svelgdi þetta í mig og saup hveljur: „Hvað er þetta?" „Afmælisdrykkurinn þinn. Svo- lítið af rommi, sem birgðavörður- inn fékk ekki í gærkvöldi. Það heldur þér gangandi klukkustund í viðbót.“ Næstu fimmtíu mínúturnar gat ég ekki betur séð, en Keay væri hvarvetna meðfram röðinni, þegar hann var ekki að leika á sekkja- pípuna sína. Ég sá hann tala við Dorrance lautinant, síðan við stór- vaxinn, óbreyttan hermann að nafni Berry, og loks við yfirlið- þjálfanm Yfirliðþjálfinn hélt síðan til Griffins majórs. Þeir stungu saman nefjum stundarkorn, svo kinkaði majórinn kolli og brosti. Næsti hluti göngunnar var sá, sem ég óttaðist mest. Þá var röðin komin að mér að halda á ellefu kílóa Bren-vélbyssunni. í hvíldar- tímanum fór ég til Berrys til að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.